Stjórn SÁÁ boðuð á aukafund vegna kröfu Sjúkratrygginga um 174 milljóna króna endurgreiðslu
Fréttir

Stjórn SÁÁ boðuð á auka­fund vegna kröfu Sjúkra­trygg­inga um 174 millj­óna króna end­ur­greiðslu

Nokkrir í 48 manna aðal­stjórn SÁÁ gagn­rýna að hafa ekki fengið að sjá bréf eft­ir­lits­deildar Sjúkra­trygg­inga Íslands þar sem gerðar eru alvar­legar athuga­semdir við þús­undir reikn­inga frá SÁÁ. Sam­tök­unum er gert að end­ur­greiða Sjúkra­trygg­ingum 174 millj­ónir króna. Einar Her­manns­son, for­maður SÁÁ, hefur boðað stjórn sam­tak­anna á auka­fund í næstu viku vegna máls­ins.
Eigandi Arnarlax vill framleiða 150 þúsund tonn með aflandseldi fjarri landi
FréttirLaxeldi

Eigandi Arnarlax vill fram­leiða 150 þús­und tonn með aflandseldi fjarri landi

Nýstofnað lax­eld­is­fyr­ir­tæki sem er að hluta til í eigu norska lax­eld­is­ris­ans Salmar AS, eig­anda Arnarlax, hyggst fram­leiða 150 þús­und tonn af eld­is­laxi í aflands­kvíum fjarri ströndum Noregs. Fyr­ir­tækið segir að fram­tíð lax­eldis í heim­inum liggi í slíkri „sjálf­bærri“ lausn. Samhliða fram­leiðir Salmar AS eld­is­lax í fjörðum Íslands og vill bæta í.
Björn Zoëga með tæpar 5 milljónir á mánuði í Svíþjóð og Íslandi
Fréttir

Björn Zoëga með tæpar 5 millj­ónir á mán­uði í Svíþjóð og Íslandi

Sænskt dag­blað fjallar um launa­mál Björns Zoëga, for­stjóra Karol­inska-sjúkra­húss­ins, og setur í sam­band við laun sænska for­sæt­is­ráð­herr­ans. Magda­lenu Anderson. Björn er með helm­ingi hærri laun en hún. Sænska blaðið setur launin í sam­hengi við auka­starf Björns fyrir heil­brigð­is­ráð­herra á Íslandi sem Björn fær tæp­lega 1100 þús­und fyrir á mán­uði sam­hliða for­stjóra­laun­unum. Björn seg­ist ekki hafa verið búinn að kanna laun sín á Íslandi.
Sjúkratryggingar krefja SÁÁ um 174 milljónir í endurgreiðslu
Fréttir

Sjúkra­trygg­ingar krefja SÁÁ um 174 millj­ónir í end­ur­greiðslu

Eft­ir­lits­deild Sjúkra­trygg­inga Íslands gerir alvar­legar athuga­semdir við þús­undir reikn­inga frá SÁÁ. Dæmi sé um að ráð­gjafi hafi hringt í skjól­stæð­ing til að til­kynna lokun göngu­deilda en skráð sím­talið sem ráð­gjafa­við­tal og rukkað Sjúkra­trygg­ingar í sam­ræmi við það. Málið er komið inn á borð Land­læknis. Formaður SÁÁ segir fram­kvæmda­stjórn­ina hafna nið­ur­stöðu Sjúkra­trygg­inga og kallar hana „til­efn­is­lausar ásak­anir“.
Bláskógabyggð mátti loka hjólhýsasvæði en uppsker gagnrýni ráðuneytis
Fréttir

Blá­skóga­byggð mátti loka hjól­hýsa­svæði en upp­sker gagn­rýni ráðu­neytis

Sveit­ar­stjórn Blá­skóga­byggðar hefði getað vandað betur til verka þegar það tók ákvörðun um að loka hjól­hýsa­svæði á Laug­ar­vatni en braut samt ekki stjórn­sýslu­reglur, sam­kvæmt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu. Vís­bend­ingar eru um að sveit­ar­fé­lagið hafi ekki tryggt bruna­varnir á svæð­inu um nokk­urt skeið.

Mest lesið undanfarið ár