Mynd: Golli

„Það er ekkert eftir“

Þrátt fyrir að um helm­ingur hjóna­banda endi með skiln­aði virð­ist kerfið ekki miða við for­eldra sem vana­lega eru kall­aðir ein­stæðir – en eru í þess­ari grein kall­aðir sjálf­stæðir. Heim­ildin fékk á þriðja tug þátt­tak­enda til að svara spurn­ingum um lífs­kjör sín. Svörin sem bár­ust kall­ast vel á við lífs­kjarakann­anir sem fram­kvæmdar hafa verið að und­an­förnu.

„For­sendur fyrir sóma­sam­legu lífi fyrir vel menntað for­eldri í góðri vinnu eiga ekki að vera sam­búð. Fólk hlýtur að eiga að geta lifað sjálf­stætt kjósi það að gera það,“ segir einn þátt­tak­anda sem svar­aði spurn­inga­lista frá Heim­ild­inni um lífs­kjör sín sem sjálf­stætt for­eldri en þátt­tak­endur voru á þriðja tug, vel flestir með góða menntun en bæði á leigu- og fast­eigna­mark­aði. Margir eiga erfitt með að ná endum saman og flestir glíma við afkomustreitu.

Könnun Heim­ild­ar­innar var óform­leg en veitti þessum hljóða hópi tæki­færi til að tjá sig um fjár­hags­lega stöðu sína, án þess að þurfa að koma fram undir nafni og mynd. Fimm konur til við­bótar eru síðan til við­tals um veru­leika sinn sem vel mennt­aðar sjálf­stæðar mæður á vinnu­mark­aði. Samtals eru þessar fimm konur með þrettán háskóla­gráður, en það virð­ist ekki duga til að lifa áhyggju­lausu lífi. 

Hér á eftir verður gripið inn á milli til upp­lif­ana …

Kjósa
57
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jonaz Mueller skrifaði
    það er ekki til neitt á Íslandi sem heitir ,,mjúk" lending í efnahagsmálum. Við aðlögumst alltaf á harkalegan hátt, með verðbólgu,atvinnuleysi og núll hagvexti áður en rofa tekur á ný og eyðslufylleríið fer aftur í gang.
    0
  • Þór Saari skrifaði
    "Markaðshagkerfið Ísland," hið margfræga, hefur brugðist, enda eðlilegir markaðir ekki til að neinu marki í einum einasta geira atvinnlífsins heldur ríkir fákeppni og einokun á öllum sviðum, ergo, verðhækkanir og basl fyrir almenning. Hér þurfa að koma til róttækar kerfisbreytingar.
    8
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Kannski verða bara flestir karlar aumingjar þegar hjónabandið eða ástarsambandið slitnar. Við erum bara svona, flestir. Algjörlega háðir mæðrum okkar og óskiptri athygli þeirra og hrósi. Yfirförum þessa þjónustu svo á makann. Vanti upp á væntingar okkar til hans byrjar að ólga gremja og óreiða verður á mestöllu hugarástandi okkar hetjanna. Konunni fyrrverandi er svo bara einni kennt um þessa vanlíðan og reiðin eykst jafnvel bara með tímanum. Við sjáum það a fréttaflutningi daglega af heiftúðlegum árásum karla á fyrrverandi maka inn a heimilum þeirra og oft fyrir framan börn þeirra. Sturlaðir og vansvefta af söknuði og særðu stolti ráðumst við á mæður barna okkar með öllu afli. Ástæðan er kannski barnalegur vanþroski og ofdekraður heili manna sem krefjast þess að þægindi þeirra séu ávallt í fyrirrúmi. Karlmennska okkar og eigin upplifun um eigið ágæti sé ætíð sýnd óskoruð virðing og viðurkennning. Þetta þægilega hrós og óskoraðs umburðarlyndis sem gafst frá mæðrum okkar og átti auðvitað sjálfvirkt að millifærast svo beint yfir á viðmót mæðra barna okkar til að uppfylla stolt okkar karla yfir sjálfum okkur. Barnaskapurinn er algjör og niðurstaðan eftir því.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Millistétt í molum

Meðallaun segja ekki allt varðandi kjör fólks í landinu
GreiningMillistétt í molum

Með­al­laun segja ekki allt varð­andi kjör fólks í land­inu

Reglu­lega er tölum um með­al­laun Íslend­inga fleygt fram í umræð­unni og þau gjarnan sögð vera óvenjuhá í sam­an­burði við önnur lönd. Í fyrra voru heild­ar­laun full­vinn­andi fólks að með­al­tali 935.000 þús­und krónur á mán­uði. Hins vegar fær flest starf­andi fólk mán­að­ar­laun sem eru lægri en þetta með­al­tal. Að ýmsu þarf að gæta þegar með­al­talið er rætt því hlut­fallið segir ekki alla sög­una.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár