Bjarni Benediktsson: Sjálfstæðisflokkurinn þarf að breytast

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þarf að breyt­ast í takt við þær breyt­ingar sem orðið hafa á sam­fé­lag­inu und­an­farna ára­tugi. Slípa þarf áherslur hans þannig að flokk­ur­inn nái betur til þeirra sem byggja landið í fram­tíð­inni og horfa þarf til nýrra tæki­færa. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tekið mjög stíft til varna um stefnu sína í sjáv­ar­út­vegs- og orku­nýt­ing­ar­málum og sýn fólks á flokk­inn hefur tak­markast við þessa mála­flokka, sem sé „rangt og illa lýsandi“ fyrir það sem flokk­ur­inn standi fyrir. Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í við­tali við DV í dag.

Færð áheyrn ef þú vilt breyta


Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur mælst í mik­illi lægð í skoð­ana­könn­unum. Bjarni útskýrir þá lægð með því að segja und­ar­lega tíma vera í stjórn­málum. Rof sé á milli kjós­enda og stjórn­mála­flokka. Öllum nýjum stjórn­mála­flokkum hafi einnig reynst auð­veld­ara að fá áheyrn eftir hrun. „Ég hef til­hneig­ingu til að segja að um þessar mundir færðu áheyrn ef þú seg­ist vilja breyta, óháð því hverju þú vilt breyta. Svo hjálpar mikið til ef þú hefur enga póli­tíska for­tíð.“

Bjarni telur rofið hins vegar vera brú­an­legt „Varðandi traustið þá tel ég að það muni á end­anum hald­ast í hendur við hvernig gengur að draga fram lífið á Íslandi. Hvernig gengur að þétta sam­fé­lags­sátt­mál­ann sem verður að vera til staðar. Þar vísa ég til þess sátt­mála sem verður að vera í gangi og tryggir að mönnum ofbjóði ekki fram­ganga ákveð­inna afla, hópa eða hvernig komið er fram við þá sem standa höllum fæti í sam­fé­lag­inu. Sá sátt­máli er límið í okkar sam­fé­lagi.“

Vill taka Sjálfstæðisflokkinn inn í nýjar lendur


Hann segir tíma­bært að snúa sér að hinum nýju stoðum hag­kerf­is­ins í áherslum flokks hans, sem oft er sagður bara vilja virkja meira og vernda fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið. „Nú erum við komin með það öfl­ugt hag­kerfi og þróað mennta­kerfi og í raun öfl­ugt sam­fé­lag að okkar næstu stóru skref eiga að vera inn á ný svið. Verð­mæta­sköpun á nýjum sviðum sem eiga sér tak­marka­lausa vaxt­ar­mögu­leika. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þarf að taka þetta skref með þjóð­inni. Ég vil sjá okkur meira afger­andi í umræðu á þessum sviðum. Ísland mun ekki bara snú­ast um fisk og ál þó að það séu mik­il­vægir þættir. Ég vil taka Sjálf­stæð­is­flokk­inn inn á þessar nýju lendur og við þurfum að ein­beita okkur að því að teikna upp fram­tíð­ar­sýn á þessum vett­vangi. Við getum ekki látið stjórn­mála­um­ræð­una bara snú­ast um gömlu stoð­irnar, hversu mik­il­vægar sem þær eru.“

Bjarni segir að menn hafi viljað gera ágrein­ing um auð­linda­nýt­ingu á Íslandi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.„Mér finnst ekki stand­ast nema brot af því sem haldið er fram um flokk­inn og stefnu hans í þessum mála­flokkum. Það verður að koma sá tíma­punktur að við náum sátt um þessi mál og að því erum við svo sem að vinna. Með breyt­ingum á auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá og fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og til dæmis breyt­ingar á eig­enda­stefnu Lands­virkj­unar. Allt eru þetta skref í þá átt að taka þessi stóru mál úr dag­legri átakaum­ræðu stjórn­mál­anna.“

Efins um að vera í stjórnmálum eftir áratug


Hann seg­ist frekar efins um að hann verði enn í stjórn­málum eftir tíu ár, enda væri hann þá búinn að vera í þeim í 22 ár. Ég sá mig aldrei fyrir mér í svo langan tíma sem virkan í stjórn­málum. En fyrst og fremst von­ast ég eftir því að vera áfram sprækur á lík­ama og sál og geta sinnt ein­hverju skemmti­legu og hafa góðan tíma til að sinna fjöl­skyld­unni og hafa hana hjá sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár