Ráðherra krafinn frekari svara um Moshensky

Þing­maður Pírata hefur krafið utan­rík­is­ráð­herra um svör við því hvers vegna ráðu­neyti hennar flokkar öll sam­skipti sín við ESB vegna íslenska kjör­ræð­is­manns­ins í Hvíta-Rúss­landi sem óform­leg. Ráðu­neytið neitar að birta gögn og frek­ari upp­lýs­ingar um hátt í þrjá­tíu sím­töl, fyr­ir­spurnir og fundi, sem íslensk stjörn­völd áttu í kjöl­far þess að ræð­is­mað­ur­inn til­kynnti að hann yrði mögu­lega bann­listaður vegna tengsla við ein­ræð­is­herr­ann í Hvíta-Rúss­landi.

Ráðherra krafinn frekari svara um Moshensky
Ráð­herr­ann og ræð­is­mað­ur­inn Utan­rík­is­ráð­herra hefur full­yrt að ekk­ert hafi verið óeðli­legt við sam­skipti ráðu­neytis hennar við full­trúa ESB, í tengslum við áhyggjur kjör­ræð­is­manns­ins í Hvíta-Rúss­landi af því að verða beittur við­skipta­þving­unum vegna tengsla hans við stjórn­völd í Minsk.

„Hvers vegna eru sam­skipti við ESB um mögu­legar þving­un­ar­að­gerðir ESB gagn­vart kjör­ræð­is­manni Íslands óform­leg? Væri ekki eðli­legt að slík sam­skipti væru form­leg og skráð til hins ýtrasta ef ESB væri að ósekju að ganga þannig að kjör­ræð­is­manni Íslands? Hverjar eru reglur um hvort erindi skuli vera form­leg eða óform­leg? Hver tekur slíka ákvörðun? Hvaða reglur gilda um skrán­ingu óform­legra erinda,“ spyr Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í skrif­legri fyr­ir­spurn til utan­rík­is­ráð­herra, sem lögð var fram í byrjun vik­unnar.

Utan­rík­is­ráðu­neytið stað­festi á dög­unum í svari til Stund­ar­innar að hafa í des­em­ber 2020, hátt í þrjá­tíu skipti hringt, sent fyr­ir­spurnir og átt fundi með full­trúum aðild­ar­ríkja ESB, í kjöl­far þess að kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi viðr­aði áhyggjur sínar af því að lenda mögu­lega á lista ein­stak­linga sem sættu við­skipta­banni, vegna tengsla við ein­ræð­is­herr­ann Aleksander Lukashenko. 

Ráðu­neytið neitar hins vegar að afhenda nokkur gögn um þessi sam­skipti, á þeirri for­sendu að þau hafi öll verið trún­að­ar­sam­töl. Stundin hefur óskað eftir frek­ari sund­ur­liðun á þessum sam­skiptum en beiðn­inni hefur enn ekki verið svarað.

Utan­rík­is­ráð­herra hefur ítrekað vísað í upp­lýs­ingar úr þessum gögnum, þegar hún hefur hafnað því að ísenska ríkið hafi með þessum sam­skiptum reynt að beita sér gegn því að kjör­ræð­is­mað­ur­inn eða fyr­ir­tæki hans yrðu fyrir við­skipta­þving­unum ESB. Einungis hafi verið um að ræða fyr­ir­spurnir, þvert á það sem fjöldi við­mæl­enda Stund­ar­innar hafa lýst.

Í því sam­hengi er full­yrt að millj­arða árlegir við­skipta­hags­munir íslenskra útgerða, hafi ráðið för. Kjör­ræð­is­mað­ur­inn Aleksander Mos­hen­sky hefur enda verið umsvifa­mik­ill fisk­kaup­andi ekki síst eftir að Rússar lögðu við­skipta­bann á íslenskan fisk. Með Mos­hen­sky sem milli­lið hefur íslenskum útgerðum tek­ist að koma íslenskum fiski á markað í Rúss­landi. Og notið til þess póli­tískra tengsla Mos­hen­sky við ein­ræð­is­herr­ann Aleksander Lukashenko, sam­kvæmt fréttum í Hvíta-Rúss­landi.

Fyr­ir­spurnin til utan­rík­is­ráð­herra inni­heldur spurn­ingu um þessi við­skipta­tengsl og hvort íslenskum stjórn­völdum hafi verið kunn­ugt um að íslenskum fiski hafi verið end­ur­pakkað í Hvíta-Rúss­landi og upp­runi vör­unnar sagður þar, áður en hann var fluttur til Rúss­lands.

Í fyr­ir­spurn Björns Leví er jafn­framt spurt um hvenær og hversu oft ráðu­neytið hafi átt í sam­skiptum við kjör­ræð­is­mann­inn frá því hann var skip­aður í emb­ættið árið 2007, og hversu oft þau sam­skipti hafi snú­ist um boðuð áform ESB um að beita Mos­hen­sky við­skipta­þving­unum. 

Yfir­lýs­ing utan­rík­is­ráð­herra í svari til Stund­ar­innar í byrjun mars, á þá leið að ráð­herra teldi orðum aukið að kalla Mos­hen­sky náinn banda­mann Lukashenko, vakti nokkra athygli. Ekki síst meðal tals­manna land­flótta Hvít-Rússa og stjórn­ar­and­stæð­inga í land­inu, sem bentu á marg­háttuð aug­ljós tengsl þeirra. Síðar kom í ljós að eina heim­ild ráðu­neyt­is­ins fyrir þess­ari full­yrð­ingu var Mos­hen­sky sjálfur, í bréfi til ESB þar sem hann varð­ist fyr­ir­hug­uðum við­skipta­þving­unum. Ráðherra hefur í opin­berri umræðu vísað til þessa bréfs og sagt það opin­bert gagn, en engu að síður hefur Stundin ekki fengið aðgang að því, hvorki í ráðu­neyt­inu né frá Mos­hen­sky sjálfum.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er efni bréfs­ins þó ekki skýrt um sam­band Lukashensko og Mos­hen­sky. Þar er hvergi vikið orði að fjöl­mörgum atriðum sem benda ótví­rætt til þess að Mos­hen­sky hafi notið vel­vildar for­set­ans, í skiptum fyrir stuðn­ing við hann. Nokkuð sem ítrekað hefur verið fjallað um í fjöl­miðlum innan og utan Hvíta-Rúss­lands.

Björn Leví spyr í því ljósi sér­stak­lega um hvort íslenskum stjórn­völdum hafi aldrei borist ábend­ingar eða athuga­semdir við stöðu Mos­hen­sky sem kjör­ræð­is­manns:

„Hafa íslenskum stjórn­völdum ein­hvern tíma borist ábend­ingar eða athuga­semdir um meinta spill­ingu eða póli­tísk tengsl Mosjen­skís við Aleksander Lúk­asjenkó eða hví­trúss­nesk stjórn­völd? Ef svo er, hvenær og hversu oft,“ segir í fyr­ir­spurn­in­inni sem Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra mun svara skrif­lega á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    P S.á miðlum Torgs eru koment í þessa veru þurkuð út til að létta lund siðlausra bisnismanna.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Hver eru þessi 3 fyritæki sem við þurfum að skammast okkur fyrir?
    0
    • JGG
      Jóhanna Gréta Guðmundsdóttir skrifaði
      Eru reyndar 4....Ísfélagið, Vinslustöðin, Samherji og FISK
      1
    • PG
      Palli Garðarsson skrifaði
      Mætti ekki spyrja hæstvirtann ráðherra hvað meint sé með að hún ætli að efla aðgerðir til að stöðva yfirgang rússa? Ætlar hún að beita sér gegn þeim íslensku fyrirtækjum sem eru í viðskiptum við þá?
      https://www.ukrinform.net/rubric-ato/3468225-ukrainian-icelandic-diplomats-discuss-joint-action-to-stop-russian-aggression.html
      0
    • ÁHG
      Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
      Og með sölunni og mótöku blóðugra peninga stiðja þessi fyrutæki MORÐ NAUÐGANIR OG BARNAMORÐ, og enn er hægt að auka skömm okkar á því að vera frá Skrípaskerinu.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar
FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár