Endurnýtir til að skapa fegurð

Aðal­heiður Sigríður Eysteinsdóttir lista­maður ólst upp við að end­urnýta hluti og í gegnum árin hefur hún búið til ýmiss konar lista­verk úr gömlum hlutum sem hún finnur hér og þar. Skúlptúrar og lágmyndir úr sam­settu timbri hafa vakið athygli margra og auð­vitað jólaköttinn síðast­liðin 22 ár.

Endurnýtir til að skapa fegurð

Aðal­heiður Sigríður Eysteinsdóttir fædd­ist og ólst upp á Siglu­firði, þar sem hún býr í dag, og kynnt­ist snemma end­ur­nýt­ing­unni sem átti eftir að lita list­rænt líf hennar.

„End­ur­vinnsla var í hávegum höfð þegar ég var að alast upp. Það var til dæmis verið að hekla töskur úr mjólkur­pokum og vefa mottur úr gömlum galla­buxum. Á sjöunda áratugnum var mikil vakn­ing um end­urnýtingu og var heim­ilið alltaf und­ir­lagt af ein­hverju sem var verið að búa til. Ég ólst þess vegna upp með það í huga að nýta það sem til fellur og búa til gjafir, nytja­hluti og list­muni. Sú hugsun hefur fylgt mér alla tíð og skilað sér í mínu dag­lega lífi og list­sköpun,“ segir hún.

Það var snemma ljóst að Aðal­heiður hefur hæfi­leika þegar kemur að mynd­list og seg­ist hún hafa verið einn af þeim nem­endum sem mynd­mennta­kenn­arar stungu að að ættu kannski að fara í mynd­listarnám. „Ég var sjálfstæður …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár