Einn á tvítugsaldri lagður inn á Landspítala

Ein­stak­lingur á tví­tugs­aldri hefur verið lagður inn á sjúkra­hús með COVID-19 smit. Sótt­varna­læknir segir til skoð­unar að taka upp eins metra reglu á ákveðnum stöðum í stað tveggja metra reglu og opnar á að íþróttir með snert­ingu verði leyfðar á ný.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

Þrír sjúk­lingar eru nú lagðir inn á Land­spít­ala vegna kór­ónu­veiru­sýk­ingar. Einn var lagður inn í gær og er sá á tví­tugs­aldri. Hann er ekki á gjör­gæslu. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Fund­ur­inn í dag var sá 100. sem almanna­varnir boða til frá því að fyrsta kór­ónu­veirusmitið greind­ist hér á landi í lok febr­úar.

Fram hefur komið að hinir ein­stak­ling­arnir tveir eru á níræð­is­aldri og 31 árs. Sá síð­ar­nefndi er í önd­un­ar­vél á gjör­gæslu.

Þórólfur sagð­ist vera að vinna að nýju minn­is­blaði um áfram­hald­andi aðgerðir bæði á landa­mærum og inn­an­lands þegar núver­andi aðgerðum lýkur 13. ágúst. Hann sagði að hann myndi í minn­is­blaði til ráð­herra velta upp nokkrum val­kostum um fram­tíð­ar­að­gerðir á landa­mærum Íslands og einnig sagð­ist hann vera með það til skoð­unar að láta eins metra nánd­ar­reglu gilda hér, til dæmis í skólum.

[adspot]

Það er talað um að eins metra nánd­ar­mörk minnki líkur á smiti fimm­falt, sagði Þórólfur og minnt­ist á að hún væri notuð í Noregi. Einnig kom fram í máli Þórólfs að til skoð­unar væri að hætta svo­kall­aðri sýna­töku tvö þar sem henni fylgi mikið álag og að ein­ungis tvö sýni af 8.000 slíkum hafa reynst jákvæð fyrir COVID-19.

Þá sagði hann að til skoð­unar væri að leyfa íþróttir með snert­ingu eftir 13. ágúst og leyfa knatt­spyrnu til dæmis að hefj­ast aftur.

Það er hins vegar mik­il­vægt að sjá fyrir end­ann á þeim far­aldri sem nú er í gangi áður en hægt verður að létta á þeim tak­mörk­unum sem hafa verið í gangi, sagði Þórólfur, sem telur þó ekki efni til þess að herða enn frekar á tak­mörk­unum.

Ellefu smit tengd hópsýkingu í Eyjum

Tveir greindust jákvæðir í gær, báðir í skimun Íslenskrar erfða­grein­ingar í Vest­manna­eyjum. Alls hafa 11 ein­stak­lingar greinst í hóp­sýk­ing­unni sem teng­ist Vest­manna­eyjum.

Áfram er fólk að grein­ast með sama afbrigði veirunnar og áður og lang­flestir af þeim 117 sem greinst hafa inn­an­lands und­an­farnar vikur eru með þetta afbrigði veirunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár