Þingmennirnir vildu að Bára fengi að minnsta kosti 100 þúsund króna sekt

Lögmenn Mið­flokks­manna fóru ítrekað fram á að kona á örorku­bótum yrði látin greiða stjórn­valds­sekt.

Þingmennirnir vildu að Bára fengi að minnsta kosti 100 þúsund króna sekt

Lögmenn þing­manna Mið­flokks­ins kröfð­ust þess í þremur bréfum til Per­sónu­verndar að Bára Hall­dórs­dóttir, kona með gigt­ar­sjúk­dóm sem reiðir sig á örorku­bætur, yrði látin greiða stjórn­valds­sekt. 

Nýjasta bréfið var sent 8. maí síð­ast­lið­inn af Rúti Erni Birg­is­syni hér­aðs­dóms­lög­manni. Þar er því haldið fram að „öll efni standi til að ákvarða gagn­að­ila í mál­inu stjórn­valds­sekt“.

Samkvæmt nýupp­kveðnum úrskurði Per­sónu­verndar braut Bára per­sónu­vernd­ar­lög þegar hún hljóð­rit­aði sam­skipti þing­mann­anna á veit­inga­staðnum Klaustri í fyrra. 

Per­sónu­vernd lítur þó sér­stak­lega til þess í nið­ur­stöðu sinni að ekki var sýnt fram á „sam­verknað“ og að sam­ræð­urnar sem Bára tók upp hafa orðið „til­efni mik­illar umræðu í sam­fé­lag­inu um hátt­semi þjóð­kjör­inna full­trúa“. Með hlið­sjón af þessu er henni ekki gert að greiða sekt. 

Stundin greindi fyrst frá kröfu Mið­flokks­manna um að Bára yrði sektuð þann 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Sú krafa var ítrekuð í bréfi Reimars Pét­urs­sonar lög­manns í byrjun febr­úar. „Álagning stjórn­valds­sekta er liður í virkri rétt­ar­vernd fyrir ólög­mætum inn­gripum í frið­helgi einka­lífs. Má því ætla að Per­sónu­vernd sé skylt að leggja þær á nema álagn­ing þeirra teld­ist „ótví­rætt brot“ á rétti til tján­ing­ar­frelsis skv. stjórn­ar­skrá,“ skrif­aði Reimar. 

Í úrskurði Per­sónu­verndar sem kveð­inn var upp í dag er vitnað í nýlegra bréf frá öðrum lög­manni Mið­flokks­manna, Rúti Erni Birg­is­syni. Þar kemur fram að kvar­tendur telji sig „þolendur ský­lauss brots gegn ákvæðum laga nr. 90/2018“ og öll efni standi til þess að Bára verði sektuð. „Miðað við þá vit­neskju sem liggi fyrir um fjár­hag gagn­að­ila þyki þó kvar­tendum ef til vill óþarft að leggja á hærri sekt en sem nemi sekt­ar­lág­mark­inu, þ.e. 100.000 krónum.“ 

Nú liggur fyrir að ekki verður orðið við þess­ari kröfu. Enn á þó eftir að koma í ljós hvort þing­menn Mið­flokks­ins láti verða af því að höfða einka­mál gegn Báru Hall­dórs­dóttur. Hefur lög­maður þeirra viðrað þann mögu­leika að kraf­ist verði miska­bóta úr hendi hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár