Síðasta tilraun Ingu Sæland
ViðtalFormannaviðtöl

Síðasta til­raun Ingu Sæland

Flokkur fólks­ins var stofn­aður til að útrýma fátækt á Íslandi, sem Inga Sæland, for­maður flokks­ins, þekkir af eigin raun. Hún boðar nýtt hús­næð­is­kerfi með fyr­ir­sjá­an­leika og nið­ur­skurð í öllu því sem heita aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum. Grænasta land í heimi eigi að nota pen­ing­ana í heil­brigð­is­kerfi og aðra inn­viði sem standi á brauð­fótum.
„Þú ert hluti vandamálsins, gaur“
Viðtal

„Þú ert hluti vanda­máls­ins, gaur“

Myndin Stúlkan með nál­ina eftir Magnus von Horn er nú sýnd í Bíó Paradís og er til­nefnd til Evrópsku kvik­mynda­verð­laun­anna. Lauslega byggð á raun­veru­leik­anum segir hún sögu Karoline, verk­smiðju­stúlku í harðri lífs­bar­áttu við hrun fyrri heims­styrj­ald­ar­innar. Atvinnu­laus og barns­haf­andi hittir hún Dagmar sem aðstoðar konur við að finna fóst­ur­stað fyrir börn. En barn­anna bíða önnur örlög. Danska stór­leik­konan Trine Dyrholm leikur Dagmar og var til í við­tal.
„Bandaríski draumurinn holdi klæddur“
Viðtal

„Banda­ríski draum­ur­inn holdi klæddur“

Stjórn­mála­fræði­pró­fess­or­inn Baldur Þór­halls­son segir að kjör Donalds Trump skýrist helst af hefð­bundnum efna­hags­legum ástæðum. Fyrir mörgum Banda­ríkja­mönnum sé verð­andi for­seti hold­gerv­ingur banda­ríska draums­ins og lík­legri til að halda honum á lífi en fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins. Baldur segir að íslenskra stjórn­valda bíði það verk­efni að reyna að sog­ast ekki inn í við­skipta­stríð Banda­ríkj­anna og Kína.
„Kvenfrelsismál eru líka heilbrigðismál“
ViðtalFormannaviðtöl

„Kven­frels­is­mál eru líka heil­brigð­is­mál“

Staða Vinstri grænna er þung. Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gerir sér grein fyrir því að það sé á bratt­ann að sækja en segir mik­inn þrótt og kraft í flokks­fólki. Hún sakar Bjarna Bene­dikts­son um trún­að­ar­brest í aðdrag­anda stjórn­ar­slita sem olli því að Vinstri græn gátu ekki hugsað sér að taka þátt í starfs­stjórn. Það sé full­gild spurn­ing hvort það hafi verið of dýru verði keypt að vera í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum.
Mögulegt að hætta að vinna um fimmtugt
Viðtal

Mögulegt að hætta að vinna um fimm­tugt

Georg Lúð­víks­son, sem hefur unnið við heim­il­is­fjár­mál og fjár­mála­ráð­gjöf um ára­bil, segir að með reglu­legum sprn­aði frá þrí­tugu geti með­al­tekju­fólk hætt að vinna um fimm­tugt, en það fari þó eftir aðstæðum. Ef spara á til langs tíma þá hafi það sögu­lega reynst best að fjár­festa í vel dreifðu verð­bréfa­safni. Grund­vall­ar­reglan er ein­fald­lega að eyða minna en maður aflar.
Grunaði að það ætti að reka hana
Viðtal

Grunaði að það ætti að reka hana

Vigdís Häsler var rekin úr starfi fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna eftir að nýr for­maður tók þar við fyrr á árinu. Hún segir kosn­inga­vél Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa verið gang­setta til að koma honum að. Vigdís ræðir brott­rekst­ur­inn og rasísk ummæli sem for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins hafði um hana. Orðin hafi átt að smætta og brjóta hana niður. Hún seg­ist aldrei munu líta Sigurð Inga Jóhanns­son sömu augum eftir það.
Byggjum við af gæðum?
ViðtalUm hvað er kosið?

Byggjum við af gæðum?

Vinna við yfir­stand­andi rann­sókn á gæðum nýrra hverfa sem byggð­ust upp hér­lendis frá 2015 til 2019 gefur til kynna að sam­göngu­teng­ingar og aðgengi að nær­þjón­ustu á þessum nýju búsetu­svæðum sé í fæstum til­vikum eins og best verður á kosið. Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir skipu­lags­fræð­ingur von­ast eftir umræðu um gæði byggðar, en ekki bara magn­tölur íbúð­ar­ein­inga, fram að kosn­ingum.
Innborgun á íbúð fjarlægur draumur
ViðtalUm hvað er kosið?

Inn­borgun á íbúð fjar­lægur draumur

Ung tveggja barna móðir sem nemur leik­skóla­kenn­ara­fræði við Háskóla Íslands seg­ist ekki sjá fyrir sér að hún og maður hennar nái að safna sér fyrir útborgun í íbúð í náinni fram­tíð, en þau búa á stúd­enta­görðum. Hekla Bald­urs­dóttir segir að staða fjöl­skyld­unnar á hús­næð­is­mark­aði valdi sér ekki miklum áhyggjum. „Kannski af því að það eru allir í svip­aðri stöðu í kringum mig.“
Fyllist „rosalegum vanmætti“ yfir fasteignamarkaðinum
ViðtalUm hvað er kosið?

Fyllist „rosa­legum van­mætti“ yfir fast­eigna­mark­að­inum

Ein­stæður faðir á fer­tugs­aldri segir að honum líði eins og hann þyrfti að vinna í lottó til að geta keypt litla íbúð í nágrenni við barns­móður sína og leik­skóla dótt­ur­innar í Vesturbæ Reykja­víkur. Í dag er Ragnar Ágúst Nathana­els­son á stúd­enta­görðum í Vatns­mýr­inni en þegar nám­inu lýkur virð­ist blasa við honum fremur erfið staða.

Mest lesið undanfarið ár