Eru kannski að taka ranga hægri beygju
Greining

Eru kannski að taka ranga hægri beygju

Heim­ildin fékk tvo almanna­tengla sem eru með haus­inn á kafi í póli­tík til að pæla í stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Annar þeirra seg­ist telja að með því að elta orð­ræðu Mið­flokks­ins sé Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að gera sér óleik. „Fólk er almennt ekki ras­istar á Íslandi,“ segir Andrés Jónsson. Björgvin Guð­munds­son segir marga Sjálf­stæð­is­menn í vanda, svo miklum að umræða sé farin af stað um nýtt fram­boð á hægri kant­inum. Og margt hefst með umræðu.
Sérfræðingar senda út neyðarkall: Hafa aldrei farið nær mörkunum
GreiningLoftslagsvá

Sér­fræð­ingar senda út neyð­ar­kall: Hafa aldrei farið nær mörk­unum

Á sama tíma og hita­met voru slegin víða í sumar og vís­inda­fólk tal­aði um for­dæma­lausa hita af völdum hlýn­unar jarðar voru gular og app­el­sínugular við­varnir í gildi á Íslandi, meðal ann­ars vegna snjó­komu. Veð­ur­stofa Íslands telur „vel mögu­legt“ að vegna hugs­an­legrar trufl­unar á varma­flutn­ingi inn á hluta af Norður-Atl­ants­hafi kólni hér á meðan hitnar víð­ast hvar ann­ars staðar.
Slys og dauðsföll ferðamanna eru ekki skráð sérstaklega
GreiningStjórnleysi í ferðaþjónustu

Slys og dauðs­föll ferða­manna eru ekki skráð sér­stak­lega

Mikil umræða um öryggi ferða­manna fór af stað í kjöl­far slyss­ins í Breiða­merk­ur­jökli síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Fréttir af alvar­legum slysum meðal ferða­manna birt­ast reglu­lega í fjöl­miðlum og vekja gjarnan óhug. Hins vegar er hvergi að finna mið­læga skrá þar sem haldið er utan um tíðni slysa á meðal ferða­manna hér á landi.
Útsvarskóngar og tekjukóngar ólíkur hópur
GreiningHátekjulistinn 2024

Útsvar­s­kóngar og tekju­kóngar ólíkur hópur

Af þeim sem högn­uð­ust mest á sölu kvóta á síð­asta ári, greiddi trillu­karl á Sel­tjarn­ar­nesi lang­sam­lega mest í útsvar og tekju­skatt. Auð­veld­lega er hægt að spara sér háar fjár­hæðir í skatt eftir því hvernig tekjur eru flokk­aðar. Það kostar ríkið millj­arða og var fyrir fjórum árum sagt for­gangs­mál stjórn­valda að breyta. Það hefur þó enn ekki gerst.
100 bestu bækur 21. aldar – íslenski listinn
Greining

100 bestu bækur 21. aldar – íslenski list­inn

Dag­blaðið The New York Times birti nýverið lista yfir 100 bestu bækur 21. ald­ar­innar í til­efni þess að ald­ar­fjórð­ungur er senn lið­inn frá upp­hafi hennar. Á list­anum er að finna fjölda skáld­verka sem notið hafa vin­sælda meðal íslenskra les­enda í íslenskri þýð­ingu. Má þar nefna bók­ina Fram­úr­skar­andi vin­kona, fyrstu bók í Napólí-fjór­leik Elenu Ferrante, sem vermir 1. sæti list­ans og Slepptu mér aldrei eftir jap­ansk-enska rit­höf­und­inn og Nóbels­hafann Kazuo Ishiguro sem situr í 9. sæti hans. En hverjar eru bestu íslensku bækur 21. ald­ar­innar?
Meðallaun segja ekki allt varðandi kjör fólks í landinu
GreiningMillistétt í molum

Með­al­laun segja ekki allt varð­andi kjör fólks í land­inu

Reglu­lega er tölum um með­al­laun Íslend­inga fleygt fram í umræð­unni og þau gjarnan sögð vera óvenjuhá í sam­an­burði við önnur lönd. Í fyrra voru heild­ar­laun full­vinn­andi fólks að með­al­tali 935.000 þús­und krónur á mán­uði. Hins vegar fær flest starf­andi fólk mán­að­ar­laun sem eru lægri en þetta með­al­tal. Að ýmsu þarf að gæta þegar með­al­talið er rætt því hlut­fallið segir ekki alla sög­una.
„Það er ekkert eftir“
GreiningMillistétt í molum

„Það er ekk­ert eftir“

Þrátt fyrir að um helm­ingur hjóna­banda endi með skiln­aði virð­ist kerfið ekki miða við for­eldra sem vana­lega eru kall­aðir ein­stæðir – en eru í þess­ari grein kall­aðir sjálf­stæðir. Heim­ildin fékk á þriðja tug þátt­tak­enda til að svara spurn­ingum um lífs­kjör sín. Svörin sem bár­ust kall­ast vel á við lífs­kjarakann­anir sem fram­kvæmdar hafa verið að und­an­förnu.
Söluráðgjafar fengu þóknun fyrir sölu á Íslandsbanka þrátt fyrir að hafa brotið lög
Greining

Sölu­ráð­gjafar fengu þóknun fyrir sölu á Íslands­banka þrátt fyrir að hafa brotið lög

Banka­sýsla rík­is­ins ætlar ekki að taka ákvörðun um hvort hún greiði sölu­ráð­gjöfum val­kvæða þóknun fyrir aðkomu sína að sölu á hlut í Íslands­banka fyrir rúmum tveimur árum fyrr en athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á þætti þeirra í sölu­ferl­inu liggur fyrir. Eft­ir­litið hefur þegar lokið athugun á tveimur ráð­gjöfum og komst að þeirri nið­ur­stöðu að báðir hefðu brotið gegn lögum.
Logos fékk 30 milljónir frá Bankasýslunni eftir að ákveðið var að leggja hana niður
Greining

Logos fékk 30 millj­ónir frá Banka­sýsl­unni eftir að ákveðið var að leggja hana niður

Síðan að til­kynnt var að leggja ætti nið­ur Banka­sýslu rík­is­ins og fram að síð­ustu ára­mót­um þá keypti stofn­un­in þjón­ustu fyr­ir 57,4 millj­ón­ir króna. Fyrr á þessu ári kom fram að hún gæti ekki svarað því nema að hluta af hverjum hún keypti þessa þjón­ustu. Nú hafa borist svör um að Logos hafi fengið stærstan hluta en Banka­sýslan getur enn ekki gert grein fyrir allri upp­hæð­inni.

Mest lesið undanfarið ár