Ráðherra brást við ítrekuðum stöðuveitingum innan lögreglu án auglýsingar

Dóms­mála­ráðu­neytið sendi öllum lög­reglu­stjórum á Íslandi bréf þann 20. maí síð­ast­lið­inn vegna ítrek­aðra stöðu­veit­inga innan lög­reglu án aug­lýs­ingar. Tilefni bréfs­ins er athugun umboðs­manns Alþingis á ráðn­ing­ar­máli hjá rík­is­lög­reglu­stjóra.

Ráðherra brást við ítrekuðum stöðuveitingum innan lögreglu án auglýsingar
Ráðherra bregst við Dóms­mála­ráðu­neytið hefur brýnt fyrir lög­reglu­stjórum, í kjöl­far ítrek­aðra stöðu­veit­inga án aug­lýs­ingar, að allar ráðn­ingar og skip­anir verði að „rúm­ast innan ramma starfs­manna­laga“.

Dóms­mála­ráðu­neytið sendi öllum lög­reglu­stjórum á Íslandi bréf þann 20. maí síð­ast­lið­inn vegna ítrek­aðra stöðu­veit­inga innan lög­reglu án aug­lýs­ingar.

Í bréf­inu, sem ritað er fyrir hönd Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur dóms­mála­ráð­herra, er brýnt fyrir lög­reglu­stjórum að huga að þeirri meg­in­reglu starfs­manna­laga að laus emb­ætti skuli aug­lýst í Lög­birt­inga­blað­inu.

Þá er bent á að 36. gr. starfs­manna­laga um flutn­ing milli emb­ætta eigi fyrst og fremst við þegar um var­an­lega ráð­stöfun er að ræða og að almennt eigi ekki að flytja starfs­fólk milli starf­stiga án aug­lýs­ingar nema uppi séu sér­stakar ástæður sem rétt­læti það.

Tilefni bréfs­ins er athugun umboðs­manns Alþingis á máli þar sem rík­is­lög­reglu­stjóri réði í starf yfir­manns fjar­skipta­mið­stöðvar emb­ætt­is­ins án aug­lýs­ingar. Var lög­reglu­full­trúi færður til í starfi og lát­inn kynna sér starf­semi fjar­skipta­mið­stöðv­ar­innar frá og með 1. apríl 2019 með það fyrir augum að hann tæki síðan við starfi yfir­manns þegar núver­andi aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn lætur af störfum í lok árs­ins.  

Að því er fram kemur í bréfi sem umboðs­maður sendi dóms­mála­ráðu­neyt­inu þann 8. apríl síð­ast­lið­inn hafa fleiri lög­reglu­menn leitað til hans und­an­farin ár vegna stöðu­veit­inga án aug­lýs­ingar. Nýlega lauk umboðs­maður máli þar sem kvartað hafði verið undan því að sett væri í fjórar stöður aðal­varð­stjóra í flug­stöðv­ar­deild lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum án þess að aug­lýst væri í sam­ræmi við reglur um aug­lýs­inga­skyldu. Umboðs­maður taldi ekki ástæðu til að gera athuga­semdir við þetta í ljósi skýr­inga sem feng­ust frá emb­ætt­inu.

Kallaði eftir afstöðu ráðu­neyt­is­ins„Ég hef þá sér­stak­lega í huga hvort ráðu­neytið hafi tekið afstöðu til þess hvort fyr­ir­komu­lag af því tagi sem um hefur verið að ræða í fram­an­greindum málum sam­rým­ist almennt gild­andi lögum,“ segir í bréfi sem umboðs­maður Alþingis sendi dóms­mála­ráð­herra vegna ítrek­aðra stöðu­veit­inga innan lög­reglu án aug­lýs­ingar.

Lögreglustjóri sagði auglýsingar skapa óróa

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sendi starfs­mönnum tölvu­póst í vor þar sem fram kom að ýmsar breyt­ingar væru í far­vatn­inu að því er varðar yfir­manns­stöður hjá lög­reglu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ skrif­aði hún og bætti því við að yfir­stjórnin hefði „ákveðið að bíða með að festa stöður og setja frekar eða flytja í sam­ræmi við starfs­manna­lög þar sem vantar tíma­bundið að losa álag, vinna betur með hverja ein­ingu og fá reynslu á hvort við­kom­andi breyt­ingar skili þeim árangri sem að er stefnt“. Haft var eftir Sigríði í Morg­un­blað­inu þann 3. apríl að með þessu fengju fleiri „tæki­færi til að spreyta sig“ í ýmsum störfum.

„Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu“

Þetta er í takt við þá þróun sem orðið hefur hjá lög­regl­unni eftir að Sigríður Björk var flutt frá lög­reglu­emb­ætt­inu á Suð­ur­nesjum til Reykja­víkur og skipuð lög­reglu­stjóri án aug­lýs­ingar. Í kjöl­farið var ráð­ist í miklar skipu­lags­breyt­ingar. Aðstoð­ar­lög­reglu­stjórar til margra ára voru færðir til og umfangs­mikil starfs­manna­skipti hófust milli Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rík­is­lög­reglu­stjóra. Í því fólst að ráðið var beint í stöður sem undir öðrum kring­um­stæðum hefði þurft að aug­lýsa lausar til umsóknar.

Stundin ræddi við starfs­fólk lög­reglu á sínum tíma sem upp­lifði breyt­ing­arnar með þeim hætti að mark­visst væri gengið fram hjá reyndu fólki, bæði konum og körlum, sem sett væri „í verk­efni sem hrein­lega eru nið­ur­lægj­andi þegar litið er til fyrri starfa, reynslu og orð­spors“. Sumarið 2015 inn­leiddi lög­reglan svo nýtt skipu­rit sem felur í sér að aðstoð­ar­lög­reglu­stjórar voru færðir niður á sama stig og yfir­lög­reglu­þjónar. Skipað var í stöður yfir­lög­reglu­þjóns og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóns án aug­lýs­ingar auk þess sem gerðar voru breyt­ingar á hlut­verkum og verk­efnum fyrri yfir­stjórn­enda.

Ógerlegt að svara þinginu um tilfærslur starfsmanna

Þær til­færslur lög­reglu­manna í starfi sem hafa átt sér stað síðan nýr lög­reglu­stjóri tók við árið 2014 eru svo margar að dóms­mála­ráðu­neytið og lög­regla hafa ekki séð sér fært að veita Alþingi umbeðnar upp­lýs­ingar um þær. 

„Hvað varðar til­færslur í starfi, þá geta þær farið fram á grund­velli 2. mgr. 7. gr., 19. gr., og 36. gr. starfs­manna­laga, nr. 70/1996, ýmist tíma­bundið eða var­an­lega, og væri því afar umfangs­mikið að greina allar til­færslur sem hafa átt sér stað. Ógerlegt er að svara þeim hluta fyr­ir­spurn­ar­innar í stuttu máli, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 55/1991, um þing­sköp Alþingis,“ segir í nýlegu svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Söru Elísu Þórð­ar­dóttur, vara­þing­konu Pírata, um mál­efni lög­reglu. 

Sviptingar í gömlu fíkniefnadeildinni

Árið 2016 fjall­aði Stundin með ítar­legum hætti um svipt­ingar í gömlu fíkni­efna­deild lög­reglu sem nú heyrir undir hina mið­lægu rann­sókn­ar­deild. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið komst að þeirri nið­ur­stöðu sum­arið 2016 að lög­reglu­stjóri hefði brotið gegn með­al­hófs­reglu stjórn­sýslu­réttar þegar lög­reglu­full­trúa úr deild­inni var vikið frá störfum í kjöl­far þungra ásak­ana sem hann var síðar hreins­aður af.

Sama ár stefndi Aldís Hilm­ars­dóttir, fyrr­ver­andi yfir­maður deild­ar­innar, rík­inu vegna meints ein­eltis Sigríðar Bjarkar í sinn garð. Sam­skipta­örð­ug­leik­arnir milli Aldísar og Sigríðar vörð­uðu mál lög­reglu­full­trú­ans með beinum hætti, en Aldís tók afstöðu með mann­inum og taldi ekk­ert hafa komið fram sem benti til að hann hefði brotið af sér. Aldís vann málið fyrir Hæsta­rétti þann 11. októ­ber 2018, ákvörðun lög­reglu­stjóra um breyt­ingar á starfs­skyldum Aldísar var felld úr gildi og rík­inu gert að greiða henni 1,5 millj­ónir í miska­bætur og 2,5 millj­ónir í máls­kostnað. 

Mál Aldísar og lög­reglu­full­trú­ans sem var rang­lega sak­aður um óeðli­leg sam­skipti við brota­menn hafði miklar afleið­ingar innan fíkni­efna­deild­ar­innar. Um helm­ingur þeirra lög­reglu­manna sem sök­uðu lög­reglu­full­trú­ann rang­lega um lög­brot var hækk­aður í tign eða hlaut fram­gang í starfi eftir að lög­reglu­full­trú­anum var vikið úr deild­inni en nokkrir lög­reglu­menn sem höfðu lýst efa­semdum um ásak­an­irnar eða gagn­rýnt fram­göng­una gegn lög­reglu­full­trú­anum voru reknir af vett­vangi fíkni­efna­rann­sókna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár