Nýsköpun í Afríku - Símarisar keppa um vaxandi markað

Afríka er að rísa, er frasi sem hefur verið sagður oft á und­an­förnum árum. Það sem helst er horft til þegar þetta er sagt, eru hag­tölur sem sýna hag­vöxt og grósku á svæðum þar sem áður var mikil fátækt, óróri og veikir inn­viðir. En það eru aðrar breyt­ingar sem Afríka er að ganga í gegnum um þessar mundir sem gætu ýtt enn frekar undir vöxt og sterk­ari inn­viði. Það er útbreiðsla á betri netteng­ingum og snjall­símum og öllu því hag­ræði og tæki­færum sem þeim fylgja.

Ekki aðeins í raunhagkerfinu


Stærstu hag­kerfi Afríku, Nígería, Suður-Afríka, Egypta­land, Alsír og Angóla, eiga mikið undir hrá­vöru­vinnslu og hafa hag­kerfin byggst upp í kringum þau útflutn­ings­við­skipti, ekki síst á und­an­förnum árum. Nígería er stór­veldið í Afríku, þar sem olíu­við­skipti eru hryggjar­stykkið. En mikil hrá­vöru sala frá hinum fyrr­nefndu lönd­unum, ekki síst á mat, ávöxtum og kaffi, hefur vaxið nokkuð hratt á und­an­förnum árum.

Fjöl­menn­asta ríkið álf­unnar, Nígeríu, er með íbúa­fjölda upp á 177 millj­ónir, sem er meira en sem nemur öllum íbúa­fjölda Suður-Evrópu, það er Spánar, Ítalíu, Portúgal og Grikk­lands. Hag­vöxtur er mik­ill víða í álf­unni, einkum í þró­uð­ustu ríkjum, eins og Nígeríu og Suður-Afríku. Í Nígeríu, stærsta hag­kerfi Afríku, var hag­vöxtur 6,2 pró­sent í fyrra, en 4,1 pró­sent í Suður-Afríku.

Heild­ar­stærð þess­ara fimm stærstu hag­kerfa Afríku er um 1.500 millj­arðar Banda­ríkja­dala, og þar af er Nígería með 568 millj­arða, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Alþjóða­bank­ans, og Angóla 131 millj­arð.

Nú eru blikur á lofti eftir hraða upp­gangs­tíma, þar sem olíu­verð hefur lækkað hratt á innan við ári. Farið úr 110 Banda­ríkja­dölum niður í um 50 Banda­ríkja­dali. Aðrar hrá­vörur hafa einnig lækkað nokkuð sem eru Afr­íku­löndum mik­il­vægar, en verð­sveiflur eru þó lífs­ins gangur með þær vörur eins og aðrar. Skjálft­inn í Kína, þar sem minnk­andi eft­ir­spurn hefur gert vart við sig á ýmsum hrá­vöru­mörk­uðum, gæti reynst þessum löndum þungur, ef marka má skrif sér­fræð­inga und­an­farin miss­eri. Afr­íku­ríkin eru það háð eft­ir­spurn frá Kína hvað ýmsar vörur varðar að kreppa gæti skap­ast á sköpum tíma ef það hallar meira undan fæti.

Einmitt í þessu ljósi skiptir sköpum fyrir Afríku að efla nýsköpun, og það hefur gengið vel und­an­farin miss­eri.

Frumkvöðlasetur og vaxandi snjallsímamarkaður


Frum­kvöðla­setur (Startup Hub) hafa sprottið upp víð í Afríku, eins og Kjarninn fjall­aði um í mars síð­ast­liðnum eftir að The Economist gerði jákvæða þróun í álf­unni að umtals­efni.

Herds of new tech start-ups and small businesses are being birthed across Africa http://t.co/Rbrgp7lEo1 pic.twitter.com/klX­VGXs­DNs


— The Economist (@TheEconomist) March 14, 2015

Eitt af því sem talið er að geti flýtt mikið fyrir fram­förum er hrað­ari útbreiðsla á snjall­símum. Afríka, sé litið á heild­ar­stöð­una í álf­unni sem er með 1,1 millj­arð íbúa, hefur setið eftir í þess­ari tækni­bylt­ingu og horfa stærstu síma­fram­leið­endur heims­ins nú til álf­unnar. Gert er ráð fyrir að 120 millj­ónir snjall­síma verði seldir í Afríku fyrir árið 2020, eða næstu fimm árum en um tutt­ugu pró­sent af þeim símum sem nú selj­ast í álf­unni kosta undir 100 Banda­ríkja­dölum eða sem nemur 13 þús­und krónum. Google hefur byrjað með sér­staka vöru­línu fyrir Afr­íku­markað sem heitir Infinix Hot 2, og á að falla vel að þörfum fólks víða í álf­unni, og byggir á Android One sím­anum. Google ætlar sér stóra hluti og vill leiða nauð­syn­lega og fyr­ir­sjá­an­lega breyt­ingu í Afríku með því að bjóða góðan og ódýran síma. En það verður ekki auð­velt því mesta mark­aðs­hlut­deildin í Afríku er nú á gráum mark­aði með kín­verska síma, að mestu leyti eft­ir­lík­ingar. Þeir eru ekki eins og góðir og sím­arnir frá Google eða Apple, en þeir kosta lítið sem ekk­ert og með þeim er hægt að gera næstum allt þar sem hinn venju­legi neyt­andi gerir. Nathan Eagle, sér­fræð­ingur hjá tækni­fyr­ir­tæk­inu Jana í Boston, segir í við­tali við Quartz að margir geri sér ekki grein fyrir því hversu stór grái mark­að­ur­inn með snjall­síma í Afríku sé. Það verði mikil ögrun að yfir­stíga þá hindrun, en með meiri útbreiðslu og þekk­ingu, til við­bótar við sam­keppn­is­hæft verð, þá geti árangur náðst til­tölu­lega hratt.

Good night ✨ @juliemasr #egypt­byme A photo posted by EGYPT (@egypt) on Aug 9, 2015 at 3:33pm PDT

Ásýnd sem kann að breytast


Ímynd Afríku verður lík­lega seint komin á þann stað í hugum fólks, eftir þá mikla erf­ið­leika sem álfan hefur gengið í gegnum und­an­farna ára­tugi, að þar séu mikil og spenn­andi tæki­færi. Fjár­festar hafa margir hverjir kveikt á þessu, og aukn­ing í erlendri fjár­fest­ingu víðs­vegar í álf­unni er til marks um það. En hjá almenn­ingi mun þessi sýn úr Afríku, það er ásýnd áræðni og fram­þró­unar, lík­lega helst koma fram eftir því sem tækni, sem þykkir sjálf­sögð í þró­uðum ríkjum, breið­ist út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár