VettvangurÁ vettvangi í Úkraínu

Landið sem krabba­meins­lækn­arnir yfir­gáfu

Talið er að um 80 pró­sent allra krabba­meins­lækna hafi yfir­gefið Úkraínu eftir að Rússar réð­ust inn í landið, þótt margir þeirra hafi síðan snúið aftur. Það hægir þó ekk­ert á krabba­meinstil­fell­unum sem grein­ast. Þau eru um 160 þús­und á ári. Upp úr þessum aðstæðum spruttu sam­tökin Mission Kharkiv sem beita nýstár­legum aðferðum, og stærð­fræði, til að koma lyfjum og nauð­syn­legum birgðum til þurf­andi sjúk­linga.
Greining

Frið­ar­mál kveikja ófrið­ar­bál á íslensku stjórn­ar­heim­ili

Tæpum tveimur vikum eftir að stjórn­ar­flokk­arnir þrír slíðr­uðu sverðin og sögð­ust ætla að hætta skærum sín á milli til að klára kjör­tíma­bilið er frið­ur­inn úti. Ástæðan er ákvörðun Íslands um að sitja hjá þegar kosið var um til­lögu um vopna­hlé á Gaza. Von er á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem á að láta Alþingi taka afstöðu til vopna­hlés fyrst rík­is­stjórnin getur ekki komið sér saman um það.
Greining

Stór­auknar tekjur vegna vaxta­hækk­anna skil­uðu bönk­unum 61 millj­arðs króna hagn­aði

Stóru bank­arnir þrír högn­uð­ust um 22 pró­sent hærri upp­hæð sam­an­lagt á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2023 en á sama tíma­bili í fyrra. Vaxta­munur þeirra er mun hærri en hjá svip­uðum bönkum á Norð­ur­lönd­unum og er nú 2,9 til 3,1 pró­sent. Eigið fé Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka var 706 millj­arðar króna í lok sept­em­ber. Heim­ild­in tók sam­an helstu stað­reynd­ir um níu mán­aða upp­gjör stóru bank­anna þriggja.
Fréttir

Bjarni: Miður að ekki náð­ist sam­staða um að for­dæma Hamas

Ísland sat hjá þegar ályktun um taf­ar­laust vopna­hlé fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs var sam­þykkt á neyð­ar­fundi alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna í gær. Utan­rík­is­ráð­herra segir það ekki breyta skýrri afstöðu Íslands um taf­ar­laust mann­úð­ar­hlé, að komið verði á friði og að byggt verði á tveggja ríkja lausn­inni. „Ísland gerir skýra kröfu til Ísraels um að farið sé að mann­úð­ar­lögum.“
Fréttir

Hefur „gríð­ar­legar áhyggjur“ af 300 þús­und íbúum Gazaborgar

Ísra­els­her hefur í kvöld ráð­ist af miklu afli inn í Gaza með loft­árásum og land­hern­aði. Síma- og net­sam­band á svæð­inu hefur legið niðri í nokkrar klukku­stundir. Fram­kvæmda­stjóri palest­ínska Rauða hálf­mán­ans seg­ist hafa gríð­ar­legar áhyggjur af þeim 300 þús­und íbúum Gazaborgar sem séu fastir í borg­inni. Sam­ein­uðu þjóð­irnar sam­þykktu ályktun um vopna­hlé fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs í kvöld. Ísland og öll hin Norð­ur­löndin, utan Noreg sátu hjá í atkvæða­greiðsl­unni.

Mest lesið undanfarið ár