Greta Thunberg manneskja ársins hjá TIME

Tíma­ritið TIME Magazine hefur valið mann­eskju árs­ins frá árinu 1927 og þetta árið varð lofts­lagsaktí­vist­inn Greta Thunberg fyrir val­inu.

Sænska ung­lings­stúlkan Greta Thun­berg, sem ýtt hefur af stað umræðu um umhverf­is- og lofts­lags­mál um heim allan, hefur verið valin mann­eskja árs­ins hjá tíma­rit­inu TIME. Thunberg er stödd á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP25, sem haldin er í Madríd þessa dag­ana.

Á vef­síðu TIME kemur fram að Greta hafi náð að breyta óljósum áhyggjum af lofts­lags­breyt­ingum yfir í alþjóð­lega hreyf­ingu sem berj­ist fyrir breyt­ingum á heims­vísu.

Athygli vakti í lok októ­ber síð­ast­liðnum þegar hún afþakk­aði umhverf­is­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs. Hún sagði á Instagram-aðgangi sín­um að verð­laun skiptu ekki máli. 

Hún þakk­aði þó fyrir þann heiður að hafa verið val­in en sagði að heldur þyrfti að virkja sam­taka­mátt fjöld­ans og þrýsta á stjórn­mála­menn og aðra leið­toga til að berj­ast gegn mengun af manna­völdum og lofts­lags­breyt­ing­um.

Vonina má sjá hjá fólkinu sjálfu

Greta hélt ræðu í dag á COP25 þar sem hún tal­aði máli von­ar­innar. „Ég er að segja ykkur að vonin er til staðar. Ég hef séð hana. En hún kemur ekki frá stjórn­völdum eða fyr­ir­tækjum. Hún kemur frá fólk­inu sjálfu,“ sagði hún meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár