Indriði H. Þorláksson: Orkan okkar býður forsetanum í „orrustu gegn vindmyllu“

Fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri segir að for­seta Íslands sé boðið að „leika hlut­verk hins hug­prúða ridd­ara af la Mancha“ í máli þriðja orku­pakk­ans, eins og þegar for­veri hans Ólafur Ragnar Grímsson vís­aði Icesave samn­ing­unum í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Indriði H. Þorláksson: Orkan okkar býður forsetanum í „orrustu gegn vindmyllu“
Indriði H. Þor­láks­son Fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri segir Icesave slag Ólafs Ragnars hafa verið orr­ustu við vind­myllur. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Forseta Ísland er nú boðið að leika hlut­verk hins hug­prúða ridd­ara af la Mancha í orr­ustu gegn vind­myllu,“ skrifar Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, í blogg­færslu í dag. Vísar hann þar til áskor­unar sam­tak­anna Orkunnar okkar til Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands, um að stað­festa ekki upp­töku þriðja orku­pakk­ans inn í EES-samn­ing­inn.

Indriði segir að for­veri Guðna, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi með slíkri bar­áttu lengt líf­daga sína í emb­ætti og „slegið um tíma bjarma á hnign­andi frægð­ar­sól“. Tvær þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur voru haldnar um Icesave samn­ing­ana eftir að Ólafur Ragnar synj­aði lögum um þá stað­fest­ingar. Indriði hafði verið einn samn­inga­manna um Icesave og aðstoð­ar­maður Stein­gríms J. Sig­fús­sonar fjár­mála­ráð­herra.

„Með fram­göngu sinni lagði hann að velli illa Icesave samn­inga,“ skrifar Indriði um Ólaf Ragnar. „Samkvæmt þeim átti þrotabú Lands­banka Íslands að greiða enskum og hol­lenskum spa­ri­fjar­eig­endum allar tryggðar inn­stæður auk þess að greiða vexti til þeirra sem lögðu til fjár­magnið.

Þökk sé hetju­legri fram­göngu voru samn­ingar ekki gerðir en engu að síður greiddi þrotabú Lands­banka Íslands enskum og hol­lenskum spa­ri­fjar­eig­endum allar tryggðar inn­stæður þeirra. Auk þess greiddi þrota­búið og fjár­mála­ráðu­neytið 53,5 millj­arða til þeirra sem lögðu til fjár­magnið.“

Tengir Indriði málið við hugs­an­lega þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu nú vegna þriðja orku­pakk­ans. „Glæstur árangur af orr­ustu við vind­myllu. Er hlut­verk hins hug­prúða ridd­ara í þeirri sem yfir stendur ekki nægi­lega vel skipað?“

Fundur með for­set­anumFor­svars­menn Orkunnar okkar fund­uðu með Guðna Th. Jóhann­essyni á dög­unum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár