Bloomberg býður sig ekki fram til forseta Bandaríkjanna

Michael Bloomberg, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í New York, ætlar ekki að bjóða sig fram til for­seta Banda­ríkj­anna. Hann greindi frá þessu í grein á Bloomberg View nú í kvöld.

Bloomberg hafði íhugað að bjóða sig fram sem óháður, þriðji fram­bjóð­andi. Í grein­inni í kvöld segir hann að þegar hann hafi skoðað töl­fræð­ina hafi það verið ljóst að ef hann tæki slag­inn myndi hann ekki vinna.

Jafnvel þótt hann gæti unnið í mörgum ríkjum myndi hann ekki fá þau 270 atkvæði úr kjör­manna­ráði sem til þyrfti. Með þrjá fram­bjóð­endur væri ólík­legt að nokkur fram­bjóð­andi fengi meiri­hluta og þá færu völdin til að velja for­seta úr höndum almenn­ings og til banda­ríska þings­ins. Jafnvel þótt hann fengi flest atkvæði almenn­ings og kjör­manna­ráðs væri mjög ólík­legt að hann bæri sigur úr býtum, „vegna þess að flestir þing­menn myndu kjósa fram­bjóð­anda síns flokks. Flokks­hestar í þing­inu - ekki banda­ríska þjóðin eða kjör­manna­ráðið - myndu ákveða næsta for­seta.“

Þess vegna, meðan repúblikanar eru í meiri­hluta í báðum deildum þings­ins, væru miklar líkur á því að fram­boð hans myndi leiða til kjörs Donald Trump eða Ted Cruz. „Það er ekki áhætta sem ég get tekið með góðri sam­visku.“

Bloomberg fer mjög hörðum orðum um for­seta­fram­bjóð­end­urna, einna helst Donald Trump og Ted Cruz, í grein sinni. Trump hafi háð þá mestu lýð­skrums- og sundr­ung­ar­kosn­inga­bar­áttu sem sést hafi, og hafi alið á for­dómum og ótta fólks. „Abraham Lincoln, faðir Repúblikana­flokks­ins, höfð­aði til „betri engla“ okkar. Trump höfðar til okkar verstu hvata.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár