Þegar trúverðugleiki Íslands gránaði eftir margra ára vanrækslu

Allt frá árinu 2006 voru íslensk yfir­völd vöruð við því að varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka væru lélegar hér á landi. Árið 2015 kom fram í minn­is­blaði ráð­herra að ekki hefði verið brugð­ist við í níu ár.

Þegar trúverðugleiki Íslands gránaði eftir margra ára vanrækslu

Íslensk stjórn­völd drógu lapp­irnar um margra ára skeið þegar kom að því að bregð­ast við athuga­semdum frá FATF, alþjóð­legum starfs­hópi um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. 

Í frétt RÚV frá því í lok febr­úar árið 2015 var greint frá því að sam­kvæmt minn­is­blaði Ólafar Nordal heit­innar, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, ættu stjórn­völd enn eftir að bregð­ast við ítrek­uðum og alvar­legum athuga­semdum starfs­hóps­ins frá árinu 2006.

Í minn­is­blað­inu sagð­ist Ólöf ætla að stofna form­legan stýri­hóp um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka sem hefði það hlut­verk að gera til­lögur til stjórn­valda um úrbætur til sam­ræmis við til­mæli FATF á hverjum tíma. Jafn­framt yrði stýri­hóp­ur­inn stjórn­völdum til ráð­gjafar í mál­efnum tengdum aðgerðum gegn pen­inga­þvætti, fjár­mögnun hryðju­verka og fryst­ingu fjár­muna.

Sautján manna stýrihópur

Stýri­hóp­ur­inn var skip­aður í byrjun maí 2015 og for­maður hans var Hildur Dungal lög­fræð­ingur, sem starf­aði á þeim tíma í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Í hópnum sátu upp­haf­lega sjö manns og bætt­ist einn við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár