Lokaspretturinn með broti af því versta og því besta

Kapp­ræður númer tvö af þremur fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum, 8. nóv­em­ber, fóru fram í nótt. Útkoman var sögu­leg, svo ekki sé meira sagt.

Á und­an­far­inni viku hefur það komið fram með nokkuð áber­andi hætti hversu dínamískt og fjöl­breytt póli­tískt lands­lag er í Banda­ríkj­unum þessi miss­erin. Kapp­ræð­urnar á milli Donald J. Trump, fram­bjóð­anda Repúblik­ana, og Hillary Clinton, fram­bjóð­anda Demókrata, sem fóru fram í nótt, drógu þessi atriði fram. Að mestu leyti voru það þó verstu ein­kennin sem fengu mikla athygli.

Á í vök að verjast

Trump hefur átt í vök að verj­ast síð­ustu daga eftir að Washington Post birti mynd- og hljóð­upp­töku frá árinu 2005 af honum tala með nið­ur­lægj­andi hætti um konur. Hann baðst afsök­unar á því sem hann sagði og hvernig hann hag­aði sér. Hins vegar sagði hann á sama tíma að Bill Clinton, eig­in­maður Hillary, hefði gert „miklu verri hluti“ og sagt verri hluti. Skömmu áður en kapp­ræð­urnar hófust, birt­ist hann í beinni útsend­ingu í gegnum Facebook live, með fjórar konur sér við hlið sem hafa sakað Bill Clinton um nauðgun og kyn­ferð­is­lega áreitni.

Sann­ar­lega ótrú­legur og for­dæma­laus aðdrag­andi að kapp­ræðu­þætt­inum, sem varð um margt sögu­legur.

Hillary með afgerandi forystu

Þetta var kapp­ræðu­þáttur númer tvö af þremur sem fara fram fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 8. nóv­em­ber, þar sem Trump og Hillary takast á. Frá fyrri þætt­inum, sem ítar­lega var fjallað um að vef Kjarnans, hefur mik­ill byr kom­ist í seglin hjá Hillary, á meðan Trump hefur átt í vök að verj­ast.

Kosn­inga­spá FiveT­hir­tyEight, sem er álitin með virt­ari „púls­mæl­ingum“ á póli­tísku lands­lagi í Banda­ríkj­unum, telur nú að 81,5 pró­sent líkur séu á því að Hillary vinni, en að 18,4 pró­sent að Trump fari með sigur af hólmi. Áður en kapp­ræðu­þætt­irnir hófust voru 48 pró­sent líkur á sigri Trump en 52 pró­sent líkur á sigri Hillary. Á skömmum tíma hefur því staðan breyst mikið, Hillary í hag.

Kappræðurnar í nótt

Kapp­ræð­urnar hófust á því að Trump dró fram frasa sína, eins og í fyrri þætt­inum, nema hvað hann sleppti því að segja ítrekað Ohio og Michigan, eins og hann gerði síð­ast. Það eru mik­il­væg ríki fyrir Trump og Repúblik­ana, en lík­urnar eru afger­andi Hillary megin í þeim báðum, sé mið tekið af FiveT­hir­tyEight. Í Ohio eru nú 58,6 pró­sent líkur á sigri Hillary og 87,9 pró­sent í Michigan.

Trump dró umræð­una strax inn á fremur lágt plan og víðs­fjarri mál­efnum, með því að minn­ast á ásak­an­irnar á hendur Bill Clinton. Hann þurfti að svara spurn­ingum frá Anderson Cooper og Mörthu Raddatz, stjórn­endum kapp­ræðn­anna, um nið­ur­lægj­andi orð hans um konur. Hann neit­aði að hafa káfað af konum og sagð­ist aldrei hafa hagað sér í sam­ræmi við það sem hann sagði.

Vefurinn Politico segir kapp­ræð­urnar hafa verið þær „ljót­ustu“ í sögu Banda­ríkj­anna, og þeirra verði minnst fyrir for­dæm­lausar árásir Trumps á Hillary.

Hillary upp­lýsti um það í upp­hafi þáttar að hún hefði aldrei efast um hæfni þeirra sem hefðu boðið sig fram til emb­ættis for­seta, í fyrri kosn­inga­bar­áttum lið­inna ára. „Það er öðru­vísi með Trump,“ sagði Hillary, og lagði áherslu á, að hún teldi hann ekki hæfan til að gegna emb­ætt­inu. Hann hefði ekki yfir­vegun eða nægi­lega djúpa þekk­ingu á emb­ætt­inu, og flóknum hliðum þess, til þess að geta gegnt því.

Það er ekki mikil hjálp í því fyrir les­endur, að reyna að greina í smá­at­riðum frá því, sem fór fram í fyrri hluta þátt­ar­ins, því fæstar setn­ingar Trump og Hillary end­uðu með afger­andi hætti, þannig að mein­ing kæm­ist vel til skila. Trump tal­aði mikið ofan í Hillary og greip ítrekað fram í.

Hillary reyndi greini­lega að halda aftur af sér, meðan Trump fór með kunn­ug­legan mál­flutn­ing um að Hillary gæti ekki stjórnað, hún væri með slæma dóm­greind og að hún hefði brotið gegn lögum, með því að eyða 33 þús­und tölvu­póstum. „Ef ég verð for­seti þá mun ég skipa sér­stakan sak­sókn­ara til að rann­sókna og ákæra Hillary,“ sagði Trump berum orðum, eftir mik­inn reiði­lestur.

Mikill munur á svörum

Hillary svar­aði ekki ásök­un­inni efn­is­lega, en var aug­ljós­lega nokkuð brugðið. Heyra mátti and­varp meðal áhorf­enda, og stjórn­end­urnir, Anderson Cooper og Martha Raddatz, reyndu að halda tökum á umræð­unni. Hillary baðst afsök­unar á því að hafa eytt póst­unum en sagði að ítar­leg rann­sókn á þeim, hefði ekki leitt neitt ólög­legt eða slæmt í ljós. Þetta er sama sagan og dregin var fram í fyrsta þætt­inum og ekk­ert nýtt um það að segja.

Efn­is­lega, þegar spurn­ingar úr sal komu til Trump og Hillary, var mik­ill munur á svör­unum. Krist­all­að­ist þetta ekki síst í spurn­ingum sem tengdur heil­brigð­is­stefnu rík­is­stjórnar Baracks Obama. Hillary sagði að stefnan, Obama-Care eins og hún er oft nefnd, sé ekki galla­laus, en að hún hafi miklu fleiri kosti en galla. Nefndi hún sér­stak­lega að fleiri hefðu aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu en áður, og að þar væru allir hópar með­taldir. „Ef við værum að móta nýtt heil­brigð­is­kerfi frá grunni núna, þá er ekki endi­lega víst að við myndum gera þetta eins og við gerum, að hafa atvinnu­rek­endur sem kaup­endur trygg­inga,“ sagði Hillary og vís­aði til þess grunn­at­riðis í banda­rísku heil­brigð­is­kerfi, að fólk fær heil­brigð­is­trygg­ingu í gegnum vinnu­veit­endur sína.

Hún sagð­ist ætla að beita sér fyrir því að kaf­aði ofan í atriðin sem þyrfti að laga, einkum og sér í lagi auka skil­virkni, meðal ann­ars með því að koma hópum sem hefðu lengi staðið utan kerf­is­ins inn í það.

Trump færði ekk­ert efn­is­legt fram um þetta en sagði ítrekað að kerfið væri „stór­slys“ og að „það vissu allir“. Það væri alltof dýrt, og skil­aði engu. Hann sagð­ist ætla að skera niður kostnað, og búa til miklu betra kerfi. Hann færði hins vegar engin efn­is­leg rök fram, og útskýrði ekki með neinum hætti, hvað hann ætl­aði að gera til að bæta kerfið.

Utanríkismál

Þegar talið barst að utan­rík­is­mál­unum, sagði Trump Hillary hafa staðið sig „skelfi­lega“. Hún hefði tekið þátt í því að „breiða út ISIS“, með vit­lausri stefnu sinni í mál­efnum mið­aust­ur­landa og henni væri ekki treystandi. Þá nefndi hann sér­stak­lega að Hillary hefði stutt inn­rás­ina í Írak, en ekki hann. Það sýndi vel hversu illa upp­lýst hún væri. „Hana skortir dóm­greind,“ sagði hann ítrekað, og beindi orð­unum beint að Hillary.

Hún svar­aði ekki öllu efn­is­lega, en benti fólki á að nota stað­reynda­vakt sem kosn­inga­bar­átta hennar rekur á hillaryclinton.com. Hún benti síðan á, að Trump hefði samt sjálfur stutt inn­rás­ina í Írak, það væri hægt að fletta því öllu upp.

Hún sagði að vanda­mál heims­ins væru flókin, og að hún hefði reynslu af því, sem utan­rík­is­ráð­herra, að glíma við hættur heims­ins, meðal ann­ars með því að stýra hættu­legum leyni­legum aðgerðum eins og þeirri sem leiddi til þess að Osama Bin Laden, sem skipu­lagði árás­irnar 11. sept­em­ber 2001, var drep­inn í Pakistan.

Hún ítrek­aði síðan, að hún tryði á sam­starf og grein­ingu bestu upp­lýs­inga, þegar kæmi að utan­rík­is­málum. Hún hefði reynslu af þessu starfi, ólíkt Trump.

Reyna að koma málum á dagskrá

Um margt er staða mála á hinu póli­tíska sviði í Banda­ríkj­unum með ólík­indum þessi miss­erin. Mikil harka ein­kennir orð­ræðu fram­bjóð­enda og stuðn­ings­manna­liða Trump og Hillary, en óhætt er að segja að eng­inn for­seta­fram­bjóð­andi í sög­unni hafi notað annað eins orð­bragð í bar­áttu sinni og Trump. Hann hefur auk þess marg­ít­rekað verið sagður höfða til lægstu hvata í mál­flutn­ingi sínum, með því að draga fram öfga­hópa í Banda­ríkj­unum inn í kosn­inga­bar­áttu sína. Þar á meðal kyn­þátta­hat­ara og þá sem hika ekki við að tala fyrir menn­ing­ar­legum ras­isma eins og frels­is­skerð­ingu á grund­velli trú­ar­bragða eða upp­runa.

Fordæmi fyrir mál­flutn­ingi eins og þessum, úr munni manns sem hefur hlotið útnefn­ingu Repúblik­ana, eru engin. Trump er að brjóta blað með sinni fram­göngu.

Mikill munur eftir ríkjum

Það sem hefur komið glögg­lega í ljós í þess­ari kosn­inga­bar­áttu, og ekki síst síð­ustu vikur, er hversu ólík ríki Banda­ríkj­anna eru og ef eitt­hvað er þá er í bilið sífellt að verða meira. Í grófum dráttum er staða mála sú, að ríki aust­ur­strand­ar­innar, fyrir utan Georgíu og Suður-Karolínu í suð­austri, eru Demókrat­a­ríki og öll ríki Vest­ur­strand­ar­innar sömu­leiðis.

Í gegnum Banda­ríkin mið – fyrir utan Nýju-Mexíkó og Colorado - eru Repúblikanar sterkir, og efna­hags­lega hefur mun­ur­inn sjaldan eða aldrei verið meiri miðað við strand­ríkin. Hátækni­störfin eru flest að verða til í strand­ríkj­unum og vöxt­ur­inn í efna­hag lands­ins er að mestu leyti þar. Vissu­lega eru marg­vís­legar und­tekn­ingar á því, en þegar heild­ar­myndin er ein­földuð þá er þró­unin á þessa leið. Þetta hefur valdið miklum og oft heitum deilum um hvort alþjóða­væddur heimur við­skipt­anna er til góða fyrir Banda­ríkin eða ekki. Sér­stak­lega hefur Trump lagt á þetta mikla áherslu, og sagt að við­skipta­samn­ingar Banda­ríkj­anna við önnur ríki séu frá­leit, og þá einkum og sér í lagi við Kína.

Flestar spár benda nú til þess að við­horfa­munur íbúa í Banda­ríkj­unum mót­ist veru­lega af þessum efna­hags­lega veru­leika. Stundum er eins og ríki Banda­ríkj­anna eigi fyrst og fremst þrennt sam­eig­in­legt. Banda­ríkja­dal­inn, tungu­málið og stjórn­ar­skrána. Að öðru leyti eru ríkin oft gjör­ó­lík, að nán­ast öllu leyti.

Barack Obama, Band­ríkja­for­seti, hefur talað með öðrum hætti en Trump, svo ekki sé fastar að orði kveðið, og sagt að einn helsti kostur efna­hags Banda­ríkj­anna sé sveigj­an­leiki og mik­ill kraftur í nýsköpun. Á bak við þessa þróun sé alþjóða­vætt við­skipta­líf lyk­il­þáttur. Þessi sjón­ar­mið setti hann meðal ann­ars fram í ítar­legri grein í The Economist í vik­unni.

Einn áhrifa­mesti maður í banda­rísku við­skipta­lífi, og rík­asti ein­stak­lingur heims, Bill Gates, gagn­rýndi fram­bjóð­endur í for­seta­kosn­ing­unum nýverið fyrir að fjalla ekki meira um það sem muni skipta mestu máli til fram­tíðar litið. Nefni­lega nýsköpun. Án árang­urs­ríkrar stefnu á því sviði geti Banda­ríkin ekki fram­þró­ast. Stór mál væru nú á sviði stjórn­mála­manna, sem snéru að heil­brigði- og umhverf­is­málum, og þar þyrfti skýra póli­tíska fram­tíð­ar­sýn.

Strax að loknum kapp­ræð­unum í nótt, komu sér­fræð­ingar fram með mat sitt á því hver hefði haft betur. Nær allir voru sam­mála um að Hillary hefði staðið sig mun betur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár