Líkt og barns­missir Víkingur Krist­jáns­son líkir því sem hann hefur gengið í gegnum saman við að missa barn. Um eins og hálfs árs skeið var Víkingur til rann­sóknar vegna gruns um kyn­ferð­is­of­beldi á hendur syni sínum. Rannsókn máls­ins var felld niður bæði hjá hér­aðs­sak­sókn­ara og rík­is­sak­sókn­ara, enda þótti ekk­ert benda til að dreng­ur­inn hefði orðið fyrir slíku ofbeldi. Víkingur hefur þrátt fyrir það enn ekki séð son sinn og eru nú tvö og hálft ár liðin síðan hann sá hann síð­ast. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Mér líður eins og ég hafi misst barn“

Víkingur Krist­jáns­son sætti rann­sókn í eitt og hálft ár, grun­aður um að hafa beitt son sinn kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Bæði hér­aðs­sak­sókn­ari og rík­is­sak­sókn­ari felldu málið niður og Barnahús komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekk­ert benti til þess að dreng­ur­inn hefði orðið fyrir ofbeldi. Við­ur­kennt er að alvar­legir ágallar voru á með­ferð máls­ins hjá Barna­vernd Reykja­víkur. Þrátt fyrir að tæpt ár sé síðan að rann­sókn var felld niður hefur Víkingur ekki enn fengið að hitta son sinn á ný.

Víkingur Krist­jáns­son leik­ari hefur ekki fengið að hitta ungan son sinn í að verða tvö og hálft ár. Víkingur sætti rann­sókn lög­reglu í eitt og hálft ár eftir að barns­móðir hans til­kynnti að hana grun­aði að hann hefði brotið kyn­ferð­is­lega gegn syni þeirra. Tíu mán­uðir eru nú liðnir frá því að emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara felldi niður rann­sókn á hendur Víkingi og sjö mán­uðir eru liðnir frá því að emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara stað­festi þá nið­ur­stöðu. Sér­fræð­ingar í Barna­húsi telja að sonur Víkings hafi ekki orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Barna­vernd Reykja­víkur hefur beðið Víking afsök­unar á vinnu­brögðum í mál­inu og stað­fest er í skýrslu Barna­verndar að alvar­legir ágallar hafi verið á með­ferð máls­ins. Víkingur hefur þó enn ekki fengið að hitta son sinn, sem nú er níu ára gam­all, en var sex ára þegar þeir feðgar hitt­ust síð­ast. „Mér líður eins og ég hafi misst barn. Það er eins og sonur minn sé dáinn.“

Hinn 2. ágúst á síð­asta ári birt­ist á vef Kvenna­blaðs­ins grein eftir Víking þar sem hann lýsti því að þann dag hefði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara fellt niður kæru á hendur honum, sem byggt hefði á grun um að hann hefði mis­notað son sinn kyn­ferð­is­lega. Greinin vakti mikla athygli enda Víkingur lands­þekktur maður, leik­ari sem hefur verið fasta­gestur á skjáum lands­manna síð­ustu ár. Víkingur hefur frá því að greinin birt­ist ekki tjáð sig frekar um málið í fjöl­miðlum, ekki fyrr en nú.

Sálfræðingur greindi engin merki ofbeldis

Upphaf máls­ins má rekja til þess að í jan­úar árið 2017 fékk Víkingur bréf frá barns­móður sinni þar sem hún ásak­aði sam­býl­is­konu Víkings, Kolbrúnu Elmu Schmidt, um gróft ofbeldi á hendur syni þeirra. Á þessum tíma­punkti neit­aði barns­móðir Víkings einnig að leyfa drengnum að fara til föður síns og fjöl­skyldu.  „Ásak­an­irnar voru svo alvar­legar að við Kolbrún spurðum hvort ekki væri eðli­legt að til­kynna málið til barna­verndar. Það vildi barns­móðir mín ekki og þess í stað var fund­inn sál­fræð­ingur sem sonur minn hitti, í tvígang. Eftir seinna skiptið vorum við barns­móðir mín kölluð inn á fund sál­fræð­ings­ins sem sagði að ekk­ert væri hæft í neinum ásök­unum um að dreng­ur­inn hefði orðið fyrir ofbeldi. Hann væri hins vegar pínu tættur og liði ekki vel yfir sam­bandi okkar for­eldr­anna, sem ég skildi alveg í ljósi aðstæðna. Þetta var í síð­asta skipti sem ég hitti son minn. Ég hef ekki séð dreng­inn minn í að verða tvö og hálft ár, fyrst vegna tálm­unar, síðan vegna þess­ara fárán­legu ásak­ana og nú vegna þess að það er ekk­ert að ger­ast í því að koma á sam­bandi okkar á milli, af hálfu barna­vernd­ar­yf­ir­valda,“ segir Víkingur.

Eftir því sem Víkingur segir ýtti barns­móðir hans þó fast eftir því að fleiri við­tals­tímum yrði bætt við hjá sál­fræð­ingnum eftir þetta, sem að lokum var fall­ist á. „Þeir tímar breyttu hins vegar engu, það var eftir sem áður mat sál­fræð­ings­ins að ásak­anir um ofbeldi ættu ekki við rök að styðj­ast. Það til­kynnti sál­fræð­ing­ur­inn okkur á fundi og lét þess jafn­framt getið að hún myndi rekja þá nið­ur­stöðu í grein­ar­gerð,“ segir Víkingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár