Spenna í loftinu - Tíu atriði úr ótrúlegri kosningabaráttu

Kjör­dagur er runn­inn upp í Banda­ríkj­unum, og mun liggja fyrir í kvöld eða nótt, hver verður næsti for­seti Banda­ríkj­anna.

Kosn­inga­bar­átta Hillary Clinton, fram­bjóð­anda Demókrata, og Donald Trump, fram­bjóð­anda Repúblik­ana, hefur verið for­dæma­laus af mörgum ástæðum. Nú á kjör­degi er staðan veru­lega spenn­andi, sé mið tekið af könn­unum.

Vefurinn FiveT­hir­tyEight telur að Hillary Clinton hafi náð byr í seglin á síð­ustu dögum, eftir að banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI sendi frá sér til­kynn­ingu um að ekki væri til­efni til sak­sóknar gegn Hillary vegna tölvu­pósta hennar, þar sem ekk­ert fynd­ist sem benti til þess að hún hefði brotið lög, eins og Donald Trump hefur marg­ít­rekað.

1. FiveT­hir­tyEight metur nú um 70 pró­sent líkur á sigri Hillary, en 30 pró­sent á að Trump sigri. Staðan er þó tví­sýn og ljóst þykir, að kosn­inga­þátt­taka mun ráða miklu um það hvernig fer að lokum. Sér­stak­lega er staðan spenn­andi í ríkjum eins og Nevada, Ohio, Norður-Karólínu og Flórída. Þar sýna kann­anir hnífjafna stöðu, en lík­urnar hafa þó verið með Trump þar und­an­farna daga. Ljóst er að loka­sprett­ur­inn mun ráða miklu um hvernig fer í kosn­ing­unum í dag.

2. Kosn­inga­bar­áttan – yfir langt tíma­bil – ein­kennd­ist af miklum átökum. Fyrst innan raða Demókrata og Repúblik­ana, og síðan und­an­farna sex mán­uði á milli fram­boða Hillary og Trumps. Bernie Sanders háði mik­inn slag við Hillary en tap­aði að lokum. Mikil heift var í bar­átt­unni, og tal­aði Sanders fyrir því að Hillary væri „hluti af elít­unni“ og „kerf­inu“ sem þyrfti að breyta. Á fundi Demókrata, þar sem Hillary var útnefndur full­trúi flokks­ins, voru aðdá­endur Sanders áber­andi og gagn­rýndu bak­land Hillary harð­lega fyrir að svífasta einskis til að koma höggi á Sanders. Þrátt fyrir allt, hvatti Sanders sitt fólk til að styðja Hillary og koma í veg fyrir að Trump næði kjöri.

3. Hjá Repúblikönum var slag­ur­inn bæði harður og óvæg­inn. Trump not­aði stór orð um and­stæð­inga sína, einkum og sér í lagi Ted Cruz, sem hann sagði lygara og ves­al­ing. Trump gekk síðan lengra og sagði faðir Cruz hafa verið við­ráð­inn morðið á John F. Kennedy árið 1963. Cruz sagði Trump þá hafa gengið of langt, en slag­ur­inn hélt þó áfram alveg þar til í lokin, en Trump sigr­aði for­kosn­ing­arnar með nokkrum yfir­burðum þegar upp var staðið, þrátt fyrir að margir valda­miklir Repúblikanar hafi gagn­rýnt hann harð­lega fyrir að sið­lausan mál­flutn­ing og óvand­aða orð­ræðu.

4. Eitt af áhrifa­mestu atvikum kosn­inga­bar­átt­unnar var þegar Washington Post birti á vef sínum, hljóð- og mynd­bands­upp­töku af Donald Trump vera að tala illa um konur, frá árinu 2005. Í mynd­band­inu heyr­ist hann monta sig af því að hann geti, í skjóli frægðar sinnar, gripið um kyn­færi kvenna. Þá lýsir hann því einnig þegar hann reyndi að kom­ast í bólið með giftri konu, en gekk lítið. Fréttir af þessu fóru eins og eldur í sinu um inter­netið. Trump baðst afsök­unar á orðum sínum, en svar­aði strax í sömu mynt og benti á Bill Clinton, eig­in­mann Hillary, og sagði hann hafa gert miklu verri hluti heldur en hann sjálfur. Hann rök­studdi þó mál sit ekk­ert. Hillary gagn­rýndi Trump harð­lega, en leyfði honum þá að „þjást“ póli­tískt, án þess að velta sér upp úr atvik­inu. Skoð­ana­kann­anir sýndi að stuðn­ing­ur­inn við Trump minnk­aði snar­lega við birt­ingu upp­tök­unnar, og byr komst í seg fram­boðs Hillary.

5. Við minn­ing­ar­at­höfn í New York 11. sept­em­ber, þar sem fórn­ar­lamba árás­ar­innar á tví­bura­t­urn­anna í New York var minnst, komst Hillary í frétt­irnar. Hún þurfti að yfir­gefa athöfn­ina, og sást styðj­ast við aðstoð­ar­fólk sitt þegar hún fór inn í bíl og var keyrð í burtu. Trump greip þetta á lofti, og sagði aug­ljóst að hún væri „veik­burða“ og gæti ekki verið for­seti. Hún hefði ekki úthaldið sem þyrfti. Eftir tvo daga sendi Hillary frá sér lækn­is­skýrslu þar sem læknir hennar sagði að hún væri með lungna­bólgu og þyrfti að hvíl­ast í að minnsta kosti viku. Hún gerði það, og kom tví­efld til baka. Þrátt fyrir að atvikið hafi stolið fyr­ir­sögnum í nokkra daga, þá skipti það litlu sem engu máli fyrir kosn­inga­bar­átt­una sem slíka.

6. Sjón­varp­s­kapp­ræð­urnar þrjár voru sögu­legar, og mörk­uðu djúp spor í kosn­inga­bar­átt­una. Hillary var sig­ur­veg­ari í öllum kapp­ræð­unum, sam­kvæmt mati flestra álits­gjafa, og kann­anir sýndu að hún kom mun betur út. Ótrúleg ummæli Donalds Trump, flest alveg órök­studd, stálu sen­unni. Hann full­yrti til að mynda að Hillary væri spillt, og hann myndi beita sér fyrir því að skipa sak­sókn­ara sem myndi ákæra hana, ef hann yrði for­seti. Hillary var mun rólegri í kapp­ræð­unum, og ein­beitti sér meira af því að halda sig mál­efnin sem voru til umfjöll­unar.

7. Kyn­þátta­hatur hefur verið einkar sýni­legt í Banda­ríkj­unum í allri kosn­inga­bar­átt­unni, og hefur verið áber­andi hjá stuðn­ings­mönnum Donalds Trump, og raunar honum sjálfum einnig. Mörgum for­ystu­mönnum Repúblik­ana ofbauð það, þegar Trump neit­aði að gagn­rýna Ku Klux Klan, eftir að hat­urs­sam­tökin lýstu yfir stuðn­ingi við Trump. Einn þeirra var Paul Ryan, leið­togi Repúblik­ana í þing­inu og fyrrum vara­for­seta­efni flokks­ins, en hann sagði mál­flutn­ing Trumps óboð­legan og ganga gegn áherslum Repúblik­ana um frelsi ein­stak­lings­ins til að blómstra á eigin for­sendum. Þrátt fyrir allt, þá lýsti Ryan að lokum yfir stuðn­ingi við Trump. Það sama gerði Ted Cruz þrátt fyrir ótrú­legar og rætnar árásir Trumps á hann og föður hans, á fyrri stigum kosn­inga­bar­átt­unnar.

8. Eitt af kosn­inga­lof­orðum Trumps er að reistur verði veggur á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó, og að vegg­ur­inn verði reistur á kostnað Mexíkóa. Þrátt fyrir að stjórn­völd í Mexíkó seg­ist ekki ætla að verða við þessu, þá hefur Trump full­yrt þetta ítrekað, og full­yrt enn fremur að Mexíkóar séu „nauð­garar“ og „fíkni­efna­smygl­arar“. Þessum full­yrð­ingum hefur verið harð­lega mót­mælt, og hefur Hillary sagt að í þessu felist kyn­þátta­for­dómar.

9. Tölvu­pósta­mál Hillary Clinton hefur valdið henni miklum vand­ræðum, og hefur hún opin­ber­lega beðist afsök­unar á að hafa verið kæru­laus varð­andi með­ferð upp­lýs­inga þegar hún var starf­andi utan­rík­is­ráð­herra. Hún var meðal ann­ars að höndla með trún­að­ar­upp­lýs­ingar, sem ekki var í sam­ræmi við reglur, en eftir ítar­lega rann­sókn FBI á póst­unum hendar, sem skiptu tug­þús­undum, var hún ekki ákærð og þótti ekki til­efni til frek­ari rann­sókna. Í sið­ustu viku tók málið svo aðra stefnu þegar tölvu­póstar hennar, og aðstoð­ar­konu hennar, komust í hámæli eftir að FBI sendi þing­inu bréf og sagði að tölvu­póstar Hillary væru nú aftur komnir til rann­sóknar. Í lok dags á föstu­dinn síð­astlinn kom síðan önnur yfir­lýs­ing frá FBI þar sem tekið var fram, að ekki væri til­efni til ákæru eða frek­ari rann­sóknar. Hillary var því sloppin, en á aðeins fjórum dögum sýndu kann­anir að þetta mál var að skaða fram­boð Hillary veru­lega.

10. Donald Trump hefur gert það að einu stærsta kosn­inga­máli sínu að alþjóð­legir við­skipta­samn­ingar Banda­ríkj­anna séu skað­legir land­inu, og séu að flytja störf frá því til Kína og Asíu, ekki síst. Þessi orð­ræða hefur náð vel til fólks víða, ekki síst í mið­ríkj­unum, en á sama tíma hafa margir þeir sem aðhyll­ast frjáls við­skipti spurt sig að því, hvað Trump sé í reynd að boða. Hillary hefur lagt meiri áherslu að efna­hagur Banda­ríkj­anna haldi sveigj­an­leika sínum, og verði áfram helst upp­spretta nýsköp­unar og rann­sókna. Ekki sé hægt að berj­ast gegn alþjóða­væð­ing­unni með annarri hendi, en boða hana með hinni. Trump segir að kosn­ing­arnar snú­ist meðal ann­ars um það, hvort fólk vilji fá „reynslu­mik­inn“ mann úr heimi við­skipt­anna til að semja um við­skipti lands­ins, eða Hillary Clinton. „Valið er ein­falt“ sagði hann á úti­fundi í Nevada á dög­unum.

Hvernig sem fer í kosn­ing­unum, verður spenn­andi að sjá hvernig heim­ur­inn bregst við úrslit­unum. Ljóst er að Hillary getur skráð sig á spjöld sög­unnar, ræki­lega, með sigri þar sem hún verður fyrsta konan til að verða for­seti Banda­ríkj­anna nái hún mark­miði sínu. Donald Trump hefur með for­dæma­lausri hegðun sinni tek­ist að halda kast­ljós­inu á sér svo til alla kosn­inga­bar­átt­una, og vafa­lítið mun það fylgja honum áfram verði hann for­seti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár