„Fjármálamarkaðnum virðist því miður ekki vera treystandi“
FréttirSalan á Íslandsbanka

„Fjár­mála­mark­aðnum virð­ist því miður ekki vera treystandi“

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að sér­fræð­ingar sem stjórn­völd treystu fyrir sölu rík­is­ins á hlutum sínum í Íslands­banki hafi brugð­ist. Hann seg­ist treysta fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bendikts­syni, en ekki Banka­sýslu rík­is­ins. „Ég treysti Bjarna Bene­dikts­syni,“ sagði hann.
Bjarni segist ekki hafa verið vanhæfur til að selja pabba sínum Íslandsbankahlut
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni seg­ist ekki hafa verið van­hæfur til að selja pabba sínum Íslands­banka­hlut

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra seg­ist aldrei hafa hugað að van­hæfi sínu við sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka þrátt fyrir að faðir hans væri meðal kaup­enda. Á opnum fundi í fjár­laga­nefnd um söl­una sagði hann lög­skýr­ingar um van­hæfi sitt sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum frá­leitar. „Uppi­staðan af öllu því sem þú ert að telja upp er áróður,“ svar­aði hann þing­manni Pírata.
Réttarhöld hafin í einu stærsta hneykslismáli læknavísindanna sem teygir sig til Íslands
FréttirPlastbarkamálið

Rétt­ar­höld hafin í einu stærsta hneyksl­is­máli lækna­vís­ind­anna sem teygir sig til Íslands

Rétt­ar­höld yfir Paulo Macchiarini, ítalska skurð­lækn­inum sem græddi plast­barka í þrjá sjúk­linga á Karol­inska-sjúkra­hús­inu í Svíþjóð eru hafin þar í landi. Tómas Guð­bjarts­son brjóst­hols­skurð­læknir er vitni ákæru­valds­ins í mál­inu og á að segja frá blekk­ingum Macchiarinis. Plast­barka­málið teng­ist Íslandi með margs konar hætti.
Ráðherra krafinn frekari svara um Moshensky
FréttirÓlígarkinn okkar

Ráðherra kraf­inn frek­ari svara um Mos­hen­sky

Þing­maður Pírata hefur krafið utan­rík­is­ráð­herra um svör við því hvers vegna ráðu­neyti hennar flokkar öll sam­skipti sín við ESB vegna íslenska kjör­ræð­is­manns­ins í Hvíta-Rúss­landi sem óform­leg. Ráðu­neytið neitar að birta gögn og frek­ari upp­lýs­ingar um hátt í þrjá­tíu sím­töl, fyr­ir­spurnir og fundi, sem íslensk stjörn­völd áttu í kjöl­far þess að ræð­is­mað­ur­inn til­kynnti að hann yrði mögu­lega bann­listaður vegna tengsla við ein­ræð­is­herr­ann í Hvíta-Rúss­landi.
Bankasýslan útilokar ekki að borga seljendum Íslandsbankabréfa 263 milljónir í „valkvæða þóknun“
FréttirSalan á Íslandsbanka

Banka­sýslan úti­lokar ekki að borga selj­endum Íslands­banka­bréfa 263 millj­ónir í „val­kvæða þóknun“

Í samn­ingi Banka­sýslu rík­is­ins við sölu­að­il­ana í útboð­inu á hluta­bréfum íslenska rík­is­ins í Íslands­banka er ákvæði um að stofn­unin geti ákveðið að greiða þessum fyr­ir­tækjum auka­þóknun upp á 0,5 pró­sent. Þrátt fyrir umræð­una og gagn­rýn­ina á söl­una hefur Banka­sýslan enn ekki úti­lokað að greiða þessum fyr­ir­tækjum umrædda val­kvæða þóknun.
Fékk 490 töflur frá heimilislækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heim­il­is­lækni á tveimur mán­uðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynnt­ist OxyContin þegar mað­ur­inn hennar var krabba­meins­sjúk­lingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig lang­vinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa mor­fín­lyfjum fyrir sam­kvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir kon­unnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því frá­hvörfin séu „við­bjóður“.
Norsk laxeldisfyrirtæki takast á um eignarhald á auðlindinni á Íslandi
FréttirLaxeldi

Norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki takast á um eign­ar­hald á auð­lind­inni á Íslandi

Norsku lax­eld­is­fyr­ir­tækin Salmar, eig­andi Arnarlax á Bíludal, og NTS, sem er stærsti hlut­hafi Arctic Fish á Ísafirði í gegnum Norway Royal Salmon, takast nú á um fram­tíð­ar­eign­ar­hald NTS. Salmar vill kaupa NTS en leið­andi hlut­hafi NTS vill ekki selja. Ef af kaup­unum verður mun sam­þjöppun í eign­ar­haldi í lax­eldi á Íslandi aukast enn meira og mun nær allt lax­eldi á Vest­fjörðum verða í eigu sama fyr­ir­tækis.
Eiga Rússar voða bágt?
Flækjusagan

Eiga Rússar voða bágt?

Í síð­asta blaði hóf Illugi Jök­uls­son að kanna styrj­ald­ar­sögu Rúss­lands til að vita hvað sé hæft í þeirri trú margra Rússa að land þeirra hafi sífellt sætt grimmum árásum frá erlendum ríkjum, ekki síst Vest­ur­löndum. Því sé eðli­legt að þeir fái að hafa Úkraínu sem „stuð­púða“ gegn hinni mis­kunn­ar­lausu ásælni vest­rænna stór­velda. Í fyrri grein­inni höfðu ekki fund­ist slík dæmi, því oftar en ekki voru það Rússar sem sóttu fram en vörð­ust ei. En í frá­sögn­inni var komið fram á 19. öld.

Mest lesið undanfarið ár