Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1792 hér á landi. Í gær voru þau 1.790 og hefur þeim því fjölgað um tvö síðasta sólarhringinn. Ekkert smit greindist í fyrradag og aðeins eitt í gær. Sóttvarnalæknir segir að á næstunni sé líklegt að fjöldi smita sveiflist dag frá degi. Hann sagði á upplýsingafundi almannavarna í gær að einn kafli stríðsins væri unninn og faraldurinn klárlega á niðurleið.
Í dag eru 695 í sóttkví en í gær var fjöldinn 731. Alls hafa 18.800 lokið sóttkví.
Í dag eru 174 einstaklingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöldinn 210.
1.608 hafa náð bata.
Alls hafa 46.353 sýni verið tekið hér á landi frá upphafi faraldursins.
Í gær voru 199 sýni greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og reyndust tvö þeirra jákvæð. Hjá Íslenskri erfðagreiningu voru tekin 182 sýni og ekkert var jákvætt.
[links]Á sjúkrahúsi liggja þrettán sjúklingar vegna COVID-19 sjúkdómsins, þar af þrír á gjörgæslu, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru tíu látin.
Fyrsta smitið af kórónuveirunni greindist á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans þann 28. febrúar. Greindum smitum tók að fjölga smám saman í kjölfarið en fjöldinn tók svo stökk 16. Mars er 46 greindust. Flest smit greindust 23. mars eða 106.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir