Fréttir

Tæplega helm­ingur launa­fólks á í fjár­hags­legum erf­ið­leikum

Samkvæmt nýrri könnun Vörðu – Rann­sókn­ar­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins á 40 pró­sent launa­fólks erfitt með að ná endum saman. Skýrslan, sem kynnt var á fundi í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu í dag, leiðir ljós að kjör til­tek­inna hópa sam­fé­lags­ins hafi versnað umtals­vert milli ára. Tæplega fjórð­ungur ein­hleypra for­eldra býr við efn­is­legan skort og fjár­hags­staða kvenna er verri en á karla á öllum heild­ar­mæli­kvörðum rann­sókn­ar­innar. Þá mælist staða inn­flytj­enda verri í sam­an­burði við inn­fædda Íslend­inga fjórða árið í röð.
Fréttir

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.
Fréttir

Rasísk ummæli fram­halds­skóla­kenn­ara tekin til skoð­unar

Færsla sem kenn­ari við Mennta­skól­ann að Laug­ar­vatni birti á sam­fé­lags­miðlum hefur vakið athygli. Í færsl­unni tjáði kenn­ar­inn sig um Söngvakeppni sjón­varps­ins og einn kepp­and­ann, Bashar Murad. Þykja ummælin bera ríkan keim af ras­isma og kven­fyr­ir­litn­ingu. Skóla­meist­ari ML seg­ist hafa fengið margar ábend­ingar um færslu kenn­ar­ans og að starfs­fólki skól­ans sé brugðið.
Fréttir

Efling birtir yfir­lýs­ingu um hvað stendur út af í kjara­samn­ingum

Efling segir að það séu góðar líkur á því að hægt verði að skrifa undir nýja kjara­samn­inga í dag eða á morgun. Þrjú atriði standa eftir sem samn­inga­nefnd Eflingar og Samtök Atvinnu­lífs­ins eiga eftir koma sér saman um. Enn á eftir að semja um útfærslu á upp­sagn­ar­vernd starfs­fólks á almennum vinnu­mark­aði, orða­lag samn­inga sem snúa að trún­að­ar­mönnum og að lokum á eftir semja um kjör ræst­inga­fólks.

Mest lesið undanfarið ár