Árni Páll vill vera formaður áfram

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ingar vinnur nú að heild­ar­end­ur­skoðun á lögum flokks­ins. Ástæðan er meðal ann­ars tíma­setn­ing lands­funda og for­manns­kjörs. Árni Páll Árnason vill vera for­maður áfram. Formaður fram­kvæmda­stjórnar vill henda lög­unum og skrifa ný.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ingar, seg­ist gera ráð fyrir að gefa kost á sér áfram sem for­maður ef komi til alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um for­ystu í flokknum.

„Ég er til í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu og for­manns­kosn­ingu hvenær sem er,” segir Árni Páll í sam­tali við Kjarnann. „Stofn­anir flokks­ins meta það og ég mun ekki hafa afskipti af því.”

Umræðan staðið frá síðasta landsfundi

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar vinnur nú að end­ur­skoðun á lögum flokks­ins, meðal ann­ars til að geta átt mögu­leika á að breyta tíma­setn­ingum á lands­fundum. Umræða hefur skap­ast innan flokks­ins um að flýta kom­andi lands­fundi, en sam­kvæmt lögum verður að halda þá á tveggja ára fresti. Einnig er verið að skoða hvort hægt sé að flýta for­manns­kjöri í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu.

Sema Erla Serdar, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að umræðan hafi staðið yfir frá síð­asta lands­fundi. Þá vann Árni Páll for­manns­slag á móti Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur með einu atkvæði.

„Í fyrra var lögð fram til­laga í fram­kvæmda­stjórn um að lands­fundur yrði hald­inn haustið 2016. En það náði ekki lengra því við erum með þessi löngu og ítar­legu lög sem til­greina að lands­fund skuli halda á tveggja ára fresti. Þar lá vand­inn,” segir hún. „En í kjöl­farið skoð­uðum við að það er hægt að halda lands­fund snemma árið 2017 en hægt væri að halda alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um for­mann 2016.”

Þungt að kyngja ítrekuðum skoðanakönnunum

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, sagði í gær að hún vildi flýta lands­fundi flokks­ins um hálft ár og þar með for­manns­kosn­ingu. Ástæðan er arfa­slakt fylgi Sam­fylk­ingar í ítrek­uðum skoð­ana­könn­unum und­an­farin miss­eri, en flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með um 10 pró­senta fylgi. Hún sagði löm­unar­á­stand ríkja meðal Sam­fylk­ing­ar­innar og eng­inn af því hæfa fólki innan flokks­ins vilji stíga fram og bjóða sig fram til for­manns á meðan svo er.

Árni Páll segir flokk­inn hafa verið í langvar­andi lægð.

„Það er ekk­ert sem hreyf­ist upp á við hjá okkur, frekar en öðrum flokkum. Þetta er algjör kyrr­staða og hefur verið við­var­andi frá síð­asta lands­fundi.”

Sema segir málið hafa hangið allt of lengi yfir flokknum.

„Hlut­irnir verða bara erf­ið­ari og erf­ið­ari og það er þungt að þurfa að kyngja hverri skoð­ana­könnun á fætur annarri með 10 pró­senta fylgi,” segir hún. „Nú erum við að láta meta þessi lög til að sjá hvað við getum gert.”

Formaður verður að hafa skýrt umboð

Heimild er fyrir því að boða til auka­lands­fundar, en á honum má þó ekki kjósa nýjan for­mann. Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar mun í kjöl­farið negla niður dag­setn­ingar og sjá hvort hægt sé að flýta for­manns­kjöri með alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu eða lands­fundi. Vanda­málið er að það þarf að kalla saman lands­fund til að breyta lögum. Að sögn Semu eru lögin óþarf­lega ítar­leg, hátt í 30 blað­síður, og erfitt sé fyrir flokk­inn að vinna með svo nið­ur­njörvað starfs­um­hverfi. Fram­kvæmda­stjórnin ætli að klára málið sem fyrst.

„Það þarf að útrýma þessum lögum og skrifa ný,” segir hún. „Það væri löngu búið að afgreiða þetta mál ef ekki væri fyrir lögin. Næsti vetur er kosn­inga­vetur og það væri óeðli­legt ef lögin koma í veg fyrir að sá sem leiði flokk­inn í gegn um næstu kosn­ingar hafi skýrt umboð til þess.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár