Beðið um aðstoð við mögulegt framsal tíu Samherjamanna í bréfi lögreglunnar í Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Beðið um aðstoð við mögu­legt fram­sal tíu Sam­herj­a­manna í bréfi lög­regl­unnar í Namibíu

Lög­reglan í Namibíu bað Interpol þar í landi um aðstoð um að finna sama­stað 10 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna Samherja. Sterkur grunur um að starfs­menn Samherj hafi tekið þátt í lög­brotum segir í bréfi lög­regl­unnar í Namibíu. Bréfið sýnir að lög­reglan í Namibíu hefur ráð­gert að láta stjórn­endur Samherja svara til mögu­legra saka þar í landi.
Gögn sýna útsendara Samherja ræða við mútuþega um að hylja peningaslóðina
FréttirSamherjamálið

Gögn sýna útsend­ara Samherja ræða við mútu­þega um að hylja pen­inga­slóð­ina

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, ásak­aði upp­ljóstr­ar­ann í Namibíu og ávítti fjöl­miðla fyrir umfjöllun um mútu­mál félags­ins í Namibíu. Nú sýna ný gögn að rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn Jón Óttar Ólafsson sem Þor­steinn kvaðst hafa sent til Namibíu átti í sam­skiptum við mútu­þeg­ann James Hatuikulipi sum­arið 2019 um hvernig tek­ist hefði að hylja slóð pen­inga­greiðsln­anna.
Með windinn í fangið
Mynd dagsins

Með windinn í fangið

Raf­skútur í Reykja­vík­ur­borg voru hvorki fleiri né færri en 1.100 þegar mest var í haust. Eins snið­ugur og þessi ferða­máti er, þá þarf nauð­syn­lega að setja betra reglu­verk um raf­skút­urnar, sem margar hverjar eru skildar eftir á óheppi­legum stöðum bæði fyrir hjólandi og gang­andi veg­far­endur. Það eru fjögur fyr­ir­tæki sem keppa um mark­að­inn hér í Reykja­vík og heita þau öll ramm­ís­lenskum nöfnum: Zolo, Hopp, Wind og Kikk.
Fiskistofa semur án útboðs við fyrirtæki tengt fjármálastjóra ríkisstofnunarinnar
Fréttir

Fiski­stofa semur án útboðs við fyr­ir­tæki tengt fjár­mála­stjóra rík­is­stofn­un­ar­innar

Rík­is­stofn­unin Fiski­stofa útvi­staði tölvu­vinnslu hjá stofn­un­inni til einka­fyr­ir­tækis á Akureyri sem heitir Þekking Tristan í nýaf­stöðnum skipu­lags­sbreyt­ingum. Fjármála- og mannauðs­stjóri Fiski­stofu, Hildur Ösp Gylfa­dóttir, er vara­for­maður stjórnar KEA sem er annar hlut­hafi tölvu­fyr­ir­tæk­is­ins. Hún seg­ist hafa sagt sig frá aðkomu að mál­inu vegna hags­muna­tengsl­anna.
Systralag
Mynd dagsins

Systra­lag

„Unaður er heilandi og sjálfs­fróun er besta leiðin til þess að róa tauga­kerfið og auka gleði­horm­ónin.“ segir Rósa María Ósk­ars­dóttir, Bodysex leið­bein­andi með meiru. „Á nám­skeið­inu komum við saman naktar og losum okkur við nei­kvæðar lík­ams­í­myndir, til að blómstra kyn­ferð­is­lega.“ Hafir þú áhuga á að kom­ast í tæri við þessa gleði, má geta þess að Rósa María, ásamt femíníska lista­hópnum AFSAKIÐ, er að vinna að sýn­ingu sem opnar í Ásmund­ar­sal strax á nýju ári.

Mest lesið undanfarið ár