Danski forsætisráðherrann vill hemja öfgamenn

Þættir TV2 í Danmörku um starf­semi í bæna­húsum múslima þar í landi hafa vakið mikla athygli. For­sæt­is­ráð­herr­ann boðar til fundar eftir páska um það hvernig sé hægt að hemja öfga­menn.

Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur hefur boðað for­menn allra flokka á danska þing­inu, Fol­ket­inget, á fund að loknu páska­leyfi þing­manna. For­sæt­is­ráð­herr­ann vill ræða og finna leiðir til að stöðva öfga­menn (eins og hann kemst að orði) í að breiða út boð­skap sinn í Danmörku. Slíkt er þó hæg­ara sagt en gert.

Danskir múslimar eiga og reka fjöl­mörg bæna-og sam­komu­hús í Danmörku. Samkvæmt dönskum lögum er öllum heim­ilt að iðka sína trú og allir trú­ar­hópar eiga sama rétt til starf­semi innan ramma laga og reglna í land­inu. Danskir múslimar eru mjög trú­ræknir, standa þétt saman og margir úr þeirra hópi umgang­ast ein­göngu sína eigin trú­bræður. Á und­an­förnum árum hefur múslímum í Danmörku fjölgað mjög og þeir hafa iðu­lega orðið að deilu­efni á danska þing­inu.

Sjónvarpsþættir TV2

Fyrir skömmu sýndi danska sjón­varps­stöðin TV2 fjóra þætti um starf­semi í sam­komu- og bæna­húsum (moskum) múslima í Danmörku. Félags­starf­semi múslima og bæna­hald þeirra er múslimum einum heim­ilt að sækja og stunda. Starfs­fólk sjón­varps­stöðv­ar­innar gat því ekki fengið leyfi til að vera við­statt, hvorki bæna­stundir né annað það sem fram fer í sam­komu- og bæna­hús­unum. Til þess að kom­ast að því hvað fram færi á sam­komum múslima var þess vegna brugðið á það ráð að nota falda mynda­vél. Mynda­vélin skráði bæði hljóð og mynd.

Kóraninn og konurnar

Íslamskir trú­ar­leið­togar, og predik­arar, í Danmörku verja miklum tíma í að fræða söfnuð sinn um Kóraninn, helgi­rit múslíma. Í bæna­hús­unum er Kóraninn les­inn og útskýrður, rætt um efni hans og inni­hald. Í áður­nefndum sjón­varps­þáttum vöktu sér­staka athygli Dana útskýr­ingar predik­ara í átta moskum, þar á meðal Abu Bilal, sem starfar við Grimhöj mosk­una í Árósum, um konur. Í Kór­an­inum stendur að karlar megi eiga fleiri en eina konu og einnig að verði kona upp­vís að hjú­skap­ar­broti skuli hún grýtt til bana. Þetta tvennt brýtur algjör­lega í bága við dönsk lög og í upp­tök­unni með földu mynda­vél­inni segir predik­ar­inn frá því en und­ir­strikar svo texta Kór­ans­ins. Abu Bilal er þekktur predik­ari sem var dæmdur til að greiða sekt vegna ummæla í mosku í Berlín sum­arið 2014 þar sem hann hvatti til morða á gyð­ingum.

Í sjón­varps­þáttum TV2 var einnig fjallað um félags­starf­semi á vegum sam­taka múslima í Danmörku. Samkvæmt dönskum lögum eiga slík sam­tök rétt á styrkjum til félags­starf­semi. Þegar útsend­ari TV2, kona, fór í sam­komu­hús og félags­heim­ili múslima og ætl­aði að taka þátt í, og kynna sér, frí­stunda­starf sem aug­lýst var að þar færi fram (og til­greint er í styrkjaum­sóknum) greip hún í tómt. Þar var engin lík­ams­rækt í boði, ekki heldur kennsla í sauma­skap og ýmsu fleiru sem sam­kvæmt stunda­skrá átti að vera í boði. „Er ekki lík­ams­rækt hér?“ spurði hún á einum staðnum. „Lík­ams­rækt, nei“ var svarið. „Hvað fer hér fram?“ spurði útsend­ar­inn. „Við lesum Kóraninn eins og alltaf á þessum tíma.“

Mikil athygli og hörð viðbrögð

Sjón­varps­þætt­irnir vöktu mikla athygli, langt út fyrir danska land­steina, og danskir stjórn­mála­menn lýstu undrun sinni á því sem þeir höfðu þar heyrt og séð. Sumir þeirra sögðu það með ein­dæmum að danska ríkið og sveit­ar­fé­lög styrktu slíka starf­semi og nokkrir gengu jafn­vel svo langt að krefj­ast þess að bæna-og sam­komu­húsum múslima yrði lokað á stund­inni. Margir rifj­uðu líka upp ummæli sumra for­ystu­manna múslima sem höfðu lýst stuðn­ingi við ISIS sam­tökin svo­nefndu, meðal ann­ars í þætti í DR, danska sjón­varp­inu, í jan­úar í fyrra.

Nokkrum dögum eftir að sein­asti þátt­ur­inn var sýndur í TV2 hitt­ust helstu trú­ar­leið­togar múslima í Danmörku (31 tals­ins) til að ræða þætt­ina. Þeir gagn­rýndu sjón­varps­stöð­ina og þætt­ina sem þeir sögðu til þess fallna að ala á óvild í garð múslima. Þessi afstaða varð ekki til að draga úr gagn­rýni stjórn­mála­manna sem sögðu að múslima­leið­tog­arnir væru greini­lega gjör­sneyddir skiln­ingi á dönsku sam­fé­lagi.

Forsætisráðherrann boðar fund

Við umræður í danska þing­inu síð­ast­lið­inn þriðju­dag bauð Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra for­mönnum stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á þingi til fundar eftir páska. Ráð­herr­ann sagði í þing­inu að það væri deg­inum ljós­ara að margir inn­flytj­endur, sem komið hefðu til lands­ins hefðu ekki aðlag­ast dönsku sam­fé­lagi. Ástæður þess væru bæði margar og flóknar og engu einu um að kenna. „Þótt hér í Danmörku ríki trú­frelsi og hver og einn hafi rétt á að iðka sína trú getum við ekki unað við að ákveðnir hópar boði kenn­ingar og siði sem fara í bága við stjórn­ar­skrá lands­ins og mann­rétt­indi,“ sagði ráð­herr­ann.

For­sæt­is­ráð­herr­ann nefndi í ræð­unni í þing­inu nokkur atriði sem nefnd hefðu verið í því skyni en sagði jafn­framt að í hita augna­bliks­ins segðu menn ýmis­legt sem ekki væri kannski fram­kvæm­an­legt við nán­ari athugun. „Ein­hverjir hafa sagt að setja ætti reglur um að allar predik­anir skuli fara fram á dönsku. Þá myndum við vissu­lega skilja hvað mør­kemændene siger! En hvað með frændur okkar Norðmenn og Svía og bresku prest­ana?“ sagði ráð­herr­ann. Þótt hann nefndi ekki Íslend­inga í þing­ræð­unni yrði sjálf­sagt sama upp á ten­ingnum þar. Predik­anir á dönsku í íslenskum messum í Danmörku myndu ekki mæl­ast vel fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár