Útlendingastofnun neitar að taka hælisumsókn sýrlenskrar fjölskyldu til efnislegrar meðferðar

„Ég skildi allt eftir, húsið vinn­una, allt. Ég fór bara með fötin sem ég klædd­ist,“ sagði fað­ir­inn.

Útlendingastofnun neitar að taka hælisumsókn sýrlenskrar fjölskyldu til efnislegrar meðferðar

Útlend­inga­stofnun synj­aði fjög­urra manna fjöl­skyldu frá Sýrlandi um efn­is­lega með­ferð hæl­is­um­sóknar á Íslandi í gær. Þetta stað­festir Krist­jana Fenger, lög­maður fjöl­skyld­unnar, í sam­tali við Stundina. Hún segir nið­ur­stöð­una gríð­ar­leg von­brigði.

Fjöl­skyldan kom til Íslands í júlí eftir að hafa verið á flótta í tæp tvö ár. Fólkið hefur þegar fengið hæli í Grikk­landi, en að því er fram kom í kvöld­fréttum RÚV ótt­ast for­eldr­arnir að þurfa að búa á göt­unni þar í landi og verða við­skila við börnin sín. 

Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hefur lýst því yfir úr ræðu­stól Alþingis að ekki sé öruggt að senda hæl­is­leit­endur til Grikk­lands. Árið 2010 ákvað dóms­mála- og mann­réttinda­ráð­herra að stöðva end­ur­send­ingar hæl­is­leit­enda til Grikk­lands á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Þetta telur Útlend­inga­stofnun hins vegar ekki hafa þýð­ingu fyrir fjöl­skyld­una sem hér á í hlut, enda hafi fólkið þegar fengið við­ur­kenn­ingu sem flótta­menn í Grikk­landi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár