FréttirÚtboð í Leifsstöð

Útboðið umdeilda í Leifs­stöð: Rekstur fyr­ir­tækis tengdu Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga gengur „ágæt­lega“

Fram­kvæmda­stjóri Lag­ar­d­ére Travel Retail ehf. sem rekur sex veit­inga­hús og versl­anir í Leifs­stöð seg­ist vera ánægður með rekst­ur­inn á fyrsta árinu. Fyr­ir­tækið er að hluta til í eigu eig­in­konu aðstoð­ar­kaup­fé­lags­stjóra Kaup­fé­lags Skag­firð­inga. Fyr­ir­tækið var tekið fram yfir Kaffitár sem verið hafði í Leifs­stöð í tíu en Kaffitár bíður enn eftir að fá gögn um útboðið sem það átti að fá.
FréttirÁlver

Af 56 millj­arða tekjum álvers­ins í Straums­vík renna aðeins 2 millj­arðar til hins opin­bera

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir telur að afleið­ing­arnar af lokun álvers­ins í Straums­vík yrðu slæmar fyrir Hafn­ar­fjörð og orð­spor Íslands. Sjö stórnot­endur á Íslandi nota 80 pró­sent þess raf­magns sem fram­leitt er á Íslandi. Útflutn­ings­verð­mæti áls nemur 226 millj­örðum á ári en ein­ungis örfá pró­sent af þeim tekjum skila sér til hins opin­bera, eða 3,6 pró­sent í til­felli álvers­ins í Straums­vík.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Þögla einka­væð­ingin í heil­brigð­is­kerf­inu: „Sjá menn ekki hvert stefnir?“

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra stendur nú fyrir grund­vall­ar­breyt­ingu á heisu­gæsl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem til­tölu­lega lítið hefur verið fjallað um. Með heilsu­gæslu­vali má ætla að sam­keppni innan heilsu­gæsl­unnar auk­ist til muna og að fleiri einka­reknar stöðvar verði stofn­aðar. Einn af ráð­gjöf­unum á bak við breyt­ing­arnar er hlynntur því að læknar sjái um rekst­ur­inn en ekki fjár­festar. „Sjá menn ekki hvert stefnir?“ spyr Ögmundur Jónasson þing­maður og fyrr­ver­andi ráð­herra.

22 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Tóku um 350 millj­óna arð út úr tækni­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu

Eigendur Art Medica unnu á tækni­frjóvg­un­ar­deild Land­spít­al­ans en sögðu upp til að stofna einka­fyr­ir­tæki á sviði tækni­frjóvg­ana árið 2004. Þeir tóku mik­inn arð út úr fyr­ir­tæk­inu og hafa nú selt það til sænsks tækni­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tækis fyrir verð sem getur ekki numið lægri upp­hæð en nokkur hund­ruð millj­ónum. Fyr­ir­tækið hefur verið gagn­rýnt fyrir okur en fyrri eig­andi segir verð á þjón­ust­unni lægra en á Norð­ur­lönd­unum.
Fréttir

Sjóðir kirkj­unnar fá meira en Útlend­inga­stofnun

Á næsta ári greiðir íslenska ríkið alls 702,6 millj­ónir í starf­semi Þjóð­kirkj­unnar sem stendur utan við bæði kirkju­jarða­sam­komu­lagið og sókn­ar­gjöld. Til sam­an­burðar gera fjár­lög ráð fyrir að íslenska ríkið muni verja 434,8 millj­ónir í Grein­ingar- og ráð­gjaf­ar­stöð rík­is­ins, en þar eru nú um 400 börn á biðlista eftir grein­ingu, og 256,2 millj­ónum í rekstur Útlend­inga­stofn­unar.

Mest lesið undanfarið ár