Kerfisbreytingar í sjávarútvegi voru á teikniborðinu

Þrátt fyrir að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður fimm flokka hafi í tvígang siglt í strand þá voru allir flokk­arnir sam­mála um að gera kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi. Útfærsl­urnar voru mis­mund­andi, eins og stefnur flokk­anna raunar einnig.

Tillögur í sjáv­ar­út­vegs­málum sem komu fram Viðreisn í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum flokk­anna fimm, sem sigldu að lokum í strand, gerðu ráð fyrir að 3 til 4 pró­sent afla­heim­ilda ár hvert yrðu seldar á upp­boði til 33 ára. Þetta kemur fram í gögnum sem fóru á milli flokk­anna fimm í við­ræð­unum sem Kjarninn hefur undir höndum.

Kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi voru því á teikni­borð­inu en um þær deildu flokk­arnir, ekki síst Vinstri græn og Viðreisn. Vinstri græn töldu 33 ár of langan tíma og voru auk þess hrædd um að upp­boðin gætu grafið undan sjáv­ar­út­vegi víða á lands­byggð­inni, ef þau yrðu ekki rétt útfærð. Fyrir þeim sjón­ar­miðum töl­uðu raunar allir flokkar.

Í gögnum, þar sem text­inn er rit­aður eins og um mál­efni rík­is­stjórn­ar­innar sé að ræða, segir að núgild­andi fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi hafa skilað miklum ávinn­ingi fyrir íslenskt sam­fé­lag. „Það hefur leitt til mik­illar hag­ræð­ingar í sjáv­ar­út­vegi og [...] stuðlað að sjálf­bærni fisk­veiða á Íslands­miðum. Þrátt fyrir þennan árangur hefur ekki ríkt sam­fé­lags­leg sátt um þetta fyr­ir­komu­lag. Aðallega hefur verið deilt um eðli­legt gjald fyrir sam­eig­in­lega auð­lind og tak­mark­aðan aðgang nýrra aðila að grein­inni. Til þess að koma til móts við þessi sjón­ar­mið og tryggja stöð­ug­leika í grein­inni mun rík­is­stjórnin ráð­ast í kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi til að tryggja þjóð­inni eðli­legt gjald fyrir auð­lind­ina og til að tengja það betur afkomu grein­ar­innar. Sann­gjarn­asta leiðin til þess er að bjóða út aðgang að auð­lind­inni og selja hæst­bjóð­endum eftir nánar útfærðum reglum. Rík­is­stjórnin stefnir á að inn­leiða í þremur þrepum upp­boð á veiði­heim­ildum þar sem tak­markið er að 3 - 4% veiði­heim­ilda hvers árs verði seldar í opnu upp­boðs­ferli til 33 ára. Meðan upp­boð veiði­heim­ilda verður ekki komið til fullu til fram­kvæmda verður farin blönduð leið til upp­boðs og veiði­gjalda,“ segir í gögn­unum.

Píratar, Sam­fylk­ingin og Björt fram­tíð voru nær Viðreisn í þessum mála­flokki en Vinstri græn, sem höfðu efa­semdir um þessar til­lögur.

Stefna Sam­fylk­ing­ar­innar rerir raunar ráð fyrir kerf­is­breyt­ingu í sjáv­ar­út­vegs­málum og í mál­efna­skrá flokks­ins fyrir kosn­ingar er rætt um að 10 til 20 pró­sent afla­heim­ilda verið boðnar upp ár hvert, en ekki er sér­stak­lega vikið að því miðað við hvaða ára­fjölda eigi að miða. Píratar styðja upp­boð á afla­heim­ildum og Björt fram­tíð líka, en í stefnu­skrá þess flokks er talað um að mark­að­ur­inn sé nýttur til að „greinin greiði sann­gjarnt gjald fyrir aðgengi að mið­unum.“

Stefna Pírata lang­sam­lega er rót­tæk­ust, sé mið tekið af yfir­lýstri stefnu flokks­ins eins og hún birt­ist á vefnum, en þar er talað um að „allar heim­ildir“ fari á markað.

Í stefnu­skrá Vinstri grænna er einnig talað fyrir mögu­leik­anum á upp­boði afla­heim­ilda, og horft sér­stak­lega til reynslu Fær­ey­inga í þeim efnum. Í stefnu­skránni er vikið að þessu sér­stak­lega með þessum orðum: „Fylgst verði vel með reynslu Fær­ey­inga við upp­boð á afla­heim­ildum þar sem til greina kemur að hluti afla­heim­ilda verði boðnar upp á mark­aði hér á landi. Auð­linda­gjald verði tekið af sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í hlut­falli við afkomu grein­ar­innar. Auka þarf strand­veiðar og ráð­stöfun heim­ilda til að verja byggðir lands­ins.“

Nefnd skipuð af sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Fær­eyja skil­aði 3. októ­ber síð­ast­lið­inn ítar­legri skýrslu um skipan fisk­veiði­stjórn­unar en núver­andi fisk­veiði­stjórn­un­ar­lög falla úr gild í byrjun árs 2018. Nefndin leggur til upp­boðs­leið á veiði­heim­ildum og að sú leið verði var­an­lega fast­sett niður með lög­um. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þessar hug­myndir í frétta­skýr­ingu og bar þær saman við hug­myndir sem Jón Steins­son, hag­fræð­ingur við Columbia háskóla, og Þorkell Helgason, stærð­fræð­ingur, hafa talað fyrir.

Þrátt fyrir að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna fimm hafi nú í tvígang siglt í strand hefur sjaldan munað jafn litlu, í seinni tíð, að samið yrði um miklar kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi.

Þrátt fyrir að upp úr hafi slitnað - meðal ann­ars vegna deilna um hvernig ætti að útfæra breyt­ingar kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi - þá aðhyll­ast allir flokk­arnir miklar kerf­is­breyt­ingar í atvinnu­grein­inni og ekki úti­lokað að þær muni koma fram, með ein­hverjum hætti, ef það tekst á annað borð að koma saman rík­is­stjórn á næstu miss­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár