FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Yfir­mað­ur­inn í spari­sjóðnum, sem hjálp­aði Illuga undan fjár­námi, var skip­aður í stjórn RÚV

Eiríkur Finnur Greips­son, stjórn­ar­maður í Rík­is­út­varp­inu og vinur Illuga Gunn­ars­sonar til margra ára, var aðstoð­ar­spari­sjóðs­stjóri þegar Illugi og eig­in­kona hans fengu lán þar í tvígang. Seinna lánið var til að greiða upp fjár­nám hjá Glitni í árs­byrjun 2008. Eiríkur Finnur vill ekki ræða lán­veit­ing­arnar. Illugi skip­aði hann í stjórn RÚV.
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Illugi neitar að gefa upp hvort fyr­ir­tæki hans fékk greiðslu frá Orku Energy

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra seg­ist hafa svarað öllu í Orku Energy mál­inu þrátt fyrir að hann hafi ekki svarað mörgum spurn­ingum fjöl­miðla um málið. Hann seg­ist per­sónu­lega ekki hafa fengið greitt meira frá Orku Energy en vill ekki ræða 1,2 millj­óna greiðsl­una til eign­ar­halds­fé­lags síns.
FréttirThorsil-málið

Thorsil seg­ist hafa tryggt sér orku fyrir kís­il­málm­verk­smiðj­una

Eyþór Arnalds vill ekki gefa upp stöð­una á raf­orku­samn­ingi Thorsil. Fram­kvæmda­stjór­inn segir ork­una tryggða. Lands­virkjun segir samn­inga ekki í höfn en að við­ræður hafi staðið yfir. Thorsil er nátengt Sjálf­stæð­is­flokknum og hefur rík­inu verið stefnt vegna íviln­ana til fyr­ir­tæk­is­ins sem nema um 800 millj­ónum króna.
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Fékk 1,2 millj­ónir frá Orku Energy 2012

OG Capital fékk greiðslu frá Orku Energy árið 2012. Illugi Gunn­ars­son hefur sagt að „megin hluti“ vinnu hans fyrir Orku Energy hafi farið fram árið 2011. Illugi hefur sagt að hann hafi ekk­ert unnið fyrir Orku Energy eftir að hann sett­ist aftur á þing í októ­ber 2011. Illugi hefur jafn­framt sagt að hann hafi ekki fengið frek­ari þókn­anir frá Orku Energy en 5,6 millj­óna launa­greiðsl­una sem verið hefur til umræðu síð­ustu daga.

Mest lesið undanfarið ár