Formaður siðanefndar treysti sér ekki til að fjalla um Klaustursmálið

Forsætis­nefnd valdi mann til formennsku í siðanefnd Alþingis sem telur sig of tengdan þing­mönnum til að geta tekið óhlutdræga afstöðu í siðareglu­máli.

Gunnar Bragi og Bergþór brutu siðareglur
Gunnar Bragi og Bergþór brutu siða­reglur Nið­ur­staða siða­nefndar Alþingis er að tveir Klaust­ur­þing­mann­anna hafi brotið siða­reglur. Mynd: Vefsvæði Alþingis, HÍ og HR

Jón Kristjánsson, formaður Siða­nefndar Alþingis og fyrr­verandi ráðherra Framsóknar­flokksins, treysti sér ekki til að taka þátt í umfjöllun nefndarinnar um ummæli og framgöngu Klausturs­þing­mannanna. Hann skrifar því ekki undir álit nefndarinnar.

Ástæðan er sú að Jón taldi sig skorta „þá óhlutdrægni sem nauðsynleg er til þess að kveða upp í því dóma sem ég get varið fyrir samvisku minni“ sökum stjórnmála­þátttöku sinnar með eða á móti þeim þing­mönnum sem um ræðir.

Siðanefnd Alþingiser skipuð af forsætis­nefnd og ætlað hlutverk sem óháð ráðgefandi nefnd, til aðstoðar við eftirlit forsætis­nefndar með framkvæmd siða­reglna. Er formaður siða­nefndarinnar valinn af forseta Alþingis. 

Nú liggur fyrir að forsætis­nefnd valdi mann til að leiða siða­nefndina sem telur sig of tengdan stjórn­málamönnum til að geta fellt siðferði­lega dóma á grund­velli reglnanna. Fyrir vikið er niður­staða siða­nefndar í Klausturs­málinu aðeins undir­rituð af tveimur nefndar­mönnum og ekki formanni.

Tók þátt í afgreiðslu á máli Þórhildar Sunnu

Jón tók sæti Ástu Ragn­heiðar Jóhannesdóttur sem vék tíma­bundið úr nefndinni af persónu­legum ástæðum. Jón stóð að áliti nefndarinnar í maí síðastliðnum þegar nefndin komst að þeirri niður­stöðu að Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, hefði brotið gegn siða­reglum alþinigsmanna með því að segja að rökstuddur grunur væri um að Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, hefði dregið sér fé.

Hinir nefndar­mennirnir tveir, Margrét Vala Kristjáns­dóttir og Róbert H. Haraldsson, komu bæði inn í nefndina í janúar síðastliðnum eftir að þau Hafsteinn Þór Hauksson og Salvör Nordal óskuðu eftir því að hætta í nefndinni. Þau skrifa bæði undir niður­stöðu nefndarinnar, sem er að þeir Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason hafi brotið gegn siða­reglum Alþingis. Jón treysti sér hins vegar ekki til að taka þátt í starfi nefndarinnar og skrifar því ekki undir álitið.

Jón skilaði eftir­farandi bókun með niður­stöðu nefndarinnar:

Ég hef um tíma setið í siðanefnd Alþingis sem varamaður Ástu Ragn­heiðar Jóhannesdóttur. Ég hef unnið þar með starfs­manni nefndarinnar og sérfræðingum, sem hafa farið vandlega yfir stöðu mála og unnið þar að mínum dómi faglega og af heiðar­leika. Varðandi það mál sem hér er til afgreiðslu er það þannig vaxið að vegna stjórnmála­þátttöku minnar á liðnum tíma með eða á móti þeim aðilum sem þar er fjallað um er það mín tilfinning að mig skorti þá óhlutdrægni sem nauðsynleg er til þess að kveða upp í því dóma sem ég get varið fyrir samvisku minni. Ég treysti hins vegar öðrum nefndar­mönnum vel til þess verks. Ég hef því ekki tekið þátt í umfjöllun nefndarinnar um þetta mál og skrifa því ekki undir efnislegar tillögur hennar, en vil skýra afstöðu mína með þessari bókun.

Var aldrei samtíða Klausturþingmönnum á Alþingi

Jón Krist­jáns­sonTreysti sér ekki til að taka þátt í umfjöllun Siða­nefndar Alþingis um Klaust­ur­málið.

Jón Kristjánsson sat á þingi fyrir Framsóknar­flokkinn á árunum 1984 til 2007 og var ráðherra á árunum 2001 til 2007. Hann var því aldrei samtíða neinum Klausturs­þing­mannanna á þingi. Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru báðir kjörnir á þing árið 2009 en hinir Klaustur­þing­mennirnir fjórir, Bergþór Ólason, Karl Gauti Hjaltason, Ólafur Ísleifsson og Anna Kolbrún Árna­dóttir voru öll fyrst kosin á þing í síðustu kosningum, árið 2017.

„Ég hef því ekki tekið þátt í umfjöllun nefndarinnar um þetta mál“

Gera má ráð fyrir að Jón sé að vísa til að minnsta kosti Gunnars Braga þegar hann talar um stjórnmálaþáttöku sína með eða á móti þing­mönnunum sem um ræðir. Gunnar Bragi og Jón voru samtíða í Framsóknar­flokknum en Gunnar Bragi var formaður Félags ungra Fram­sóknarmanna í Skaga­firði og vara­formaður kjördæmis­sambands flokksins í Norðurlands­kjördæmi vestra á sínum tíma. Þá sat hann í sveitar­stjórn Skaga­fjarðar fyrir Framsóknar­flokkinn á árunum 2002 til 2010. Auk þess var Gunnar Bragi aðstoðar­maður Páls Péturs­sonar félagsmála­ráðherra Framsóknar­flokksins á árunum 1997 til 1999. Þeir Jón hafa því væntanlega starfað saman á vettvangi Framsóknar­flokksins á þessum árum.

Hefði mátt vera tengslin ljós fyrirfram

Varðandi aðra Klaustur­þingmenn þá er vandséð að stjórnmála­þátttaka Jóns hafi verið „með eða á móti“ þeim þing­mönnum. Sigmundur Davíð var kjörinn formaður Framsóknar­flokksins í janúar 2009, um það bil einu og hálfu ári eftir að Jón hætti á þingi. Fyrir þann tíma hafði Sigmundur að eigin sögn ekki verið skráður í Framsóknar­flokkinn. Anna Kolbrún var félagi í Framsóknar­flokknum áður en hún gekk til liðs við Miðflokkinn en ekki kjörinn fulltrúi á vegum flokksins. Þá var Bergþór Ólason aðstoðar­maður Sturlu Böðvars­sonar, samgöngu­ráðherra Sjálfstæðis­flokksins á árunum 2003 til 2006, í samstjórn Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks. Stjórnmála­þátttaka þeirra Ólafs og Karls Gauta var takmörkuð fyrir þann tíma.

Jón mátti því vita áður en nefndin tók Klaustur­málið til afgreiðslu hver hugsanleg tengsl hans við þing­mennina sex væru. Stundin reyndi að hafa samband við Jón, til að spyrja hann hví hann hefði ekki sagt sig frá setu í nefndinni í ljós þess sem hann setur fram í bókinni. Ekki náðist hins vegar í Jón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár