Um hvað snýst uppboðsleiðin? Horft til Færeyja

Eitt stærsta mál þess­ara kosn­inga snýst um hina svo­nefndu upp­boðs­leið eða mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi.

Nefnd skipuð af sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Færeyja skil­aði 3. októ­ber síð­ast­lið­inn ítar­legri skýrslu um skipan fisk­veiði­stjórn­unar en núver­andi fisk­veiði­stjórn­un­ar­lög falla úr gild í byrjun árs 2018. Nefndin leggur til upp­boðs­leið á veiði­heim­ildum og að sú leið verði var­an­lega fast­sett niður með lögum.

Útlit er að fyrir að ný rík­is­stjórn á Íslandi, sem tekur við völdum eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber næst­kom­andi, muni taka fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið til end­ur­skoð­unar, og huga sér­stak­lega að upp­boðs­leið. Í það minnsta fimm flokkar segj­ast opnir fyrir breyt­ingum í þá veru, Viðreisn, Píratar, Sam­fylk­ingin, Vinstri græn og Björt fram­tíð.

Skýrsla nefnd­ar­innar ber heitið „Ný og var­an­leg skipan fisk­veiði­mála fyrir Færeyjar“. Hún er ítar­leg, tæp­lega 250 síður, og er þar fjallað um helstu álita­mál sem Fær­ey­ingar standa frammi fyrir við stjórn fisk­veiða.

Lykilatriði til umfjöllunar

Nefnd­inni var með erind­is­bréfi ráð­herra falið að fjalla um öll lyk­il­at­riði í skipan fær­eysks sjáv­ar­út­vegs. 

Nefndin leggur til að árlega verði stór hluti fisk­veiði­heim­ilda boð­inn upp en rétt­ur­inn að afgang­inum fram­lengdur til árs í senn.

Þó skal það þannig gert að þegar frá upp­hafi renni auð­lind­arentan - sem fæst fram með upp­boð­unum - að fullu í lands­sjóð Fær­ey­inga. Lagt er til val á milli tveggja upp­boðs­leiða.

Hug­myndir um upp­boðs­leið við stjórnun fisk­veiða hér á landi sem komið hafa fram, meðal ann­ars hjá Þorkeli Helga­syni stærð­fræð­ingi og Jóni Steins­syni hag­fræð­ingi við Columbia háskóla, eru að grunni til svip­aðar þeim sem fjallað er um í skýrslu nefnd­ar­innar í Færeyjum.

Varfærin nálgun

Segja má að hug­mynd­irnar sem ræddar hafa verið mest hér á landi, séu var­færn­ari og tengj­ast hug­mynd­unum um fyrn­ingu veiði­heim­ilda og upp­boð á þeim heim­ildum sem þannig losna.

Má þar vísa til skýrslu sem Þorkell og Jón skrif­uðu fyrir stjórn­skip­aða nefnd um end­ur­skoðun á stjórn fisk­veiða sum­arið 2010, nánar til­tekið til þeirrar gerðar þar sem hluti afla­heim­ilda er boð­inn upp til árs í senn en með skertum for­leigu­rétti um fram­haldið.

Bæði í fær­eysku hug­mynd­unum og hug­myndum Jóns og Þorkels er gengið út frá afla­marks­kerfi til ráð­stöf­unar á leyfðum heild­ar­afla. Jafn­framt hafa hug­mynd­irnar það sam­merkt að í upp­hafi er gengið er út frá þeim heim­ildum sem útgerð­irnar hafa þá og þeim end­ur­út­hlutað með vissri skerð­ingu eða fyrn­ingu. Þessi skerð­ing haldi síðan áfram hlut­falls­lega á hverju ári.

Það sem þannig losnar verði boðið upp til árs í senn með fyr­ir­heiti um end­ur­út­hlutun en með fyrr­greindum skerð­ing­ar­á­kvæðum. Í báðum hug­mynd­unum má setja bjóð­endum skil­yrði, eins og að þeir verði að vera inn­lendir og setja megi því skorður hvað safn­ast megi á sömu útgerð,.

Hug­mynd­irnar eru ólíkar að því leiti að Fær­ey­ingar vilja bæði bjóða stærri hluta heim­ild­anna upp á hverju ári en Jón og Þorkell hafa talað fyrir. Enn­fremur fá núver­andi hand­hafar veiði­rétt­ind­anna enga fjár­hags­lega aðlögun í til­lögum Fær­ey­ing­anna, en í hug­myndum Jóns og Þorkels er núver­andi kvóta­höfum veitt meiri aðlögun að breyttu kerfi.

Draga má þennan afger­andi mun saman með eft­ir­far­andi punktum:

• Fær­ey­ingar vilja bjóða upp 20% heim­ild­anna á hverju ári en end­ur­út­hluta 80%. Í hug­myndum Jóns og Þorkels er gengið út frá mun hæg­ari inn­komu upp­boða, eða 8% á ári. End­ur­út­hlut­un­ar­hlut­fallið er að sama skapi hærra í þeirra til­lögum, eða 92%.

• Fær­ey­ingar veita þeim útgerðum, sem fyrir eru, engin grið. Enda þótt þeim sé gefin kostur á að fá 80% af fyrri heim­ildum end­ur­út­hlut­uðum – fram hjá upp­boð­unum – þurfa þeir að greiða fyrir þær heim­ildir fullt verð, það verð sem verður til á upp­boð­unum. Í hug­myndum Jóns og Þorkels fá núver­andi kvóta­hafar 92% rétt­inda sinna fram­lengd og það án nokk­urs end­ur­gjalds, en með árlegri skerð­ingu.

• Auð­lindaarð­ur­inn – sá umfram­arður sem verður til við nýt­ingu tak­mark­aðra en eft­ir­sóttra gæða – er strax í upp­hafi inn­heimtur að fullu í lands­sjóð­inn í til­lögum Fær­ey­inga. Í hug­myndum Jóns og Þorkels er aðeins 8% arðs­ins inn­heimtur á fyrsta ári og eftir að nýtt kerfi væri búið að vera í gildi í 9 ár skipt­ist þessi aukaarður enn að jöfnu milli sam­fé­lags­sjóða og útgerð­anna.

Að grunni til eru þær hug­myndir sem lagðar eru fram í skýrslu nefnd­ar­innar í Færeyjum svip­aðar þeim sem Jón og Þorkell hafa talað fyrir, nema hvað þau síð­ar­nefndu vilja fara hægar í sak­irnar til að tryggja að þessi kerf­is­breyt­ing gangi vel fyrir sig og tryggi almenn­ingi sann­gjarnt auð­linda­gjald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár