Tæknifyrirtæki spretta upp víða í Afríku

Tækni­fyr­ir­tæki hafa verið að spretta upp víð í Afríku að und­an­förnu, einkum og sér í lagi á stöðum þar sem yfir­völd á hverju svæði hafa komið upp nýsköp­un­ar­mið­stöðvum fyrir tækni­fyr­ir­tæki (Tech Hubs). Í þeim geta frum­kvöðlar fengið vinnu­að­stöðu og tekið fyrstu skrefin við stofnun fyr­ir­tækja sinna, einkum hug­bún­aðar- og tækni­fyr­ir­tækja ýmis konar.

Leiguverðið hátt, en launin lág


Í umfjöllun um þetta í The Economist, kemur fram að mörg þess­ara fyr­ir­tækja þyki vera spenn­andi fjár­fest­inga­kostir. Munar ekki síst um það, að grunn­rekstr­ar­kostn­aður fyr­ir­tækj­anna er lít­ill, í alþjóð­legum sam­an­burði, og tæki­færi til vaxtar til staðar. Hins vegar eru sumir þættir erf­iðir, eins og húsa­leiga og slæmar inter­netteng­ingar. Húsa­leiga tækni­fyr­ir­tækja í Nígeríu, fjöl­menn­asta ríki Afríku, er á bil­inu 40 til 70 Banda­ríkja­dalir á fer­metr­ann, eða sem nemur um 5.600 krónum. Þetta gerir mörgum fyr­ir­tækjum erfitt um vik. Húsa­leiga í Úganda er mun lægri, 15 til 16 Banda­ríkja­dalir á fer­metr­ann, eða sem nemur 2.100 til 2.240 krónum. Á móti eru laun mun lægri en víða ann­ars staðar í heim­inum þar sem tækni­fyr­ir­tæki hefja oft starf­semi, eins og í Síli­kondalnum í Kali­forníu.

Ryður sér til rúms


Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Alþjóða­bank­anum (World Bank) eru um 90 nýsköp­un­ar­mið­stöðvar fyrir tækni­fyr­ir­tæki víða í Afríku, í umfjöllun The Economist kemur fram að í reynd séu þær mun fleiri, oft innan um aðra starf­semi í skrif­stofu­rýmum víða í álf­unni. Þannig sé nýsköpun á sviði tækni að ryðja sér til rúms á svæðum þar sem hún hefur ekki verið áður.
Herds of new tech start-ups and small businesses are being birthed across Africa http://t.co/Rbrgp7lEo1 pic.twitter.com/klX­VGXs­DNs

— The Economist (@TheEconomist) March 14, 2015

Afríka að breytast í stórveldi?

Afríka er í hugum margra tákn­mynd fátæktar í heim­inum, og erf­ið­leika. En hlut­irnir eru að breyt­ast hratt víðs vegar í álf­unni, þó hörm­ungar fátæktar séu aldrei langt undan. Íbúar álf­unnar eru 1,2 millj­arðar, eða sem nemur rúm­lega tvö­földum íbúa­fjölda Evrópu. Fjöl­menn­asta ríkið álf­unnar, Nígeríu, er með íbúa­fjölda upp á 177 millj­ónir, sem er meira en sem nemur öllum íbúa­fjölda Suður-Evrópu, það er Spánar, Ítalíu, Portúgal og Grikk­lands. Hag­vöxtur er mik­ill víða í álf­unni, einkum í þró­uð­ustu ríkjum, eins og Nígeríu og Suður-Afríku. Í Nígeríu, stærsta hag­kerfi Afríku, var hag­vöxtur 6,2 pró­sent í fyrra, en 4,1 pró­sent í Suður-Afríku.

Einn þeirra sem talað hefur fyrir því að nýsköpun og tækni­leg fram­þróun geti verið lyk­ill­inn að því að útrýma eða vinna gegn fátækt í Afríku er Bill Gates, stofn­andi Microsoft. Í við­tali við tækni­vef­inn The Verge, þar sem hann var gesta­rit­stjóri í febr­úar, sagði hann meðal ann­ars að með banka­þjón­ustu í gegnum snjall­síma ætti að vera hægt að stór­efla fjár­fest­ingar í Afríku á til­tölu­lega skömmum tíma.

https://www.youtube.com/watch?v=i0FYkGpVpdQ

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár