Umdeildur lögreglustjóri skorar á bæjarstjórann að bjóða sig fram til Alþingis
FréttirÞjóðhátíð

Umdeildur lög­reglu­stjóri skorar á bæj­ar­stjór­ann að bjóða sig fram til Alþingis

„Í raun gagn­ast þessi þögn þeim sem vilja halda ímynd þjóð­há­tíðar sem bestri,“ sagði tals­kona Stíga­móta í fyrra þegar umræðan um þagn­ar­kröfu á Þjóð­há­tíð stóð sem hæst. Lög­reglu­stjór­inn í Vest­manna­eyjum fer fyrir hópi stuðn­ings­manna Elliða Vign­is­sonar sem mun lík­lega ákveða hvort hann hyggi á þing­fram­boð á Þjóð­há­tíð­inni.
Ferðamenn fá fullt aðgengi að laugasvæði á meðan fjölskyldum á flótta er haldið fjarri
Fréttir

Ferða­menn fá fullt aðgengi að lauga­svæði á meðan fjöl­skyldum á flótta er haldið fjarri

Gestir á Hótel Bifröst hafa aðgang að vað­laug, gufu­baði, heitum potti og lík­ams­rækt ólíkt fjöl­skyldu­fólki úr röðum hæl­is­leit­enda sem fengið hafa inni á svæð­inu. Vil­hjálmur Egilsson, rektor Háskól­ans á Bifröst, við­ur­kennir mis­munun en segir hana byggða á „við­skipta­legum for­sendum.“ Eiríkur Bergmann, pró­fessor við skól­ann, vill veita hinum nýju íbúum fullt aðgengi.
Samstarfsmaður íslenska ríkisins notaði þrjú félög í skattaskjólum
Fréttir

Sam­starfs­maður íslenska rík­is­ins not­aði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harð­ar­son, fjár­festir og stjórn­ar­for­maður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann not­aði í við­skiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyr­ir­tæki sem á í sam­starfi við íslenska ríkið í orku­málum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, vegna orku­mála. Einsdæmi er að einka­fyr­ir­tæki kom­ist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
Segir hagnaðinn af Litahlaupinu vera minni en styrkveitingar til góðgerðarmála
FréttirÚtivist

Segir hagn­að­inn af Lita­hlaup­inu vera minni en styrk­veit­ingar til góð­gerð­ar­mála

The Color Run er hlaupið á yfir 300 stöðum í heim­inum á hverju ári. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins, sem sér um fram­kvæmd Lita­hlaups­ins á Íslandi, neitar að gefa upp tekjur sínar og hagnað. Uppselt var í hlaupið og voru þátt­tak­endur um tólf þús­und. Fyr­ir­tæki eins og Alvogen greiða þóknun til að tengja nafn sitt við hlaupið en for­svars­menn Lita­hlaups­ins gefa ekki upp hversu há hún er.
Endurteknir hagsmunaárekstrar Bjarna vegna viðskipta ættingja hans
FréttirThorsil-málið

End­ur­teknir hags­muna­á­rekstrar Bjarna vegna við­skipta ætt­ingja hans

Sú staða hefur end­ur­tekið komið upp í ráð­herra­tíð Bjarna Bene­dikts­sonar að fyr­ir­tæki Einars Sveins­sonar, föð­ur­bróður hans, teng­ist við­skiptum við opin­bera eða hálf­op­in­bera aðila sem lúta ráð­herra­valdi Bjarna. Nú er það Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins sem íhugar að kaupa hluta­bréf í kís­il­málm­fyr­ir­tæk­inu Thorsil sem fyr­ir­tæki Einars er hlut­hafi í en Bjarni skipar fjóra af átta stjórn­ar­mönnum sjóðs­ins. Gengur þessi staða upp sam­kvæmt lögum og reglum í íslensku sam­fé­lagi?

Mest lesið undanfarið ár