Flestir Íslendingar breyttu ekki áfengisnotkun sinni í faraldrinum

Fimmtán pró­sent Íslend­inga drukku oftar eða mun oftar en venju­lega í mars og apríl en flestir breyttu þó ekki áfeng­is­notkun sinni á þessu tíma­bili.

Flestir breyttu ekki áfeng­is­notkun sinni á tíma­bil­inu mars til apríl 2020, eða 56 pró­sent, en þriðj­ungur hefur þó notað minni áfengi sem virð­ist vera í sam­ræmi við nið­ur­stöður frá öðrum löndum. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup sem emb­ætti land­læknis óskaði eftir til að athuga hvort breyt­ingar yrðu á áfeng­is­neyslu full­orð­inna á tímum COVID-19.

Tæplega 30 pró­sent sögð­ust drekka sjaldnar eða mun sjaldnar en venju­lega en 15 pró­sent oftar eða mun oftar. Rúmlega 30 pró­sent sögð­ust drekka færri drykki en venju­lega og 14 pró­sent sögð­ust drekka fleiri drykki en venju­lega.

[adspot]

Þegar spurt var um ölvun, eða hvort við­kom­andi hafi drukkið fleiri en fimm drykki við sama til­felli, sögð­ust um 35 pró­sent gera það aðeins eða mun sjaldnar en venju­lega og aðeins 3 pró­sent oftar en venju­lega. Alls svör­uðu 850 manns könn­un­inni.

Drykkja skammgóður vermir

[links]Á vef­síðu emb­ættis land­læknis kemur fram að það sé ánægju­legt að sjá að flestir lands­menn hafi farið eftir til­mælum að auka ekki áfeng­is­notkun sína á meðan far­ald­ur­inn gekk yfir.

Alma Möller land­læknir ítrek­aði á dag­legum blaða­manna­fundi þann 29. mars að ekki væri gagn­legt að nota áfengi til að takast á við erf­iðar til­finn­ingar eins og áhyggjur og kvíða – eða til að slaka á. Það væri skamm­góður vermir sem gerði ógagn.

Fram kom í fréttum sömu viku að sala á áfengi í Vín­búð­unum hefði auk­ist um 24 pró­sent í lítrum talið síðan sam­komu­bannið hóf­st, miðað við sömu vikur í fyrra. Við­skipta­vinum hefði þó ekki fjölgað eins, svo hver og einn keypti meira. Lítra­sala á rauð­víni og hvítvíni hefði auk­ist um helm­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár