Marsera um göt­urnar Hægri öfga­menn og nýnas­istar gengdu fylktu liði um Frank­furt (Oder) í jan­úar 2015 til þess að mót­mæla stefnu Merkel í inn­flytj­enda­málum. Mynd: Shutterstock

Morð á þýskum stjórnmálamanni skapar andrúmsloft ógnar og ótta

Ótti ríkir í þýsku samfélagi eftir morðið á stjórn­mála­manninum Walter Lübcke. Samtök nýnasista hafa birt dauða­lista á vefnum þar sem fleiri stjórn­málamönnum er hótað lífláti. Öryggis­lögregla Þýska­lands þykir hafa sofið á verðinum gagnvart þeirri ógn sem stafar af hægri öfga­mönnum.

Morðið á þýska stjórn­mála­manninum Walter Lübcke hefur undan­farnar vikur skekið þýskt samfélag. Lübcke, sem átti sæti á ríkis­þingi Hesse sem aðal­fulltrúi Kassel-borgar, fannst látinn í garðinum fyrir utan heimili sitt, þar sem hann hafði verið skotinn í hausinn af stuttu færi. Enginn skotvopn fundust á vettvangi en DNA sýni af Stephan Ernst, 45 ára gömlum öfga hægri­manni fundust á fötum Lübcke. Hann játaði síðar að hafa myrt stjórn­málamanninn vegna afstöðu hans í málefnum flótta­fólks en dró játningu sína síðar til baka. Málið hefur vakið upp óþægilegar minningar um vanhæfi þýsku öryggis­lögreglunnar, BfV, til þess að takast á við ofbeldi hægri öfgamanna.

Fannst í garð­inum Stjórn­mála­mað­ur­inn Walter Lübcke fannst lát­inn í garð­inum sínum þann 2. júní. Hann hafði verið skot­inn í haus­inn af stuttu færi. 

Þetta er í fyrsta skipti síðan á sjöunda áratugnum sem þýskur stjórn­málamaður er myrtur og þykir til marks um breytt stjórnmála­ástand í Þýska­landi. Flokks­systkini Lübcke úr röðum Kristilegra demókrata hafa meðal annars sakað liðsmenn hægri öfga­flokksins Alternative für Deutschland, AfD, um að kynda undir ofbeldi af þessu tagi með eitraðri og hættulegri umræðu­taktík. Meðlimir AfD gera hinsvegar lítið úr ógninni af hægri öfga­mönnum og saka stjórn­völd meðal annars um að bera ábyrgð á morðinu með frjáls­lyndri stefnu sinni í innflytjenda­málum. Rökin eru eitthvað á þá leið að hægri öfgamenn væru einfald­lega ekki svona reiðir, hreinlega morðóðir, hefði Merkel ekki asnast til þess að opna landið fyrir flótta­fólki árið 2015.

Hvað sem slíkri umræðu líður má ljóst vera að þýsk stjórnmál verða markeruð af atburðinum til lengri tíma. Sumir óttast að atburður sem þessi geti fælt frjálsynt fólk frá því að taka þátt í stjórn­málum en óhætt er að segja að andrúms­loftið sem myndast hefur í kjölfarið sé ekki beint geðslegt. Stuttu eftir morðið birtu ýmis samtök hægri öfgamanna og nýnasista dauða­lista víðsvegar um veraldar­vefinn þar sem finna mátti nöfn, heimilis­föng og myndir af stjórn­málamönnum sem tala máli flótta­fólks og þeir varaðir við að þeir yrðu næstir. Talið er að um þrettán þúsund þýskir nýnasistar séu tilbúnir til þess að beita ofbeldi til að koma málstað sínum á framfæri. Ógnin af hryðju­verkum af þeirra hendi er því sannarlega fyrir hendi.

„Líf þitt mun enda árið 2020“

Fleiri morðtilraunir

Hinn 65 ára gamli Walter Lübcke var rétt eins og flokks­systir hans Angela Merkel mikill talsmaður þess að opna Þýskaland fyrir flótta­fólki og taldi það raunar siðferðis­lega skyldu að taka á móti fólki á flótta. Hann hafði gegnt stöðu aðal­fulltrúa Kassel á ríkis­þingi Hesse í rúm tíu ár og er lýst sem þöglum manni á oft á tíðum eldheitu þinginu, í nýlegri umfjöllun Der Spiegel. Þá hefur flokkur Kristilegra demókrata, CDU, gefið það út að Lübcke hafi aldrei verið hræddur við að tala meiningu sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár