Leið Bjarna að lokast og hinir flokkarnir horfa til vinstri

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður milli Sjálf­stæð­is­flokks og frjáls­lyndu miðju­flokk­anna virð­ast ekki vera að skila neinu. Fyr­ir­staða er gagn­vart sam­starfi við aðra en Fram­sókn­ar­flokk innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks. Flestir aðrir flokkar eru farnir að und­ir­búa

Línur eru farnar að skýr­ast í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum milli íslenskra stjórn­mála­flokka. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur nú haft umboð til að mynda rík­is­stjórn í rúma viku en hefur ekki enn ráð­ist í form­lega við­ræður við neinn stjórn­mála­flokk. Flokk­ur­inn, og for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son, mun ekki fá marga daga í við­bót til að hefja slíkar áður en að aðrir stjórn­mála­flokkar taka ákvörð­un­ina fyrir hann. Sjálfur sagði hann við RÚV í gær að svo gæti vel farið að hann myndi skila stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu fyrir helgi.

Ástæður þess eru að mestu tvær, og báðar nokkuð aug­ljósar. Í fyrsta lagi vegna þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sér að myndun stjórnar með frjáls­lyndu miðju­banda­lagi Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar verður nær ómögu­leg nema að annar hvor aðil­inn gefi eftir stefnu­mál með þeim hætti að kjós­endur þeirra myndu telja sig svikna. And­stæðar stefnur í Evrópu- og gjald­miðla­málum ann­ars vegar og í aðgerðum til að breyta sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­kerfum lands­ins eru þar helsta fyr­ir­staðan. Fundir und­an­far­inna daga milli Bjarna og for­ystu­manna Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar hafa að mestu snú­ist um að reyna að fá þá til að slá af þeim kröfum, en þeir hafa ekki skilað árangri. Frekari fund­ar­höld eru þó fyr­ir­huguð í dag og eftir þau gæti nið­ur­staða legið fyrir um hvort Bjarni þurfi að skila stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu.

Það er líka fyr­ir­staða inni í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins gagn­vart myndun slíkrar rík­is­stjórnar. Þar er að finna nokkra þing­menn sem berj­ast hart gegn þriggja flokka stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð og þrýsta mjög á að Fram­sókn­ar­flokknum verði bætt inn í allar verð­andi rík­is­stjórnir, með öðrum hvorum frjáls­lynda miðju­flokknum. Slíkar hug­myndir koma ekki til greina innan Við­reisnar né Bjartrar fram­tíðar. Það ætlar ein­fald­lega eng­inn að verða þriðja hjólið undir vagni sitj­andi rík­is­stjórnar.

Vinstri græn þurfa ekkert að flýta sér

Í öðru lagi hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verið að bíða eftir að Vinstri græn taki við sér og sam­þykki að ræða við sig á grund­velli þess sem sam­eini flokk­anna í stað þess að ein­blína á það sem þeir séu ósam­mála um. Þar hefur Morg­un­blaðið til að mynda beitt sér mjög mikið og Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri þess, hefur einnig verið að leggja slíkt sam­starf til. Mikið er lagt upp með að órói og ósætti sé á milli for­ystu Vinstri grænna og þing­flokks­ins ann­ars vegar – sem sé til­búin í íhalds­samt sam­starf með sitj­andi stjórn­ar­flokkum – og gras­rótar eða ung­liða­hreyf­ingar flokks­ins. Á meðal Vinstri grænna kann­ast eng­inn við þetta ósætti og við­mæl­endur úr röðum flokks­ins segja allir að fyrsti kostur sé stjórn til vinstri. Ekkert annað verði kannað fyrr en reynt hefur verið á þann kost.

Innan Vinstri grænna er hins vegar sú afstaða ráð­andi að fátt, ef nokkuð, sam­eini flokk­anna. Og þar eru ráð­andi öfl meira en til­búin til að bíða af sér stjórn­ar­mynd­un­ar­til­raunir Sjálf­stæð­is­flokks­ins – sem þau telja að muni ekki skila neinum árangri – til að fá stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið sjálf og reyna myndun stjórnar frá miðju til vinstri undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur. Þar er talið að Bjarni Bene­dikts­son sé að reyna að búa sér til stöðu með bið­leikjum sínum úr aðstæðum sem séu mjög þröngar og bjóði í raun ekki upp á aðra mögu­leika en rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist vera mjög til­bú­inn til að koma að slíkri miðju-vinstri stjórn, og sömu­leiðis stjórn til hægri ef svo ólík­lega vildi til að slík yrði á borð­inu með hann inn­an­borðs. Aðilar alls staðar að úr hinu póli­tíska lit­rófi segja að Framsókn virð­ist vera til­bú­inn að gera nán­ast allt til að kom­ast í rík­is­stjórn. Þar á meðal að ein­angra Sigmund Davíð Gunn­laugs­son og jafn­vel Gunnar Braga Sveins­son.

Sameining í loftinu?

Í hvora átt­ina sem hið nýmynd­aða frjáls­lynda miðju­banda­lag Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar fer í stjórn­ar­myndun, og hvort sem það endar í rík­is­stjórn eða ekki, þá er að eiga sér stað póli­tísk þróun innan þess sem mun hafa áhrif á íslensk stjórn­mál næstu miss­erin. Það eru nefni­lega aðilar innan bæði Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sem vilja ganga lengra í sam­starf­inu, og jafn­vel renna flokk­unum alfarið saman.

Þar er m.a. horft á næstu sveita­stjórn­ar­kosn­ingar. Björt fram­tíð fékk ell­efu sæti í sjö sveit­ar­stjórnum í kosn­ing­unum 2014 og mynd­aði meiri­hluta í Reykja­vík, Hafn­ar­firði, Kópavogi og á Akranesi. Í þremur þess­ara sveit­ar­fé­laga vinnur Björt fram­tíð með Sjálf­stæð­is­flokknum en í Reykja­vík með regn­boga­stjórn til vinstri. Þessi til­vist á sveit­ar­stjórn­ar­stíg­inu, og sýni­leg geta til að vinna í báðar áttir, gæti verið mik­il­væg fyrir Viðreisn þegar sá flokkur hefur inn­reið sína í þau stjórn­mál árið 2018.

Þá blasir hið aug­ljósa við: að einn ell­efu manna þing­flokkur er mun sterk­ari en tveir sjö og fjög­urra manna. Það mun verða mun auð­veld­ara fyrir sam­ein­aðan þing­flokk að sinna t.d. nefnd­ar­störfum almenni­lega og af við­eig­andi dýpt en það verður fyrir tvo litla þing­flokka. Sér­stak­lega á það við í til­felli Bjartrar fram­tíðar þar sem þing­sætin eru ein­ungis fjögur.

Þá er það ekk­ert sér­stakt leynd­ar­mál að upp­risa Bjartrar fram­tíðar á síð­ustu vikum kosn­inga­bar­átt­unnar, í kjöl­far afstöðu þeirra gegn sam­þykkt búvöru­samn­inga, kom jafn­vel flokks­mönnum þar inn­an­borðs á óvart. Flokk­ur­inn hafði vart mælst með púls allt þetta ár og ekk­ert virt­ist stefna í að hann væri raun­veru­legur val­kostur fyrir kjós­endur í kosn­ing­unum í lok októ­ber. Bjartri fram­tíð vantar til­finn­an­lega víð­femara innra skipu­lag í flokka­starf sitt og það er hlutur sem Viðreisn hefur lagt áherslu á að vera með í lagi. Það voru til að mynda um 400 manns á stofn­fundi flokks­ins í Hörpu í maí og um 300 flokks­fé­lagar mættu á lands­þing í sept­em­ber á sama stað. Flokk­ur­inn var enda í rúm tvö ár í mótun og und­ir­bún­ingi áður en að hann var form­lega kynntur til leiks sem stjórn­mála­flokkur, meðal ann­ars til þess að vera með inn­viði til­búna þegar leikar myndu hefj­ast.

