Ríkislögreglustjóri, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Tollstjóri undir eitt þak

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að vinna að því að sam­eina hús­næði Toll­stjóra, Rík­is­lög­reglu­stjóra og Lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á nýjum stað.

Tollstjóri
Toll­stjóri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Um nokk­urt skeið hefur verið til skoð­unar að Rík­is­lög­reglu­stjóri, Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Toll­stjóri sam­ein­ist um hús­næði á nýjum stað. Marg­vís­leg tæki­færi eru talin vera til staðar til að auka sam­vinnu milli stofn­an­anna og ná fram meiri árangri í sam­eig­in­legum verk­efnum.

Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans en hús­næð­is­mál Rík­is­lög­reglu­stjóra, Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Toll­stjóra voru á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar í dag.

Jafn­framt segir í svar­inu að samnýt­ing stofn­an­anna á sér­hæfðum rýmum geti stuðlað að meiri hag­kvæmni í hús­næð­is­rekstri þeirra. Nýtt hús­næði myndi fela í sér nútíma­legt vinnu­um­hverfi með opnum rýmum og mögu­leikum á þróun vinnu­bragða, til að mynda með auk­inni teym­is­vinnu.

Fram­kvæmda­sýsla rík­is­ins hefur unnið þarfa­grein­ingu og hús­rým­is­á­ætlun fyrir sam­eig­in­legt hús­næði lög­regl­unnar og tolls þar sem heild­ar­hús­næð­is­þörf er talin vera um 20.168 fer­metrar, þar af um 7.200 fer­metrar vegna sam­eig­in­legra rýma. 

Í frétt RÚV um málið kemur fram að gert sé ráð fyrir því að skoðað verði nánar hvort leigu­lóð rík­is­ins við Klepp geti hugs­an­lega komið til greina undir slíkt hús­næði.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að stofn­an­irnar hafi lagt mikla áherslu á að stað­setn­ing sam­eig­in­legs hús­næðis henti þeim öllum. Miðað við rúm­lega 20 þús. fer­metra hús­næð­is­þörf sé ljóst að byggja þyrfti nýtt hús­næði að öllu eða veru­legu leyti undir sam­eig­in­lega starf­semi lög­regl­unnar og tolls.

„Mjög ólík­legt er að til staðar sé hús­næði á mark­aðnum sem upp­fyllir allar þær sér­tæku kröfu sem gerðar eru til þessa hús­næðis. Vegna þessa er til skoð­unar er að ríkið útvegi til­tekna lóð sem upp­fylli nauð­syn­legar kröfur og aug­lýst verði eftir til­boði í bygg­ingu hús­næðis á þeim stað. Í ljósi þeirra tæki­færa sem fel­ast auk­inni sam­vinnu milli þess­ara stofn­ana og auk­inni hag­kvæmni í hús­næð­is­rekstri þeirra verður unnið að því að stofn­an­irnar verði færðar í sam­eig­in­legt sér­hæft hús­næði,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár