Mynd: Davíð Þór

Tveir handteknir við byggingu hótels í Vesturbænum

Tveir starfs­menn undir­verktaka voru hand­teknir af lögreglu við Seljaveg í vesturbæ Reykja­víkur í september, en þar er Byggingar­félagið Upprisa ehf. að störfum við að breyta húsnæðinu í hótel fyrir keðjuna CenterHotels. Undir­verktakinn játar lögbrot.

Aðilar frá lögreglu höfuð­borgar­svæðisins, Vinnumála­stofnun og vinnustaða­eftirliti verkalýðs­félaganna fundu í sameiginlegri aðgerð tvo starfs­menn að vinnu í Héðins­húsinu í vesturbæ Reykja­víkur 12. september sem ekki gátu gert grein fyrir sér. Við yfirheyrslu kom í ljós að hvorugur var með atvinnu­leyfi, en annar þeirra stendur frammi fyrir brott­vísun úr landi, og mögulega varanlegu endurkomu­banni samkvæmt lögreglu.

Verk­kaupandi er CenterHotels, en framkvæmda­stjóri hótel­keðjunnar segist líta málið alvarlegum augum og að svona verði ekki liðið. Forsvars­maður undir­verktakans, sem bar ábyrgð á umræddum starfs­mönnum, játar að hann hafi ekki ætlað að borga þeim laun, en það er meðal annars brot á lögum um atvinnu­réttindi útlendinga sem fylgir allt að tveggja ára fangelsis­vist. Hann segist hins vegar ekki hafa fengið nein viðbrögð frá CenterHotels eða öðrum yfir­mönnum.

Engin viðbrögð frá verkstjóra

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Mest lesið undanfarið ár