Samfylking í boði

Ef af sam­þætt­ing­ar­hug­myndum verður er lík­leg­ast að fyrstu skrefin verði í formi sam­starfs. Þ.e. flokk­arnir verði ekki sam­ein­aðir form­lega en vinni saman í rík­is­stjórn, sitji þeir þar, og innan þings. Um það verði gert form­legt sam­komu­lag. Þá væri hægt að und­ir­búa sam­ein­ingu og látið af henni verði í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna 2018.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, gæti þurft að finna sér nýtt pólitískt heimili í ljósi skelfilegrar stöðu Samfylkingarinnar.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, gæti þurft að finna sér nýtt póli­tískt heim­ili í ljósi skelfi­legrar stöðu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Sumir í þessum kreðsum láta sig meira að segja dreyma um að ná Sam­fylk­ing­unni inn í þetta sam­starf. Hún er í nán­ast óleys­an­legri til­vist­ar­kreppu og er að margra mati dauð sem vöru­merki. Innviðir flokks­ins eru í molum, búið er að segja upp öllu starfs­fólki, stór hluti skráðra flokks­manna kaus ekki flokk­inn og fjár­fram­lög til hans munu ein­ungis verða um 14 millj­ónir króna á næsta ári.

Þrír þing­menn Sam­fylk­ingar verða líka í stök­ustu vand­ræðum með að sinna öllum þing­störfum, til að mynda nefnd­ar­störfum, með þeim hætti að flokk­ur­inn geti verið inni í öllum málum. Samstarf við Viðreisn og Bjarta fram­tíð myndi búa til 14 manna þing­flokk sem yrði í allt annarri stöðu til að taka afstöðu til allra mála. Þá má ekki gleyma því að Sam­fylk­ingin er með sterka stöðu á sveit­ar­stjórn­ar­stíg­inu, mun sterk­ari stöðu en nið­ur­staða flokks­ins í þing­kosn­ing­unum gefur til kynna. Flokk­ur­inn á til að mynda stjórn­mála­mann með mikið per­sónu­fylgi í Degi B. Egg­erts­syni, borg­ar­stjóra Reykja­víkur, sem náði í 31,9 pró­sent atkvæða í höf­uð­borg­inni í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Ef Sam­fylk­ingin er búið spil þá þarf Dagur og borg­ar­stjórn­ar­flokkur hans að finna sér nýtt heim­ili.

Fleiri möguleikar

Aðrir mögu­leikar eru líka í stöð­unni fyrir Sam­fylk­ing­una. Magnús Orri Schram, sem sótt­ist eftir að verða for­maður flokks­ins fyrr á þessu ári, lagði til í maí að skap­aður yrði nýr sam­eig­in­legur vett­vangur fyrir Sam­fylk­ing­ar­fólk og aðra sem séu ýmist utan flokka eða í öðrum flokkum. Í grófum dráttum að leggja niður Sam­fylk­ing­una og stofna ein­hvers konar jafn­að­ar­manna­flokk Íslands sem myndi rúma fjöl­breyttar raddir og mörg sjón­ar­mið. Þá hafa verið viðr­aðar hug­myndir um að end­ur­reisa Alþýðu­flokk­inn, sem er enn til þótt að starf­semi hans hafi runnið inn í Sam­fylk­ing­una um síð­ustu ald­ar­mót. Þeir sem virð­ast standa að þeirri hug­mynd eru fyrst og fremst gamlir áhrifa­menn innan Alþýðu­flokks­ins, sem hafa ekki starfað í stjórn­málum í ár eða ára­tugi. Eitt er þó víst, það verða ein­hverjar breyt­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár