Nýsköpun, nýsköpun og aftur nýsköpun

Bill Gates birti í gær grein á vef sínum sem vakið hefur mikla athygli í Banda­ríkj­unum og um allan heim. Hann hvetur leið­toga til að þess að for­gangs­raða í þágu nýsköp­unar.

Bill Gates, rík­asti maður heims og annar stofn­enda Microsoft, greindi frá því í pistli á vef sínum í gær, að hann sakn­aði þess í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum skuli ekki vera meira rætt um stefnu­mörkun á því sviði sem mestu máli skipti fyrir umheim­inn; sviði nýsköp­unar.

Kosið verður í Banda­ríkj­unum 8. nóv­em­ber en Hillary Clinton, fyrir hönd Demókrata, og Donald J. Trump, fyrir hönd Repúblik­ana, berj­ast um for­seta­emb­ættið. Enda­sprett­ur­inn í kosn­inga­bar­átt­unni er framundan, enda aðeins fjórar vikur til kosn­inga.

Í pistli sínum segir hinn 55 ára gamli Gates að fram­farir mann­kyns­ins hafi að mestu komið fram á lið­inni öld vegna nýsköp­unar og auk­innar tækni­þekk­ingar. „Þau hag­kerfi sem ná mestum árangri eru þau sem leggja mesta áherslu á nýsköpun til að skara fram úr,“ segir Gates í pistli sínum. Hann leggur áherslu á að hið opin­bera og einka­geir­inn finni leiðir til að vinna betur saman. „Ég hef heyrt fólk færa rök fyrir því að nýsköpun komi fyrst og fremst fram í einka­geir­anum. En nýsköpun hefst hjá hinu opin­bera með rann­sóknum í háskólum [...] Fjár­fest­ing hins opin­bera í nýsköpun opnar leiðir fyrir hug­vits­sem­ina í einka­geir­anum,“ segir Gates í pistli sínum.

Sér­stak­lega víkur hann að fjórum meg­in­mark­miðum, þar sem stefna á sviði nýsköp­unar myndi hjálpa mikið til.

Orkan

Í fyrsta lagi nefnir hann orku­málin, og mark­mið um að nýta orku betur án þess að ýta undir lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum og hlýnun jarðar. Hann segir að á næstu átta árum þá muni lík­lega koma fram miklar breyt­ingar, sem geri raf­knúnum bílum mögu­legt að kom­ast miklu lengra en áður á einni hleðslu. Gríð­ar­lega miklir mögu­leikar séu fyrir hendi, og mik­il­vægt sé að hið opin­bera og einka­geir­inn vinni saman að skyn­sömum mark­miðum. Nýsköpun á þessum sviðum sé mik­il­væg að öllu leyti.

Sjúkdómar og forgangsröðun

Í öðru lagi nefnir hann fram­farir á sviði heil­brigð­is­vís­inda sem geti hjálpað til við halda HIV veirunni í skefjum og jafn­vel eyða sjúk­dóm­inum alveg. Þegar séu komin fram lyf og rann­sóknir sem sýna að þetta sé hægt. Það sama megi segja um Alzheimer-sjúk­dóm­inn. „Það er sjúk­dómur sem að veldur fólki og fjöl­skyldum mik­illi van­líðan,“ segir Gates, og nefnir sér­stak­lega að „stjórn­laus“ og alltof mik­ill kostn­aður í heil­brigð­is­kerf­inu, vegna slíkra sjúk­dóma, taki til sín fé sem myndi nýt­ast á öðrum stöðum. Mik­il­vægt sé að ýta undir nýsköpun á þessum sviðum, og þær stór­kost­legu fram­farir sem hafi náðst fram á síð­ustu árum. For­gangs­röð­unin þurfi að vera rétt hjá hinu opin­bera á þessu sviði.

Hefta útbreiðslu veira

Í þriðja lagi segir Gates að stjórn­mála­menn þurfi að vinna að nýsköpun á sviðum, sem geti heft útbreiðslu á hættu­legum veirum eins og E-bólu og Zika veirunni. Afleið­ing­arnar geti orðið gríð­ar­lega alvar­legar fyrir heim­inn allan, ef ekki tekst að finna upp áhrifa­rík­ari leiðir en nú þegar eru uppi, til að berj­ast við bráðsmit­andi veiru. Þær ógni ekki aðeins heilsu heldur öllum helstu innviðum í ríkjum, og geti brotið niður efna­hag­inn á skömmum tíma.

Hann bendir enn fremur á að vís­inda­menn á sviði líf­fræði séu þegar komnir fram með lausnir, sem geti orðið veru­lega áhrifa­miklar, ef ýtt sé undir rann­sókn­irnar með nýsköpun og skýrri stefnu að hálfu hins opin­bera. Mikið sé í húfi, hvað þessi mál varðar. Með réttri stefnu og mik­illi áfram­hald­andi vinnu þá sé mögu­legt að bregð­ast við útbreiðsl­unni, áður en hún fer úr bönd­unum.

Tækni nýtt í skólastarfi

Í fjórða lagi er það menntun, og metn­að­ar­fyllri áform um að koma nýjum tólum – með nýj­ustu tækni – í hendur kenn­ara og nem­enda í skóla­starfi. Gates segir að allir eigi að geta fengið þessi tól, og það sé miður að nýjasta tækni sé ekki nægi­lega vel nýtt í skóla­starfi, því með henni sé hægt að gera kennslu ein­stak­lings­mið­aða og ýtt undir að hver nem­andi fari áfram á sínum hraða. Einka­geir­inn hafi þegar komið fram með lausnir, en hið opin­bera þurfi að vera mót­tæki­legra fyrir þessum hlutum svo að hlut­irnir ger­ist hraðar. Meira fé þurfi að fara í tækni þegar kemur að skóla­starfi.

Opni augun fyrir nýsköpun

Að lokum seg­ist hann von­ast til þess að leið­togar fram­tíð­ar­innar á sviði stjórn­mál­anna sjá mögu­leik­ana sem eru á borð­inu, og hjálpi til við raun­veru­legar fram­farir með því að fjár­festa í rann­sóknum og nýsköpun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár