Starfsemi bandaríska ríkisins stöðvuð – nær til sendiráðsins á Íslandi

Rík­is­rekstur Banda­ríkj­anna hefur verið stöðv­aður vegna patt­stöðu um fjár­veit­ingar milli Demókrata og Repúblik­ana. Banda­ríska sendi­ráðið á Íslandi seg­ist munu halda áfram að sinna vega­bréfs­á­rit­unum eftir því sem aðstæður leyfa.

„Vegna stöðv­unar á fjár­veit­ingum verður þessi Facebook-aðgangur ekki upp­færður reglu­lega fyrr en starf­semi hefst að fullu á ný, að und­an­skildum áríð­andi upp­lýs­ingum um öryggi og almanna­varnir.“

Þetta segir á Facebook-síðu banda­ríska sendi­ráðs­ins á Íslandi. Þó er þar tekið fram að starf­semi vegna vega­bréfa og vega­bréfs­á­rit­ana muni halda áfram í sendi­ráð­inu eftir því sem aðstæður leyfa. 

Starf­semi banada­ríska rík­is­ins var stöðvuð rétt eftir mið­nætti í Washington, í fyrsta sinn frá árinu 2018, eftir að Repúblikönum og Demókrötum tókst ekki að kom­ast að sam­komu­lagi um fjár­veit­ingar við upp­haf nýs fjár­hags­árs. 

Stöðv­unin hefur víð­tæk áhrif í Banda­ríkj­unum en um 40 pró­sent opin­berra starfs­manna, um 800 þús­und manns, verða sendir í launa­laust leyfi. 

Áður en ljóst var að stöðv­unin tæki gildi sagði Donald Trump Banda­ríkja­for­seti að ef hún ætti sér stað gæti hann gert „óaft­ur­kræfa hluti“ á meðan henni stæði. 

…
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Sérkennileg staða í boði eins umdeildasta forseta BNA. Hann vill efla hermennsku sem mest og hefur i hyggju að beita honum innanlands gegn andstæðingum sínum.
    Er þetta ekki augljóslega skref til hernaðareinræðis?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár