Fjölskylda brotaþola Roberts Downey ringluð eftir nýjar upplýsingar í málinu
Fréttir

Fjöl­skylda brota­þola Roberts Downey ringluð eftir nýjar upp­lýs­ingar í mál­inu

„Við erum bara venju­legt fólk sem vill fá hrein­skilin og eðli­leg svör,“ segir Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir Nínu Rúnar Bergs­dóttur, einnar stúlkunnar sem Robert Downey braut á. Feðginin hafa ítrekað kallað eftir svörum frá Bjarna Bene­dikts­syni um málið, án þess að fá nokkur við­brögð. Bjarni svarar núna leið­ara­höf­undi Frétta­blaðs­ins, og í svörum hans kemur fram að hann hafði enga aðkomu að mál­inu, sem var afgreitt áður en hann tók við ráðu­neyt­inu.

Mest lesið undanfarið ár