Logos fékk 30 milljónir frá Bankasýslunni eftir að ákveðið var að leggja hana niður

Síðan að til­kynnt var að leggja ætti nið­ur Banka­sýslu rík­is­ins og fram að síð­ustu ára­mót­um þá keypti stofn­un­in þjón­ustu fyr­ir 57,4 millj­ón­ir króna. Fyrr á þessu ári kom fram að hún gæti ekki svarað því nema að hluta af hverjum hún keypti þessa þjón­ustu. Nú hafa borist svör um að Logos hafi fengið stærstan hluta en Banka­sýslan getur enn ekki gert grein fyrir allri upp­hæð­inni.

Logos fékk 30 milljónir frá Bankasýslunni eftir að ákveðið var að leggja hana niður
Banka­sýslan lögð niður Rúmlega tvö ár eru síðan að til­kynnt var að Banka­sýsla rík­is­ins, sem stýrt er af Jóni Gunnari Jónssyni, yrði lögð niður. Bjarni Bene­dikts­son er einn þriggja ráð­herra sem setið hafa í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, sem stofn­unin heyrir undir, á þeim tíma. Hin eru Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir og Sigurður Ingi Jóhanns­son. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Þáver­andi for­svars­menn stjórn­ar­flokk­anna gáfu út yfir­lýs­ingu 19. apríl 2022. Yfir­lýs­ingin var við­bragð við mik­illi ólgu í sam­fé­lag­inu vegna sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem fram hafði farið nokkrum vikum áður. Þá var 22,5 pró­sent hlutur í bank­anum seldur í lok­uðu útboði til val­inna fjár­festa. Í yfir­lýs­ing­unni var meðal ann­ars greint frá því að Banka­sýsla rík­is­ins, stofn­unin sem sá um fram­kvæmd söl­unnar og hann­aði sölu­ferlið, yrði lögð niður. Rúm tvö ár eru síðan að yfir­lýs­ingin var birt og Banka­sýslan er enn starf­andi. Í frum­varpi sem er nú til með­ferðar á Alþingi, og snýr að frek­ari ráð­stöfun á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka, er sér­stak­lega tekið fram að stofn­unin fái ekki að koma að næstu skrefum í sölu­ferl­inu. 

Samkvæmt heima­síðu Banka­sýsl­unnar er Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri hennar, eini starfs­maður stofn­un­ar­innar. Hún hefur víð­tæk­ari hlut­verk en ein­ungis það að selja hluti í bönkum rík­is­ins. Banka­sýslan fer líka með eign­ar­hluti rík­is­ins og beitir …

Kjósa
89
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • David Olafson skrifaði
    logos vinnur fyrir bankasýslu ríkisins med løgfrædi fabriku 30 miljónir eru bara dropi í havi midad vid hvad vid borgum logos løgfrædi tjónustu og fyrir hvad borgum vid logos
    1
  • Olafur Kristjansson skrifaði
    Ekki er lyktin góð frekar en vanalega.
    6
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Er ekki venja að þegar fyrirtæki sé lokað, að starfsfólki sé sagt upp? Það geti haldið áfram að eyða fé úr ríkissjóði eins og enginn sé morgundagurinn. Eða gleymdist að segja starfsfólkinu upp?
    9
    • Jón Baldur Þorbjörnsson skrifaði
      Gæti verið að vanhæfir starfsmenn séu líka að skammta sér starfslokagreiðslur fyrir að leggja stofnunina niður og segja sjálfum sér upp? -Spyr sá sem ekki veit, kannski vegna ógagnsæis í öllu þessu leikriti.
      8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár