Þórólfur: Erum að beita öllum ráðum í bókinni

Sótt­varna­læknir seg­ist ekki áforma að mæla með rýmkuðum reglum um fjölda­tak­mörk á sam­komum á næst­unni. Líklega muni núver­andi tak­mark­anir, sem miða við 500 manns, gilda út ágúst.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Bára Huld Beck

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir telur óráð­legt að rýmka reglur um hámarks­fjölda á sam­komum á næst­unni. Í dag er 500 manns leyfi­legt að koma saman og telur sótt­varna­læknir lík­legt að hann muni mæla með óbreyttum fjölda út ágúst. Hins vegar segir hann til skoð­unar að rýmka opn­un­ar­tíma vín­veit­inga­staða um næstu mán­aða­mót: Þeim er nú heim­ilt að hafa opið til klukkan 23.

Ekkert inn­an­lands­smit hefur greinst hér á landi í heila viku. Frá 15. júní, er landamæra­skimun hófst, hafa tæp­lega 25 þús­und far­þegar verið skimaðir. Tólf hafa greinst með virkt smit og beðið er eftir mótefna­mæl­ingu hjá tveimur. Tæplega fimm­tíu hafa greinst með gam­alt smit og því ekki taldir smit­andi.

Ellefu inn­an­lands­smit hafa greinst frá 15. júní og öll tengj­ast þau ferða­mönnum sem hingað hafa komið með veiruna. Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag sagði sótt­varna­læknir að ennþá væri því mjög lítið smit til staðar í sam­fé­lag­inu. Tekist hefði að upp­ræta smit sem komu upp í tengslu við komu ferða­mann­anna.

Þórólfur sagði að áfram verði lögð áhersla á skimun við landa­mærin. „Við munum halda áfram á sömu braut.“

Hann fór svo yfir gagn­rýni sem komið hefur frá læknum, m.a. á Land­spít­al­anum, á landamæra­skimun­ina. Sagði hann mál­efna­lega gagn­rýni af hinu góða og að hún væri hjálp­leg.

Gagn­rýnin hefur að sögn Þórólfs verið marg­vís­leg og ekki eins­leit. Því sé erfitt að átta sig á hvort um eina rödd sé að ræða eða fleiri. Sagði hann meg­in­gagn­rýn­ina vera þá að nið­ur­stöður skimun­ar­innar gæfu til­efni til að hætta henni. Því væri hann ekki sam­mála.„Ef við hefðum ekki gert þetta þá hefðum við ekki vitað neitt. Ekki vitað hvort það væru margir eða fáir [smit­aðir] eða hvernig staðan væri og þá hefðum við haldið áfram að þrasa og ríf­ast um það án þess að hafa nokkra vit­neskju í hand­rað­anum. Ég held að þetta sé ómet­an­legt.“

Dæmin sýni að illa hefði getað farið ef ekki hefði verið ski­mað. Við skimun­ina hafi feng­ist þekk­ing sem yrði notuð til að taka ákvarð­anir um breyttar áherslur í fram­tíð­inni. „Við viljum halda áfram skimun út júlí og sjá hvort og hvaða ferða­menn eru að bera með sér veiruna.“ Til greina komi svo að hætta að skima fólk sem er að koma frá ákveðnum löndum.

Fjarri öllu lagi

Þórólfur sagði að ein­hverjir hafi sagt að kostn­aður sem falli á Land­spít­al­ann vegna skim­an­anna hlaupi á millj­örðum. „Þetta er tala sem er fjarri öllu lagi.“ Hann sagði kostnað spít­al­ans fyrst og fremst fel­ast í upp­færslu tækja­bún­aðar sem hafi verið tíma­bær fyrir löngu.

Þeirri gagn­rýni að það væri ekki hlut­verk spít­al­ans að taka þátt í skimunum á ein­kenna­lausum ein­stak­lingum vís­aði Þórólfur í reglur um að rann­sókn­ar­stofur spít­al­ans hafi hlut­verki að gegna fyrir landið allt. Einnig beri að stunda skimun fyrir smit­sjúk­dómum sem hafi þýð­ingu fyrir almanna­heill. „Alrangt“ væri að halda því fram að það sé ekki hlut­verk Land­spít­al­ans að taka þátt í þessum aðgerðum. „Ýmislegt í gagn­rýni lækna á Land­spít­ala er rétt­mætt en annað er bein­línis rangt.“

Einnig minnti sótt­varna­læknir á að frá og með 13. júlí verða Íslend­ingar og aðrir búsettir hér að fara í skimun við kom­una eins og nú er en svo í það sem kallað er „heim­komusmit­gát“ – sem er ákveðin útfærsla á sótt­kví – í 4-6 daga. Að þeim tíma loknum verður fólki boðið í aðra sýna­töku og ef nið­ur­staðan er nei­kvæð „eru ein­stak­lingar frjálsir ferða sinna,“ sagði Þórólfur. Þetta er að hans sögn gert til að tryggja að ein­stak­lingar sem fá nei­kvæða nið­ur­stöðu úr skimun séu ekki raun­veru­lega smit­aðir og geti smitað aðra eins og þegar hefur gerst.

Hins vegar sé ekki talin þörf á því að beita tvö­faldri skimun á hinn almenna ferða­menn, ekki frekar en var gert í mars og apríl. „Í mínum huga verður skimun á landa­mærum ennþá mik­il­væg í hlut­verki okkar að reyna að lág­marka áhætt­una á frek­ari far­aldri COVID-19. [...] Við erum að beita öllum ráðum í bók­inni til að lág­marka það að smit breið­ist út hér inn­an­lands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár