Segja Sigmund Davíð fara með rangfærslur um loftslagsmál

Formaður Mið­flokks­ins gerði lofts­lags­mál að umtals­efni í ræðu sinni á Alþingi í gær. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands gera ýmsar efn­is­legar athuga­semdir við mál hans og telja meðal ann­ars að hann hafi rugl­ast á veð­ur­fræði­stofn­unum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, fjall­aði um lofts­lags­mál í umræðu í gær­kvöldi um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra. Sagði hann að lofts­lags­málin væru vissu­lega stórt og mik­il­vægt mál en þau ættu það sam­eig­in­legt með öðrum þeim málum sem vekja mesta athygli að þeir sem tala mest um þau nálgist þau oft á kol­rangan hátt.

Hann sagði jafn­framt að Alþjóða­veð­ur­fræði­stofn­unin hefði nýlega varað við „ofstæki í lofts­lags­málum”. Þar vitn­aði hann í Global Warming Policy Forum (GWPF), bresk sam­tök sem afneita vís­inda­legum nið­ur­stöðum um loft­lags­breyt­ingar. Í til­kynn­ingu frá Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum Íslands segir að um þekkta svindl­ara sé að ræða. Þá benda sam­tökin á að í nýlegri frétta­til­kynn­ingu frá GWFP segi að David Attenborough hafi falsað atriði í mynd sinni Our Planet.

„GWFP er alls óskyld Veð­ur­fræði­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, WMO, en GWFP flaggar gjarnan lógó-i WMO og höf­uð­paur­inn titlar sig sem WMO Secretary General. Öruggt er að WMO hefur ekki varað við „ofstæki í lofts­lags­málum“,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Segir meiri byggð en áður og tjónið því meira

Sig­mundur Davíð sagði enn fremur í ræðu sinni að for­sæt­is­ráð­herra hefði haldið því fram að felli­byljir væru orðnir tíð­ari og öfl­ugri en áður. „Munurinn liggur í því að nú er mun meiri byggð en áður á þeim svæðum þar sem felli­byljir eru algeng­astir og tjónið því meira,” sagði hann.

Þá benda Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands á að í frétta­til­kynn­ingu WMO frá 3. sept­em­ber síð­ast­liðnum um tengsl lofts­lags­breyt­inga og felli­bylja, segi að svæði sem liggja lágt við strönd­ina séu við­kvæm fyrir áhrifum felli­bylja sem orsak­ist af rign­ingum, miklu vatns­flæmi, og sér­stak­lega af óveðri sem magn­ist vegna hækk­unar yfir­borðs sjávar vegna lofts­lags­breyt­inga. Þá segi enn fremur að felli­byljir muni lík­leg­ast aukast á 21. öld­inni af völdum hlýn­unar af manna­völdum.

„Hefur sig upp með innihaldslausu tali“

„Nýverið kom fram að litlar efa­semdir eru meðal lands­manna um lofts­lags­breyt­ingar. Svo hefur verið í mörg ár. Þetta veit Sig­mundur Davíð mæta vel og í stað þess að and­æfa vís­ind­unum beint vitnar hann í þekkta svindl­ara og hefur sig upp með inni­halds­lausu tali um nauð­syn þess „að beita vís­indum og skyn­semi”,“ segir í til­kynn­ingu Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands.

Samtökin segj­ast enn fremur vona inni­lega að þing­menn varist slíkan mál­flut­in­ing í umræðum um lofts­lags­vána – neyð­ar­á­stand sem alþjóða­sam­fé­lagið standi frammi fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár