Lykillinn að breyttum venjum og betra lífi: Pínlega lítil skref
Viðtal

Lyk­ill­inn að breyttum venjum og betra lífi: Pínlega lítil skref

Margir kann­ast við að vilja breyta ein­hverju í lífi sínu en mis­takast að skapa nýjar venjur. Kári Krist­ins­son, pró­fessor við Háskóla Íslands, þekkir það sjálfur. Hann var einn af þeim sem leidd­ist ræktin en með því að fylgja nið­ur­stöðum rann­sókna um það hvernig á að breyta lífi sínu tókst honum að kom­ast á þann stað að nú mætir hann helst fjórum sinnum í viku. Lyk­ill­inn er að taka pín­lega lítil skref í rétta átt.
Nauðgað eftir að hann kom út sem trans maður
Viðtal

Nauðgað eftir að hann kom út sem trans maður

Ormur Guð­jóns­son fædd­ist í lík­ama stúlku og var gefið nafnið Dagbjört. Einelti og van­líðan ein­kenndu grunn­skóla­árin og 16 ára fór hann á þung­lyndis- og kvíða­lyf. Hefði hann bara vitað að til væru trans menn hefði hann komið fyrr út úr skápnum sem slíkur. Eftir að hann kom út sem karl­maður lenti hann í nauðgun sem hefur litað síð­ustu ár. Nú dreymir hann um að fara aftur út á vinnu­markað og eign­ast timb­ur­hús.
Sér fram á að fara með YouTube-skattaskuld í gröfina
Viðtal

Sér fram á að fara með YouTube-skatta­skuld í gröf­ina

Líf­eyr­is­þegi og fyrr­ver­andi sjó­maður á Stokks­eyri þarf að greiða um tvær millj­ónir króna til skatts­ins vegna tekna sem hann hafði af gríð­ar­lega vin­sælli YouTube-rás sinni árið 2019. Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Birgir Rúnar Sæmunds­son að hann telji skatta­yf­ir­völd ganga hart fram gegn nær eigna­lausum eldri borg­ara. Hann hefur samið um greiðslur af skuld­inni sem ná ekki að dekka vext­ina sem falla til í hverjum mán­uði.
Svo þungbært að flýja heimalandið að hún fékk hjartaáfall
ViðtalÚkraínustríðið

Svo þung­bært að flýja heima­landið að hún fékk hjarta­á­fall

„Hjartað í mér sprakk,“ útskýrir Tetiana Rukh hversu sárt það var að flýja heima­landið og allt sem þau hjónin höfðu varið ævinni í að byggja þar upp. Eig­in­mað­ur­inn, Oleksandr Rukh, var með í för en hann var þá að hefja end­ur­hæf­ingu eftir heila­blóð­fall. Dóttir þeirra lagði hart að þeim að fara og var með í för, ásamt barna­barni þeirra.
Stimplaði sig út af næturvakt og fór í veikindaleyfi
Viðtal

Stimpl­aði sig út af næt­ur­vakt og fór í veik­inda­leyfi

Theódór Skúli Sig­urðs­son brann fyrir lækn­is­fræði, vildi allt fyrir sjúk­linga sína gera en hafði hvorki aðstæður né úrræði til þess. Hann átti æ erf­ið­ara með að slíta sig frá vinnu, þar til hann lenti í heim­speki­legu sam­tali um til­gang lífs­ins við mann deyj­andi konu, og þar með var það ákveðið, hann yrði að skipta um kúrs. Þau Kristín Sig­urð­ar­dóttir ræða streitu, aðferðir til að takast á við hana og lær­dóm­inn.

Mest lesið undanfarið ár