„Rússneska þjóð, þið eruð sofandi risi“

Rúss­nesk­ir an­arkó-komm­ún­ist­ar hafa fram­ið fjölda skemmd­ar­verka í kring­um hern­að­ar­lega mik­il­væga inn­viði frá upp­hafi Úkraínu­stríðs­ins. Hópurinn lítur á stríð­ið sem þátt í bar­áttu sinni gegn al­þjóða­heims­valda­stefnu.

Rúss­neskir miðlar, rík­is­reknir sem og óháðir, hafa síðan í febr­úar birt fréttir af árásum á her­skrán­ing­ar­stöðvar í Rúss­landi. Kveikt hefur verið í fjölda her­skrán­ing­ar­stöðva um landið allt en skemmd­ar­verkin hafa að mestu átt sér stað í vest­ur­hlut­anum. Allt bendir til þess að tugir slíkra skemmd­ar­verka hafi verið framin síðan í febr­úar. Þessar tölur þykja óvenju­legar, enda fjölg­unin á skemmd­ar­verk­unum veru­leg frá fyrri árum. Molotov-kok­teilum hefur verið beitt við fram­kvæmd margra árásanna.

Sama má segja um fjölgun árása á rúss­neskar járn­brautir, fjöldi þeirra hefur stór­auk­ist frá fyrri árum sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi gögnum. Frétta­flutn­ingur rúss­neskra miðla bendir til þess að helst hafi járn­brautir til her­gagna­flutn­ings orðið fyrir árásum skemmd­ar­varg­anna, með þeim afleið­ingum að tugir lesta með her­gögnum hafa farið af spor­inu síðan í febr­úar.

Myndir af járn­braut­ar­brú í Kúrsk fylki Rúss­lands sem varð fyrir árás 1. maí. Telegram færsla Romans Starovojt, fylk­is­stjóra Kúrsk sýslu. …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár