Greining

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks leggja fram fjöl­miðla­frum­varp til höf­uðs stefnu ráð­herra

Níu þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks vilja gjör­breyta rekstri RÚV, gera mið­il­inn aftur að rík­is­stofnun og draga veru­lega úr umsvifum hans á aug­lýs­inga­mark­aði. Samhliða vilja þeir afnema styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla en inn­leiða skattaí­viln­anir sem munu fyrst og síð­ast auka stuðn­ing við stærstu einka­reknu fjöl­miðla lands­ins.
Fréttir

Prestur inn­flytj­enda lík­aði við færslu Bjarna

Annar starf­andi prestur inn­flytj­enda og flótta­fólks hjá þjóð­kirkj­unni lík­aði við Facebook-færslu Bjarna Bene­dikts­sonar utan­rík­is­ráð­herra þar sem fram kom að herða þyrfti reglur um hæl­is­leit­enda­mál og auka eft­ir­lit á landa­mærum. Núver­andi fyr­ir­komu­lag væri alger­lega komið úr bönd­unum og inn­viðir sprungnir. Prest­ur­inn seg­ist hafa verið sam­mála ummælum Bjarna um tjald­búð­irnar.
Fréttir

Eft­ir­laun Ólafs og Vigdísar hafa á síð­ustu fimm árum kostað rík­is­sjóð 287 millj­ónir króna

Fyrr­ver­andi for­setar Íslands, Vigdís Finn­boga­dóttir og Ólafur Ragnar Grímsson eiga bæði rétt á 80 pró­sent af launum for­seta eins og þau eru hverju sinni. Laun for­seta eru nú tæpar fjórar millj­ónir á mán­uði en voru árið 2019 rétt undir þremur millj­ónum. Frá júní 2019 til febr­úar 2024 má áætla að Vigdís og Ólafur hafi sam­an­lagt fengið um 287 millj­ónir króna í eft­ir­laun.
FréttirFöst á Gaza

Ráðu­neytið afhendir ekki sam­skipti við egypsk og ísra­elsk stjórn­völd

Heim­ildin óskaði eftir afriti af sam­skiptum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við sendi­ráð Egypta­lands í Osló og ísra­el­skra stjórn­valda en að mati ráðu­neyt­is­ins var ekki unnt að verða við afhend­ingu gagn­anna á grund­velli mik­il­vægra almanna­hags­muna, eins og segir í svar­inu. Þar segir einnig að nauð­syn­legt sé að sam­skipti utan­rík­is­þjón­ust­unnar af þessu tagi „fari leynt til að tryggja áfram­hald­andi góð sam­skipti og gagn­kvæmt traust við­kom­andi aðila“.
SkýringRáðning Lúðvíks Arnar Steinarssonar til Garðabæjar

Rök­stuðn­ingur Garða­bæjar fyrir að ráða Lúðvík Örn: „Þetta er bara stórfurðu­legt mál“

Ráðning Garða­bæjar á Lúðvík Erni Stein­ars­syni, sem gegnt hefur mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, í starf sviðs­stjóra fjár­mála- og stjórn­sýslu­sviðs Garða­bæjar hefur vakið hörð við­brögð hjá minni­hlut­anum í bænum. Rök­stuðn­ingur Bjargar Fenger, for­manns bæj­ar­ráðs, fyrir ráðn­ing­unni bendir til að Lúðvík Örn hafi ekki upp­fyllt öll hæfni­við­miðin en vísað er til „heild­stæðs mats“ á honum.
Fréttir

Rit sem sagn­fræð­ingur vann um leið­rétt­ing­una aldrei gert aðgengi­legt

Sagn­fræð­ing­ur­inn Friðrik G. Olgeirs­son var ráð­inn af emb­ætti rík­is­skatt­stjóra til að taka saman rit um leið­rétt­ing­una, sem gefið var út 2015 og dreift innan stjórn­kerf­is­ins. Þetta rit hefur aldrei verið birt opin­ber­lega þrátt fyrir að fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, Skúli Eggert Þórð­ar­son, segi efni þess ekk­ert leynd­ar­mál. Eintökum var ekki skilað inn til Lands­bóka­safns eins og lög um skyldu­skil gera ráð fyrir. Friðrik hefur aldrei áttað sig á því af hverju svo virð­ist sem þessu riti hafi verið stungið undir stól.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Teitur gagn­rýnir emb­ætti Land­læknis og umfjöllun um notkun læknis á Heilsu­veru

Teitur Guð­munds­son, læknir og fram­kvæmda­stjóri Heilsu­verndar, er ósáttur við að emb­ætti Land­læknis hafi tjáð sig og fellt dóm yfir notkun starfs­manns fyr­ir­tæk­is­ins á Heilsu­veru áður en skoðun á mál­inu var lokið. Hann segir að Heilusvernd hafi komið athuga­semdum á fram­færi við emb­ætti Land­læknis og að einnig hafi verið leitað til Lækna­fé­lags Reykja­víkur. f
SkýringBDV-ríkisstjórnin

Taugin milli Katrínar og Bjarna og límið í rík­is­stjórn­inni

Ein af þeim spurn­ingum sem vaknað hafa á þessu kjör­tíma­bili er hvort traust og eða vin­ar­þel Katrínar Jak­obs­dóttur og Bjarna Bene­dikts­sonar sé límið sem heldur rík­is­stjórn­inni saman í gegnum súrt og sætt. Sögulegt for­dæmi er fyrir því að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og stjórn­mála­aflsins lengst til vinstri á Alþingi hafi verið haldið saman af meðal ann­ars trausti milli for­manna flokk­anna.
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Fjár­fest­arnir sem seldu Elliða húsið vilja kaupa lóð af Ölfusi

Námu­fjár­fest­arnir sem seldu Elliða Vign­is­syni bæj­ar­stjóra fast­eignir í sveit­ar­fé­lag­inu fyrir ótil­greint verð í lok síð­asta árs ætla að byggja skemmu undir laxa­fóður við höfn­ina í Þor­láks­höfn. Þeir hafa lýst yfir áhuga á að kaupa fast­eign og lóð af Ölfusi og vék Elliði ekki af fundi þegar málið var tekið fyrir í byrjun febr­úar.

Mest lesið undanfarið ár