Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Ritstjóri

Vandi heilsugæslunnar: „Það er erfitt að duga til“
Úttekt

Vandi heilsu­gæsl­unnar: „Það er erfitt að duga til“

Heim­il­is­lækn­ir­inn Jörundur Krist­ins­son segir að heilsu­gæslan sé alvar­lega van­rækt og van­búin til að sinna hlut­verki sínu. Ný hverfi séu byggð án þess að ráð sé gert fyrir heilsu­gæslu­stöðvum. Sífellt sé hlaðið á heilsu­gæsl­una verk­efnum án þess að því fylgi aukið fjár­magn, mann­afli eða hús­rými, sem rýrir gæði þjón­ust­unnar, eykur líkur á mis­tökum og lengir biðlista. Efla þurfi grunn­þjón­ust­una, fjölga heilsu­gæslu­stöðvum og starfs­fólki þeirra. Sjálfur hefur hann fundið fyrir auknu álagi og sú hugsun sótt að hvort hann ætti kannski að yfir­gefa fagið sem hann lagði allt í söl­urnar til að sinna: „Ég er stundum alveg að gef­ast upp.“
„Það er erfitt að duga til“
Myndband

„Það er erfitt að duga til“

Heim­il­is­lækn­ir­inn Jörundur Krist­ins­son segir að heilsu­gæslan sé alvar­lega van­rækt og van­búin til að sinna hlut­verki sínu. Ný hverfi séu byggð án þess að ráð sé gert fyrir heilsu­gæslu­stöðvum. Sífellt sé hlaðið á heilsu­gæsl­una verk­efnum án þess að því fylgi aukið fjár­magn, mann­afli eða hús­rými, sem rýrir gæði þjón­ust­unnar, eykur líkur á mis­tökum og lengir biðlista. Efla þurfi grunn­þjón­ust­una, fjölga heilsu­gæslu­stöðvum og starfs­fólki þeirra. Sjálfur hefur hann fundið fyrir auknu álagi og sú hugsun sótt að hvort hann ætti kannski að yfir­gefa fagið sem hann lagði allt í söl­urnar til að sinna: „Ég er stundum alveg að gef­ast upp.“
Guðmundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn
FréttirKosningastundin

Guð­mundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra gengur sáttur frá borði þótt Vinstri græn hafi ekki náð mik­il­vægum mál­efnum í gegn. Helst sér hann eftir mið­há­lend­is­þjóð­garð­inum en mun halda bar­átt­unni áfram og segir lofts­lags­málin vera stærstu verk­efnin á kom­andi kjör­tíma­bili. Þar þarf að grípa til aðgerða í atvinnu­líf­inu og friða bæði hluta af landi og hafi.
Þorgerður Katrín varar við íhalds-hægri stjórn
FréttirKosningastundin

Þor­gerður Katrín varar við íhalds-hægri stjórn

Viðreisn telur að teng­ing krónu við evru sé besta og fljót­virkasta tækið sem hægt er að beita í hag­stjórn­ar­málum til að bæta hag almenn­ings og fyr­ir­tækja. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, gagn­rýnir sitj­andi rík­is­stjórn fyrir kyrr­stöðu og vörð um sér­hags­muni. Hún vill færa stjórn­málin inn á hina frjáls­lyndu miðju.
Kærði mann fyrir að upplýsa sig ekki um HIV-smit
Fréttir

Kærði mann fyrir að upp­lýsa sig ekki um HIV-smit

Íslensk kona kynnt­ist manni á fimm­tugs­aldri og átti með honum ást­ar­fundi í þrí­gang, áður en hún komst að því að mað­ur­inn væri smit­aður af HIV og vissi af því, en væri ekki að taka lyf til að halda veirunni niðri og upp­lýsti kon­una ekki um stöð­una. Málið var kært til lög­reglu þar sem það hefur legið í rúmt ár hjá ákæru­sviði og bíður þar afgreiðslu. Á meðan gengur mað­ur­inn laus.
Lögmaður tengdur KSÍ  og Kolbeini birti gögn um brotaþola
FréttirKSÍ-málið

Lögmaður tengdur KSÍ og Kolbeini birti gögn um brota­þola

Gunnar Ingi Jóhanns­son, lög­maður Þór­hildar Gyðu Arn­ars­dóttur, segir að birt­ing rann­sókn­ar­gagna geti varðað við brot á hegn­ing­ar­lögum og íhugar að kæra Sigurður G Guð­jóns­son til lög­reglu vegna þess. Rík ástæða sé til að hafa áhyggjur af því að rann­sókn­ar­gögn í saka­málum séu notuð í ann­ar­legum til­gangi á opin­berum vett­vangi og ástæðu til að hafa áhyggjur af því að lög­maður sem hefur ekki aðkomu að mál­inu sé feng­inn til að fronta birt­ingu slíkra gagna.
Orð sem meiða og mynda sár sem seint gróa
Úttekt

Orð sem meiða og mynda sár sem seint gróa

Andlegt ofbeldi fylgir gjarnan lík­am­legu ofbeldi og kyn­ferð­is­of­beldi. Konur segja hér frá orðum sem voru látin falla á meðan þær voru beittar ofbeldi, orð sem hafa setið eftir í hugum þeirra og eitrað út frá sér. Orð sem fela í sér sárs­auka og minna stöðugt á ofbeldið. Samkvæmt sér­fræð­ingum hefur and­lega ofbeldið jafn­vel verri áhrif á líf og sál­ar­heill þolenda heldur en sár sem gróa því áhrif þess eru svo lúmsk, langvar­andi og víð­tæk. Engu að síður hafa þessi orð fengið lítið vægi við með­ferð mála í rétt­ar­vörslu­kerf­inu. Margar þess­ara kvenna eru að end­ur­segja orðin í fyrsta sinn. Eins og ein orð­aði það: „Megi þessi orð rotna ann­ars staðar en í mag­anum á mér.“
„Loksins lesbía!“
Viðtal

„Loksins lesbía!“

Eva Jóhanns­dóttir var ekki orðin sjálf­ráða þegar maður beitti hana grimmi­legu ofbeldi. Annar maður kom þar að en í stað þess að koma henni til bjargar braut hann líka á henni. Hún vildi vera viss um að vera ekki mótuð af þess­ari reynslu þegar hún kom út úr skápnum. „Loksins lesbía,“ hróp­aði afi hennar en homm­arnir í fjöl­skyld­unni eru svo margir að á ætt­ar­mótum er skellt í hóp­mynd af sam­kyn­hneigðum. Afinn bauðst líka til að splæsa í danskt sæði fyrir hana en hún valdi aðra leið, að eign­ast barn með hommum.

Mest lesið undanfarið ár