Segja Steingrím hafa reynt að misnota neyðarástand og ljúga í fjölmiðlum

Þingmenn Pírata segja Stein­grím J. Sig­fús­son, for­seta Alþingis, mis­nota neyð­ar­á­standið sem nú ein­kennir þing­störfin til þess að láta mál rík­is­stjórn­ar­innar renna mjúk­lega í gegn. Þau ásaka hann um óheil­indi og segja hann ljúga upp á stjórn­ar­and­stöð­una.

Tveir þing­menn Pírata segja að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sé að ljúga upp á stjórn­ar­and­stöð­una í fjöl­miðlum og vísa þar í við­tal við hann á mbl.is. Þar sagði Stein­grímur meðal ann­ars að stjórn­ar­and­staðan hefði not­fært sér aðstæður á Alþingi í morgun „til þess að geta farið í mik­inn slag og það er að mínu mati mjög veik máls­ástæða – afar veik máls­ástæða.“

[links]Jón Þór Ólafs­son, þing­maður Pírata, gagn­rýndi Stein­grím harð­lega í pontu á Alþingi í upp­hafi þing­fundar í dag fyrir að halda dag­skrá þings­ins áfram þrátt fyrir sam­komu­bann. Stjórn­ar­and­staðan benti á að á dag­skrá væru umdeild mál rík­is­stjórn­ar­innar sem þyrftu umræðu og vildu þing­menn innan hennar meina að Stein­grímur væri að mis­nota aðstæður til að koma málum rík­is­stjórn­ar­innar í gegn. Það mál á dag­skránni sem vakti mesta reiði var frum­varp Sig­urðar Inga Jó­hanns­son­ar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, um vega­fram­kvæmd­ir.

Stein­grímur sleit í kjöl­farið þing­fund­inum án þess að óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir til ráð­herra færu fram og að fyr­ir­liggj­andi mál sem voru á dag­skrá yrðu tekin fyrir.

[adspot]Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, deilir við­tali mbl.is við Stein­grím á Facebook og skrifar:„Ósvífnin i sögu­skýr­ingum for­seta hefur náð nýjum hæðum. Hann veit mæta­vel hvað gerð­ist. Hann reyndi að mis­nota neyð­ar­á­standið sem núna ein­kennir þing­störfin til þess að láta mál rík­is­stjórn­ar­innar renna mjúk­lega í gegn og inn í nefnd, vit­andi mæta­vel að þing­menn ættu erf­ið­ara með, og sé jafn­vel ómögu­legt, að sinna sínu aðhalds­hlut­verki - nema auð­vitað með því að fjöl­menna niðri á þingi, gegn öllum góðum ráðum og almennri skyn­semi. Það sem svíður hins­vegar ennþá meira er botn­laus óheið­ar­leik­inn í sögu­skýr­ingum for­seta í fjöl­miðlum. Það er ekk­ert minna en lygi að stjórn­ar­and­staðan beri nokkra ein­ustu ábyrgð á því að ekki hafi verið haldnar óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir eða umræða um störf þings­ins.“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, sam­flokks­kona Helga, tók í sama streng í stöðu­upp­færslu á Facebook. Þar sagð­ist hún hafa „upp­lifað ýmsa óheið­ar­lega og ömur­lega taktík af hálfu þing­for­seta í gegnum tíð­ina.[...]En að hann skuli dirfast að ljúga við­stöðu­laust upp á stjórn­ar­and­stöð­una í fjöl­miðlum, áður en hann lætur svo lítið en að svara beiðni þeirra um fund eftir dramakast dags­ins í dag, finnst mér virki­lega ömur­legt. Þessi fram­koma er svo yfir­gengi­lega óheið­ar­leg af hálfu for­seta að hann hefur slegið nýtt met.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár