Boða verðlækkun í baráttu gegn verðbólgu en höfðu hækkað meira en hinir
Viðskipti

Boða verð­lækkun í bar­áttu gegn verð­bólgu en höfðu hækkað meira en hinir

Versl­ana­keðjan Samkaup, sem rekur Nettó, Kram­búð­ina og Kjör­búð­ina, seg­ist lækka verð á 400 vörum um 10% frá árs­byrjun til að berj­ast gegn verð­bólgu. Samkaup sendi bréf á birgja og fram­leið­endur með beiðni um sam­starf „án nokk­urra und­ir­tekta“. Áður höfðu versl­anir Samkaupa hins vegar hækkað verð umfram sam­keppn­is­að­ila.
MAST rannsakar eldiskvíar á Vestfjörðum: Kafað eftir götum
FréttirLaxeldi

MAST rann­sakar eld­iskvíar á Vest­fjörðum: Kafað eftir götum

Rík­i­s­tofn­unin MAST rann­sakar nú hvort göt hafi komið á sjó­kvíar lax­eld­is­fyr­ir­tækja á Vest­fjörðum eftir að ætl­aðir eld­is­laxar veidd­ust í Mjólká. Karl Steinar Ósskars­son, yfir­maður fisk­eldis hjá stofn­unni, segir að kafað sé eftir götum en að engin hafi fund­ist hingað til og að verið sé að greina þá laxa sem sýni hafa verið tekin úr.
Mikilvægara að halda fjölskyldunni saman en að kæra misnotkun bróður
Fréttir

Mik­il­væg­ara að halda fjöl­skyld­unni saman en að kæra mis­notkun bróður

„Ég sá bara veikan ein­stak­ling,“ segir maður sem var mis­not­aður af eldri bróður sínum um ára­bil. Bróðir hans sagði sjálfur frá brot­unum og í kjöl­farið upp­hófst lög­reglu­rann­sókn. Bróðir hans var dæmdur í nálg­un­ar­bann, þvert gegn vilja fjöl­skyld­unnar, sem vildi vinna úr áfall­inu og halda saman. „Það er ekk­ert sterkara en góð fjöl­skylda.“
Knattspyrnuhreyfingin verði að leita sér sérfræðiaðstoðar
FréttirKSÍ-málið

Knatt­spyrnu­hreyf­ingin verði að leita sér sér­fræði­að­stoðar

Sif Atla­dóttir, lands­liðs­kona í knatt­spyrnu, segir að auka verði fræðslu innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar en einnig í sam­fé­lag­inu öll um mörk, sam­þykki og eðli­leg sam­skipti. Svipta verði hul­unni af kyn­ferð­is­legu ofbeldi, áreiti eða ósæmi­legri hegðun innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar og upp­ræta þögg­un­ar­menn­ingu.
Ólafur: Aukning verðtryggðra lána gengur gegn aðgerðum Seðlabankans
Fréttir

Ólafur: Aukning verð­tryggðra lána gengur gegn aðgerðum Seðla­bank­ans

Fyrir einu ári voru vextir af óverð­tryggðu hús­næð­is­láni með breyti­legum vöxtum 3,45 pró­sent en eru nú 6,22 pró­sent. Afborg­anir af slíkum lánum hafa auk­ist um 35 pró­sent á einu ári. Ólafur Mar­geirs­son hag­fræð­ingur segir að ósam­ræmi sé í vaxta­stefnu Seðla­banka Íslands og hags­munum lán­tak­enda sem ráða ekki við afborg­anir af óverð­tryggðum lánum. Hann segir að aukn­ing verð­tryggða lána gangi gegn mark­miðum vaxta­hækk­an­anna.
Íslensk stjórnvöld gagnrýnd fyrir að senda Brynjar á fund í stað ráðherra
FréttirSamherjaskjölin

Íslensk stjórn­völd gagn­rýnd fyrir að senda Brynjar á fund í stað ráð­herra

Namibísk sendi­nefnd sem var hér á landi í júní óskaði ekki eftir fundi í dóms­mála­ráðu­neyt­inu, heldur var hún send þangað að beiðni for­sæt­is­ráð­herra. Aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra sat hins vegar fund­inn og neitar að hafa gert athuga­semdir við að namibíski rík­is­sak­sókn­ar­inn vís­aði til Sam­herj­a­manna sem „sak­born­inga“ í máli sínu, eins og heim­ildir Stund­ar­innar herma. Sendi­nefndin namibíska taldi fund­inn tíma­sóun.
Norska samkeppniseftirlitið samþykkir stærsta samruna í íslensku laxeldi
FréttirLaxeldi

Norska sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkir stærsta sam­runa í íslensku lax­eldi

Sam­keppn­is­eft­ir­litið í Noregi hefur sam­þykkt að lax­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar, móð­ur­fé­lag Arnarlax á Bíldudal, fái að kaupa fyr­ir­tækið NTS, sem er stærsti óbeini hlut­hafi Arctic Fish á Ísafirði. Salmar kynnir árs­hluta­upp­gjör í dag þar sem sam­runa fyr­ir­tækj­anna er lýst. Á sama tíma og Salmar fjár­festir í íslensku sjó­kvía­eldi telur fyr­ir­tækið að fram­tíð lax­eldis liggi í aflandseldi á laxi.
Ríkisendurskoðun: Úrvinnslusjóður ræður ekki við hlutverk sitt og eftirlit er í skötulíki
FréttirPlastið fundið

Rík­is­end­ur­skoðun: Úrvinnslu­sjóður ræður ekki við hlut­verk sitt og eft­ir­lit er í skötu­líki

Stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar dregur upp dökka mynd af starf­semi Úrvinnslu­sjóðs. Starfs­fólk ræður ekki við verk­efni sjóðs­ins, ekk­ert innra eft­ir­lit er til staðar og deilur innan stjórnar. Ekki er virkt eft­ir­lit með því hvort reikn­ingar sem sjóðnum ber­ast séu raunsannir heldur er treyst á gögn frá þeim sem reikn­ing­ana senda. Þá fer ekki fram sjálf­stætt eft­ir­lit af hálfu sjóðs­ins með þeim fyr­ir­tækjum sem taka við úrgangi og ráð­stafa honum.

Mest lesið undanfarið ár